Uppfærsla 25. febrúar, kl. 21:50:
Allt uppselt.

Næsta sending væntanleg eftir rúma viku (takmarkað magn!).

Maclantic hefur nú hafið nýja þjónustu fyrir notendur; að útvega 100% lögleg iTunes kort frá Bandaríkjunum. Það er gert í samstarfi við félaga minn, Michael, sem býr í New York. Hann kaupir kortin af viðurkenndum endursöluaðila og skannar þau inn og sendir kaupanda. Þetta eru því 100% lögleg kort.

Ein tegund verður til boða, $50 iTunes kort sem er selt á $60/stk.

Til þess að panta og ganga frá greiðslu (sem berst til félaga míns í USA) þarf að fara á Paypal.com og senda greiðsluna á itunes@maclantic.is

Með því að kaupa inneignarkortin hér er verið að styrkja Maclantic um rúma $3. Þetta er fjárhæð af frádregnum færslugjöldum sem þarf að greiða PayPal og 50% af hagnaði sem fer til Michael.

MIKILVÆGT

1. Margir hafa lent í svindli og ólöglegum kortum þegar iTunes kort eru keypt á netinu. Apple fer reglulega yfir alla reikninga í iTunes og eru sumir heppnir að lenda ekki í því að reikningurinn þeirra sé lokað. Því vil ég ítreka við notendur að ef einhver saga á iTunes reikningnum ykkar bendi til þess að e-h tímann hafi verið keypt stolið kort þá getur hann verið lokaður hvenær sem er. Ástæðan fyrir því að ég bendi á þetta er vegna þess að ég lenti í þessu sjálfur. Ég keypti (án minnar vitundar) ólögleg kort frá óprúttnum aðila á netinu og það liðu 3-4 mánuðir og honum var lokað. Í millitíðinni var ég búinn að kaupa fullt af löglegum kortum, en tapaði inneigninni minni sem var lögleg á þeim tíma.

Svo ég komi mér að efninu þá vil ég að þeir sem vilja koma í veg fyrir að þetta gerist, stofnið nýjan iTunes aðgang.

2. Maclantic ber enga ábyrgð á iTunes reikningum sem verður lokað af hálfu Apple og á endurgreiðsla sér ekki stað ef svo gerist.

3. Það eru tveir kóðar á kortunum: einn sem skafaður er af og annar sem er virkjunarlykill. Ef kóðinn virkar ekki af einhverjum ástæðum þá þarf að hafa samband við iTunes Store Team og gefa upp báða kóðana (þetta er mjög óalgengt, vildi bara benda á þetta þar sem ég lenti einu sinni í þessu þegar ég bjó í USA).

4. Einungis er tekið við greiðslu með Paypal og taka skal fram að greiðslan berst ekki til mín heldur til Michael, því hann sér alfarið um að kaupa og selja kortin. Hann tekur helminginn af álagningunni sem lögð er á kortin, hinn helmingurinn rennur sem styrkur til Maclantic frá Michael.

5. Færslugjöld eru á Paypal og því fara allt að $2,60 í gjöld sem við fáum ekki greidd. Það er því í kringum $3 sem Maclantic fær fyrir hvert selt kort. Þetta er til styrktar Maclantic og er peningurinn notaður til þess að greiða rekstrarkostnað (hýsingu + ISNIC og fleira).

6. Ef mikil eftirspurn verður á kortunum á stuttu tímabili getur orðið smá töf á að fá kóðann afhentan. Það veltir líka á því að verslunin, þar sem kortin eru keypt, sé með þau á lager. Ef við sjáum fram á of langan afhendingartíma er haft samband við kaupanda og hann hefur þá kost á að bíða eða fá endurgreitt.

Bestu kveðjur,

Bjöggi
(Stofnandi og eigandi Maclantic.is)

0 svör við “Kaupa iTunes kort”


  1. Engin svör

Tjáðu þig!