WWDC ‘11 í dag kl. 17

Apple mun í dag halda sérstaka kynningu á WWDC (Worldwide Developers Conference) í San Francisco.

Staðfest er að þar verði rætt um nýjustu útgáfurnar af Mac OS X (kallað Lion) og iOS stýrikerfinu. Þar að auki verður kynnt nýtt fyrirbæri sem kallast „iCloud“.

Því miður verður WWDC ekki sent út í beinni (vídeó) en það verður að öllum líkindum hægt að horfa á kynninguna seint í kvöld eða á morgun.

Til að fylgjast með kynningunni í texta og myndformi mælum við með: www.macrumorslive.com

Slóð á kynninguna (video)

Allt bendir til þess að kynningin verði sýnd í beinni frá Apple.com en ekki enn staðfest.

Hér er allavega slóð sem verður notuð (virkar ekki sem stendur), hvort sem það verður sýnt beint eða síðar í kvöld.

www.apple.com/apple-events/march-2011/

Uppfært: Ekkert live, en hér er ein þægileg leið til að fylgjast með
http://www.macworld.com/article/158138/2011/03/ipad_event.html

Apple kynning í kvöld kl. 18 – uppfært

Í dag, 2. mars 2011, mun Apple vera með sérstaka kynningu í San Francisco. Einnig verður hún í beinni útsendingu í London fyrir útvalda.

Talið er að iPad 2 verði kynntur ásamt einhverju öðru sem gæti tengst MobileMe eða iTunes Store.

Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu í texta- og myndformi á m.a. Engadget og MacRumors:

http://macrumorslive.com/
http://www.engadget.com/2011/03/02/live-from-apples-ipad-2-event/

Apple eru vanir að birta svo kynninguna á heimasíðu sinni á eftirfarandi slóð: http://www.apple.com/apple-events/

Fylgist með á fréttavef Maclantic til að fá nýjust fréttir um nýja gripinn, ásamt verði og fleira.

Uppfært. Hér er betri listi:

http://macdailynews.com/2011/03/02/macdailynews-presents-live-coverage-of-apples-march-2nd-special-event/

Styttist í stóru stundina

Í dag kl. 17:00 mun Apple kynna nýjar vörur sem tengjast makkanum. (Því er óþarfi að halda að það tengist iOS stýrikerfinu).

Talið er að kynningin verði send beint út eins og var gert á síðustu kynningu, en það hefur ekki enn verið staðfest af Apple.

Mikið hefur verið talað um að Apple tilkynni nýja fartölvu sem verði örþunn með allt að 10 klst rafhlöðuendingu (ágiskun Maclantic: tölva úr liquid metal). Einnig er talið að iLife ‘11 verði kynnt til sögunnar og Mac OS X Lion (10.7).

Við munum senda inn frétt með slóð um leið og við vitum meira.

Fylgist með á Maclantic!

Apple kynning þann 20. október!

Þann 20. október mun Apple halda sérstaka kynningu sem mun fjalla um Mac og þ.a.l. Mac OS X stýrikerfið.

Talið er að um sé að ræða næstu útgáfu af stýrikerfinu, 10.7, og mun bera nafnið „Lion“.

Það verður spennandi að sjá hvað Apple hefur að sýna okkur, hvort um sé að ræða algjörlega endurhannað kerfi eða einfaldlega endurbætur og fleiri eiginleikar (eða fídusar eins og sumir kjósa að kalla það).

Kynningin verður á hinum klassíska tíma, kl. 10 að morgni í San Francisco, sem þýðir kl. 17:00 að íslenskum tíma.

Keynote með Steve Jobs á WWDC í dag

Í dag mun Steve Jobs stíga á svið og kynna margt spennandi, þ.ám. næstu kynslóð af iPhone.

Það verður gaman að sjá hvort Apple sýni „sneakpeak“ af Mac OS X 10.7 og vonandi kynna þeir einhverjar aðrar djúsí vörur.

Til að fylgjast með kynningunni er hægt að skoða t.d. Engadget og MacRumorsLive (í fljótu bragði virðist sem Gizmodo ekki hafa verið boðið).

Kynningin hefst kl. 17 að íslenskum staðartíma.

Þeir sem vilja horfa á kynninguna þurfa líklegast að bíða til kvölds (fer oftast í loftið á milli kl. 22 og 23).

Slóðin að myndskeiðinu verður birt hér: www.apple.com/quicktime/qtv

Steve Jobs svarar Maclantic [aftur]

Þar sem Steve Jobs hefur verið ansi glaður á að svara tölvupósti frá Apple-notendum síðastliðna mánuði (og staðfest það í viðtali á All Things Digital) þá ákvað ég að senda stutta línu á kappann í gær.

Í þetta skipti spurði ég einfaldlega af hverju Keynote væri ekki lengur sent út í beinni á netinu, eins og áður var gert. Ég vildi deila þessu með ykkur þar sem einmitt margir hafa pirrað sig á þessu síðastliðin ár og líka vegna þess að WWDC er í dag.

Svar hans var hnitmiðað að vana:

Staðfest: Apple kynning 27. janúar

top

Apple hefur sent boðskort til fjölmiðla um sérstaka kynningu sem verður haldin þann 27. janúar, eða eftir rúma viku.

Samkvæmt orðrómi er talið að ný fartölva með snertiskjá verði kynnt, nýtt iPhone stýrikerfi (OS 4.0) og iLife 2010.

I spoke to a source at Apple this morning, before the invite hit my inbox, who said the event would likely focus on three projects: The tablet device, iPhone 4, and a new round of iLife 2010 software. While we won’t see new iPhone hardware just yet, we will see the next-generation software.

Kynningin hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma, miðvikudaginn 27. janúar.

Heimildir: Engadget, MacRumors og Fox News.

Apple með kynningu í dag kl. 17

Vildi bara minna lesendur á að Apple er með kynningu í dag sem tengist iPod, iTunes og hugsanlega AppleTV.

Einhver snillingur hefur óvart uppfært verðin á Apple Store fyrir kynninguna, en búast má við dágóðri verðlækkun á iPodum í dag:

iPod touch:
- 8 GB núna $189, lækkað um $40
- 16 GB núna $249 ,lækkað um $50
- 32 GB núna $279, lækkað um $120

iPod nano:
- 8 GB núna $129, lækkað um $20
- 16 GB núna $149, lækkað um $50

iPod classic:
- 120 GB núna $229, lækkað um $20

Fylgist með á Maclantic!

Nýtt AppleTV 9. september?

163852-apple_tv_40gb

Talið er að nýtt AppleTV verði kynnt með nýjum iPodum í næstu viku.

Vöntun á 40GB útgáfunni (sjá mynd) gefur til kynna að nýjar gerðir verði kynntar með meira rými og hugsanlega einhverjum útlitsbreytingum og/eða innihaldi.

Þar að auki hefur verið nefnt að einhvers konar sjónvarpssett verði kynnt, en það verður einfaldlega að koma í ljós á næstu dögum.

Hvað segið þið? Er ekki kominn tími á nýtt AppleTV? Hvernig myndi ykkur lítast á LCD sjónvarp frá Apple með innbyggðu AppleTV?




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!