Vefþátturinn Helginn (http://helginn.is) og vefverslunin Buy.is (http://buy.is) hafa sett af stað skemmtilegan leik á Facebook. Verðlaunin eru ekki af verri endanum. Fyrstu verðlaun eru hvorki meira né minna en iPhone 4 32GB í boði Buy.is. Leikurinn gengur út á notkun samfélagsmiðlanna Facebook og YouTube. Mikið af myndbrotum sem sýnd eru í Helganum koma einmitt af YouTube, en nú er komið að áhorfendum til að búa til efnið.
Til að taka þátt þarf að „Like-a“ Helgann og Buy.is á Facebook og svo þarf þátttakandi að segja af hverju sá á skilið að fá iPhone 4. Taka þarf skilaboðin upp á video, setja þau á YouTube og senda þeim slóðina á http://helginn.net/iphone4. Þeir fara yfir innsent efni og velja 10 myndbönd í úrslit. Úrslita myndböndin verða sett á Facebook og sá sem fær flest „Like“ vinnur.
Þessi leikur byggir á hugmyndaflugi og samfélagsáhrifum þátttakenda með hjálp þeirra netmiðla sem eru í boði í dag. Þátttakendur geta sent inn hvað sem er, en hver Facebook notandi getur aðeins tekið þátt einu sinni.
Helginn er vefþáttur þar sem Helgi Hrafn og Helgi Steinar ræða um fréttir og efni af netinu. Þeir fá til sín gesti, prufa nýjustu tækni og ræða um það sem gengur og gerist að hverju sinni. Þátturinn varð 1. árs 1. júlí 2010 og náðu strákarnir að gefa út að meðaltali 3 þætti í mánuði. Helgi Hrafn er verkefnastjóri hjá hugbúnaðarhúsinu Stefnu og Helgi Steinar er verslunarstjóri NOVA á Akureyri.
Það verður að teljast nokkuð merkilegt að árið 1999 var iPad nefnt í tímaritinu Wired.
Árið 1998 var merkilegt í sögu Apple því þá var iMac kynntur til sögunnar og svo iBook í júlí árið 1999, en í textanum hér að ofan (skrifaður 3 mánuðum fyrir kynningu iBook) er einmitt tekið fram: „The next iMac attack promises new lollipop laptops, a more serious series of professional machines…“ og í framhaldinu „…and a wireless handheld dubbed the iPad“.
Wired hafa greinilega séð fram í framtíðina í þessari stuttu grein sinni, en hvaðan þeir hafa fengið heimildirnar er enn óvitað.
A.m.k. tveir notendur Maclantic hafa lent í því að hafa pantað sér Amazon Kindle og hefur tækið verið flokkað sem upptökutæki við komu til landsins að mati Tollstjóra.
Tollflokkur af þessari tegund þýðir 25% vörugjöld + 7,5% tollur auk 25,5% virðisaukaskatts.
Hvaða flokk þetta tæki heyrir undir er óvíst, en nokkuð ljóst er að það er ekki upptökutæki heldur lestæki, álíka og bækur.
Við hvetjum alla sem hafa keypt sér Amazon Kindle að skoða eftirfarandi þráð og finna ásættanlega lausn í málinu:
Daginn,
spjallvefurinn er aftur orðinn virkur en með tímabundnum takmörkunum: ekki verður hægt að framkvæma neina leit á spjallinu um stund og því ekki heldur hægt að skoða “Innlegg síðan síðast”. Ég veit að þetta er mjög vinsæll hnappur hjá Maclantic-verjum, en á meðan ég fer í að uppfæra kerfið á næstunni þá verður þetta að vera svona. Skárra en ekkert, ekki satt?
Dregnir hafa verið út fimm vinningshafar með rétt svör úr nördagetraun Maclantic og hlýtur hver vinningshafi leyfi fyrir póstforritinu Mailplane að verðmæti $24.95.
Vinningshafar eru:
Bjarki Guðjónsson
Haukur Gylfason
Bjössi F
Einar M. Einarsson
Hjalti Parelius Finnson
Rétt svör voru A-C-A-C-D
Leyfin verða send frá http://mailplaneapp.com á netföng viðkomandi og ættu að berast fljótlega.
Með þökk fyrir þátttökuna og vinningshafar njótið vel.
The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.