Wacom kynnir þráðlaust teikniborð

Wacom kynnti nýlega teikniborð, Intuos4 Wireless, með Bluetooth eiginleika.

Innbyggð rafhlaða er í borðinu sem hægt er að endurhlaða með hjálp USB-snúru tengda við tölvuna.

2048 þrýstipunktar eru snertifletinum á Intuos4 Wireless og er stærð borðsins 363mm x 253mm (snertiflötur 203mm x 127mm).

The new Intuos4 Wireless pen tablet with Bluetooth® wireless technology lets you relax in your favorite working position or move about freely up to 33 feet (10 meters) from your computer. Enjoy the freedom of working “unattached” from your Mac or PC and reducing cord clutter.

Verð á nýja Wacom borðinu er $399 á Bandaríkjamarkaði.

Lesið meira um Wacom Intuos4 Wireless hér.

Myndir af nýju Apple fjarstýringunni

091102_apple_remote_14

Apple kynnti nýja fjarstýringu samhliða nýju gerðunum af iMac. Eins og sést er hún í stíl við nýja útlit MacBook Pro og iMac og örlítið breytt hvað stærð og takka varðar.

Skoðið fleiri myndir.

Svona lítur Magic Mouse út

Smellið á „full screen“ hnappinn til að sjá myndbandið betur.

Nýjar útfærslur af Time Capsule

Apple hefur uppfært Time Capsule og er  nú með tvöfaldri gagnagetu.

Sama verð verður á græjunni, þ.e. 1TB verður á sama verði og 500GB var á; $299 í BNA og 2TB á sama verði og 1TB; $499.

Samkvæmt vefsíðu Apple eru nýju gerðirnar tilbúnar til afgreiðslu strax í Bandaríkjunum, eða sent út innan við sólarhring. Búast má við nýju gerðunum hérlendis á næstu vikum. Tilkynnt verður um það á fréttasíðu Apple.is á næstunni.

Nánari upplýsingar um Time Capsule fást hér.

Time Capsule 1TB lent!

ZZ5DAC98FC.jpg

Time Capsule er loksins komið hérlendis eftir langa bið, en 1TB gerðin er nú til sölu hjá Apple IMC.

Verðið á henni er 55.990 kr. og fáanleg í dag. Búast má við 500GB útgáfunni um miðjan maí-mánuð.

Airport Express nú með 802.11n

dfk2389.jpg

Í dag kynnti Apple smávægilega uppfærslu á tækinu Airport Express, en það er lítill þráðlaus sendir með USB-tengi fyrir prentara og hljóðútgang fyrir græjur.

802.11n er kannski eitthvað sem margir hafa heyrt, en það er staðall fyrir þráðlausa tækni og skýrir hraðagetu. Fyrir stuttu var 802.11g staðallinn sá hraðasti en hann nær mest 54mbps í hraða. N-staðallinn er sagður vera um 5-falt hraðvirkari en sá fyrrnefndi og drægni þess tvöföld meiri.

Verðið helst óbreytt á tækinu, eða um $99 í BNA, og má búast við því hérlendis innan við þriggja vikna.

Lesið meira um tækið hér

Time Capsule kynnt

Time Capsule

Auk MacBook Air og “nýja” Apple TV kynnti Steve Jobs nýtt Airport Extreme, svonefnt Time Capsule eða tímahylki, fært yfir á íslensku.

Tækið mun sameina 802.11n WiFi stöð og 500GB eða 1TB harðann disk í eitt tæki sem allar tölvur heimilisins geta tengst. Er það kallað Time Capsule af því að tækið getur tekið afrit af tölvunni rétt eins og Time Machine.

Tækið kostar $299 með 500GB hörðum disk og $499 með 1TB hörðum disk en það mun verða fáanlegt í febrúar.

Apple uppfærir Mac mini og Airport Extreme

macmini.jpgApple hefur í dag uppfært Mac mini og skellt Core 2 Duo örgjörva í hana, sem er 64-bita og í nánast öllum tölvum þeirra í dag.

Nýju gerðirnar hafa að geyma 1GB vinnsluminni og stærra geymslupláss. Meira um það hér.

Airport Extreme fékk smávægilega uppfærslu og hefur nú Gigabit Ethernet tengi, en áður var einungis 10/100 Base-T Ethernet til staðar.

Verð helst óbreytt.

Þráðlaust Apple

airportextreme.jpg
smellið á myndina til að stækka

Apple kynnti síðastliðinn mánuð nýja þráðlausa stöð sem styður 802.11n staðalinn. Þessi nýi staðall býður upp á mun meiri gagnagetu en áður hefur þekkst og gerir því mönnum kleift að streyma stærra efni á styttri tíma.

802.11n staðallinn býður upp á allt að 540mbps hraða, en það er 10 sinnum 80211n.jpghraðvirkara en sá sem notaður er mest í dag (802.11g).

Merkilegasta við þessa nýju stöð, fyrir utan hönnunina, er að hún hefur að geyma USB-tengi sem hægt er að nota til að tengja utanáliggjandi diska (flakkara) sem bjóða upp á USB2 tengi. Þetta þýðir einfaldlega að ekki þarf lengur að hafa flakkarana nálægt tölvunni heldur hægt að geyma þá á öðrum stað þar sem þeir trufla mann ekki.

Þó er mikilvægt að taka fram að einungis tölvur með Core 2 Duo örgjörva (ásamt Mac Pro) hafa möguleikann til að nýta sér 802.11n. Tölvurnar eru þó ekki tilbúnar í slaginn, eins og maður segir, en það þarf að virkja þennan staðal annað hvort með því að borga fyrir sérstaka uppfærslu eða kaupa sér fyrrnefndu þráðlausu stöð því henni fylgir uppfærslan.

Airport Extreme Base Station má búast við að sjá hér á landi í enda mánaðarins og má gera ráð fyrir að hún muni til með að kosta 19.900 krónur.

Meira um vöruna á Apple.com
Myndir af Airport Extreme stöðinni

Macworld ‘07 – samantekt

keynote-macworld-iphone.jpg

Apple kynnti byltingarkennda vöru er Steve Jobs steig á svið á Macworld ráðstefnunni í San Francisco á þriðjudaginn. Um er að ræða iPod með breiðtjaldsskjá, GSM síma og nettengda græju. iphone_2.jpgÞetta þrennt var sameinað í eina vöru sem heitir iPhone, en nafnið hefur oft verið nefnt áður í orðrómasíðum makkaheimsins og ættu því margir að kannast við það nú þegar.

iPhone er í raun ekki sími eins og nafnið ber að kynna, heldur má í raun tala um hann eins og smátölvu með MacOS X stýrikerfinu, vafra, iPod/iTunes, Widgets og margt margt fleira. Merkilegast við símann er að sjálfsögðu að hann er án raunverulegra takka en allar aðgerðir byggjast á snertiskjá sem birtir skipanir eftir þörf.

ipod_hand2.jpgSnertiskjárinn getur meira en bara tekið við einfaldri snertingu með einum fingri sem þýðir að hægt er að framkvæma flóknari aðgerðir með ýmsum hreyfingum eins og að stækka myndir fram og tilbaka með tveimur puttum sem dregnir eru saman eða öfugt.

iPhone er fyrsti síminn sem hefur upp á að bjóða alvöru internetkerfi; vafra og html email eins og gengur og gerist í venjulegum tölvum í dag.

Tvær útgáfur eru til af símanum; með 4GB og 8GB flash-minni. Síminn verður ekki fáanlegur fyrr en í júnímánuð í BNA og seinnipart ársins í Evrópu. Ekki er vitað um verð á Evrópumarkaði eins og stendur en búast má við að það verði í kringum €500/€600.

appletv.jpg

Steve Jobs kynnti einnig aðra vöru sem hefur í raun verið kynnt áður, en það er iTV. iTV fékk nýtt nafn og heitir í dag Apple TV. Þessi græja gerir mönnum kleift að streyma tónlist, ljósmyndum, kvikmyndum og þáttum þráðlaust beint úr tölvunni sinni (PC eða Mac). Til þess að geta notað þetta tæki þarf að hafa iTunes forritið.

appletv1.jpgApple TV er með 720p upplausn og hefur ýmsa tengimöguleika; HDMI, Component og að sjálfsögðu analog og digital hljóðútgang. Einnig hefur það Ethernet tengi og USB.

Verðið á Apple TV hér á landi verður um 39.990 krónur.

airportextreme2.jpgAirport Extreme Base Station fékk víst enga athygli eða kynningu á Macworld, en það hefur loks verið uppfært og hönnun þess breytt til muna. Það hefur nú að geyma bæði 802.11b, g og n staðlana en sá síðarnefndi er um 5x hraðvirkari en sá mest notaði í dag (802.11g). Drægnin er einnig mun meiri en á fyrri útgáfu. Verð er í kringum 19.900 krónur á Íslandi.

Lesið meira um vörurnar á eftirfarandi slóðum:
Apple iPhone
Apple TV
Airport Extreme Base Station