Steve Jobs látinn

Það er mér mjög erfitt að skrifa þessa færslu og ég vonaðist svo innilega til þess að þessi tími myndi ekki koma svo snemma. Á iPhone kynningunni í gær tók ég eftir auðu sæti sem á stóð „Reserved“ og ég hugsaði það versta, sem því miður reyndist vera rétt.

Steve Jobs lést í gær aðeins 56 ára að aldri en hann hefur þurft að glíma við mjög erfið veikindi síðastliðin ár. Steve vann fram á síðustu stundir hjá Apple og það var ekkert sem stöðvaði hann í að ryðjast áfram á ótroðnar brautir til að skapa ein merkilegustu tæki í heiminum.

Þetta er mikill sorgardagur í sögu Apple.

Hvíl í friði Steve Jobs. Við munum sárlega sakna þín.

WWDC ‘11 í dag kl. 17

Apple mun í dag halda sérstaka kynningu á WWDC (Worldwide Developers Conference) í San Francisco.

Staðfest er að þar verði rætt um nýjustu útgáfurnar af Mac OS X (kallað Lion) og iOS stýrikerfinu. Þar að auki verður kynnt nýtt fyrirbæri sem kallast „iCloud“.

Því miður verður WWDC ekki sent út í beinni (vídeó) en það verður að öllum líkindum hægt að horfa á kynninguna seint í kvöld eða á morgun.

Til að fylgjast með kynningunni í texta og myndformi mælum við með: www.macrumorslive.com

10 hlutir sem þú vissir ekki um Steve Jobs

Hér er ein skemmtileg og/eða áhugaverð lesning um tíu hluti sem þú hugsanlega vissir ekki um Steve Jobs.

www.jamesaltucher.com/2011/02/10-unusual-things-i-didnt-know-about-steve-jobs/

2)      His father’s name is Abdulfattah Jandali. If you had to ask me what Steve Job’s father’s name was I never in one zillion years would’ve guessed that and that Steve Jobs biologically was half Syrian Muslim. [...]

3)      He made the game  “Breakout”. If there was one thing I loved almost as much as the games on the Apple II+ it was playing Breakout on my first-generation Atari

8)      He’s a Zen Buddhist. He even thought about joining a monastery and becoming a monk. His guru, a Zen monk, married him and his wife.

Styttist í stóru stundina

Í dag kl. 17:00 mun Apple kynna nýjar vörur sem tengjast makkanum. (Því er óþarfi að halda að það tengist iOS stýrikerfinu).

Talið er að kynningin verði send beint út eins og var gert á síðustu kynningu, en það hefur ekki enn verið staðfest af Apple.

Mikið hefur verið talað um að Apple tilkynni nýja fartölvu sem verði örþunn með allt að 10 klst rafhlöðuendingu (ágiskun Maclantic: tölva úr liquid metal). Einnig er talið að iLife ‘11 verði kynnt til sögunnar og Mac OS X Lion (10.7).

Við munum senda inn frétt með slóð um leið og við vitum meira.

Fylgist með á Maclantic!

Keynote með Steve Jobs á WWDC í dag

Í dag mun Steve Jobs stíga á svið og kynna margt spennandi, þ.ám. næstu kynslóð af iPhone.

Það verður gaman að sjá hvort Apple sýni „sneakpeak“ af Mac OS X 10.7 og vonandi kynna þeir einhverjar aðrar djúsí vörur.

Til að fylgjast með kynningunni er hægt að skoða t.d. Engadget og MacRumorsLive (í fljótu bragði virðist sem Gizmodo ekki hafa verið boðið).

Kynningin hefst kl. 17 að íslenskum staðartíma.

Þeir sem vilja horfa á kynninguna þurfa líklegast að bíða til kvölds (fer oftast í loftið á milli kl. 22 og 23).

Slóðin að myndskeiðinu verður birt hér: www.apple.com/quicktime/qtv

Steve Jobs svarar Maclantic [aftur]

Þar sem Steve Jobs hefur verið ansi glaður á að svara tölvupósti frá Apple-notendum síðastliðna mánuði (og staðfest það í viðtali á All Things Digital) þá ákvað ég að senda stutta línu á kappann í gær.

Í þetta skipti spurði ég einfaldlega af hverju Keynote væri ekki lengur sent út í beinni á netinu, eins og áður var gert. Ég vildi deila þessu með ykkur þar sem einmitt margir hafa pirrað sig á þessu síðastliðin ár og líka vegna þess að WWDC er í dag.

Svar hans var hnitmiðað að vana:

Steve Jobs svarar tölvupósti frá Maclantic

Það verður að teljast nokkuð merkileg tíðindi, en Steve Jobs svaraði tölvupósti sem ég sendi honum í gær er varðar iPad og iPhone tethering.

Í bréfi mínu til Steve Jobs tók ég fram hversu leitt það væri að horfa upp á að sjá þessi tvö tæki ekki virka saman, þ.e. að iPhone hafi möguleikann til þess að deila neti sínu (kallað „tethering“) með Bluetooth á iPad en iPad leyfi það ekki. Bréf mitt í heild sinni hljóðaði svo:

iPhone tethering and the iPad:
It’s very disturbing to think of these two devices that have the technology and ability to be able to connect to each other without a problem (I would think) and share each others Internet connection… But they can’t, because of your (or Apple’s) restrictions.
I understand you want to sell the 3G iPad, but doing this to your current iPhone customers isn’t the right thing to do. Sometimes it’s better to get more respect rather than making more money… Or perhaps less money in the long run?
Please reconsider this decision you’ve possibly made about restricting the iPad to connect to the iPhone via Bluetooth with Internet tethering enabled.
Best regards,
Bjorgvin Bjorgvinsson
Sent from my iPad
Svar Steve Jobs:

It is the carrier’s policy that restricts this, not Apple.

Sent from my iPhone

Það er nokkuð augljóst að AT&T hafi neitað að leyfa iPhone tethering fyrir iPad, en af minni bestu vitund er ekki hægt að nota iPhone tethering yfirhöfuð í Bandaríkjunum vegna reglugerða AT&T (það virkar þó í „hökkuðum“ iPhone símum þarlendis).
Hins vegar gildir þessi takmörkun ekki á Íslandi t.d. eða mörgum öðrum Evrópulöndum. Því gæti þetta breyst þegar iPad verður markaðssettur í Evrópu, hver veit?
En spurningin er þá sú, mun næsta iPad-hugbúnaðaruppfærsla frá Apple leyfa iPhone tethering á iPad þegar hann verður fáanlegur í Evrópu? Ef Steve Jobs er að segja sannleikann þá mætti gera ráð fyrir því, þar sem iPad er í raun bara markaðssettur í USA sem stendur og því hafa þeir líklegast ekki haft fyrir því að bæta við þessum möguleika í iPad stýrikerfinu.
Hins vegar þykir mér skrítið að ef takmörkunin er nú þegar til staðar hjá AT&T – til hvers þá að loka alfarið á það á iPad ef fólk getur hvort eð er ekki notað tethering á iPhone símanum sínum? Kemur í ljós í sumar geri ég ráð fyrir…

Steve Jobs mættur til vinnu

ZZ565AAB91.jpg

Steve Jobs er nú aftur mættur til vinnu eftir 6 mánaða veikindafrí. Talið er að hann hafi fengið nýja lifur, eins og greint var frá hér áður á Maclantic.

Til að byrja með mun Steve vera við á höfuðstöðvum Apple nokkra daga vikunnar og einnig vinna heima við.

“Steve is back to work,” Steve Dowling, an Apple spokesman, said today. Jobs is at Apple a few days a week and working at home the remaining days, he said. “We are very glad to have him back,” Dowling said.

Heimild: Bloomberg

PS: Hægt er að kaupa bolinn hér að ofan á SteveJobsLives.com

Steve Jobs fékk nýja lifur

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum The Wall Street Journal gekk Steve Jobs nýlega undir lifrarígræðslu, eða fyrir um tveimur mánuðum síðan.

Eins og margir vita fékk Steve Jobs krabbamein í briskirtli fyrir nokkrum árum síðan. Æxlið var sem betur fer góðkynja sem hægt var að fjarlægja.

Eftir það fór heilsa hans að versna og varð líkami hans fyrir miklu þyngdartapi. Það var talið vera vegna ójafnvægi í hormónastarfsemi sem olli því að niðurbrot próteina varð óeðlileg.

zz0be990ae

Telja má að vandamálið megi rekja til lifrarinnar en það kemur að öllum líkindum í ljós á næstu dögum eða vikum.

Jobs er á góðum batavegi eftir aðgerðina og talið er að hann muni snúa aftur til Apple í lok þessa mánaðar.

WSJ: Jobs Had Liver Transplant
Maclantic: Steve Jobs segir frá heilsufari sínu
Fræðsla: Lifrarígræðsla (Læknablaðið)

Steve Jobs í veikindafríi til júní 2009

ZZ1B11EDA3.jpgÞað hefur ekki farið framhjá mörgum að Steve Jobs hefur þurft að ganga í gegnum veikindi síðastliðna mánuði og hefur hann sent út annað bréf hvað það varðar.

Þar kemur fram að hann muni taka sér veikindafrí til júnímánaðar og á meðan muni Tim Cook sjá um starfsemi Apple. Stærri ákvarðanir mun Jobs sjálfur taka þátt í á meðan hann er í fríi.

Hér er svo bréfið í heild sinni:

Team,

I am sure all of you saw my letter last week sharing something very personal with the Apple community. Unfortunately, the curiosity over my personal health continues to be a distraction not only for me and my family, but everyone else at Apple as well. In addition, during the past week I have learned that my health-related issues are more complex than I originally thought.

In order to take myself out of the limelight and focus on my health, and to allow everyone at Apple to focus on delivering extraordinary products, I have decided to take a medical leave of absence until the end of June.

I have asked Tim Cook to be responsible for Apple’s day to day operations, and I know he and the rest of the executive management team will do a great job. As CEO, I plan to remain involved in major strategic decisions while I am out. Our board of directors fully supports this plan.

I look forward to seeing all of you this summer.

Steve

www.apple.com/pr




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!