Myndin segir allt sem segja þarf:
Sjá bls. 13 hér.
Amazon hefur kynnt hugbúnað sem gerir Mac-notendum kleift að kaupa rafrænar bækur af fyrirtækinu.
Með forritinu verður hægt að halda utan um allar keyptar bækur og lesa þær. Eigi viðkomandi Kindle-tækið frá Amazon er hægt að samhæfa það við forritið, líkt og iPod og iTunes virkar saman.
Hægt er að nálgast Kindle forritið ókeypis hér.

Apple hefur sent út þrjár nýjar auglýsingar sem gera lítið úr orðum Microsoft um að allt sé orðið mun betra með nýja stýrikerfinu, Windows 7.
Mæli með að kíkja á þær: Apple.com/getamac/ads

Fréttatilkynning frá Apple.com:
Dr. Eric Schmidt Resigns from Apple’s Board of Directors
“Eric has been an excellent Board member for Apple, investing his valuable time, talent, passion and wisdom to help make Apple successful,” said Steve Jobs, Apple’s CEO. “Unfortunately, as Google enters more of Apple’s core businesses, with Android and now Chrome OS, Eric’s effectiveness as an Apple Board member will be significantly diminished, since he will have to recuse himself from even larger portions of our meetings due to potential conflicts of interest. Therefore, we have mutually decided that now is the right time for Eric to resign his position on Apple’s Board.”

Fyrirtækið Psystar Corp sem Apple kærði árið 2008 er hefur óskað eftir greiðslustöðvun. Apple kærði Psystar Corp eftir að fyrirtækið hóf að selja tölvur sem gátu keyrt Mac OS X stýrikerfið, eða s.k. Mac-klón.
Samkvæmt hugbúnaðarskilmálum Apple má aðeins keyra Mac OS X stýrikerfið á vélbúnaði frá Apple.
Eldri fréttir um málið.
http://maclantic.is/frett=2599
http://maclantic.is/frett=2852
[Innsend frétt - Þakkir til Kalla]
Annað nýtt í auglýsingum frá Apple:
PC Choice Chat – Skoða myndskeið
Customer Care – Skoða myndskeið
Í nýlegri grein í BusinessWeek er fjallað um auglýsingarnar frá Microsoft, sem einblína á verðmiða Apple-tölva.
Greinarhöfundur hafði samband við Apple og fékk eftirfarandi viðbrögð:
A PC is no bargain when it doesn’t do what you want …. The one thing that both Apple and Microsoft can agree on is that everyone thinks the Mac is cool. With its great designs and advanced software, nothing matches it at any price.
Fyrir þá sem ekki hafa séð auglýsingarnar, er hægt að sjá þær á YouTube eða með því að smella hér.
Svo virðist sem fartölvurisinn Toshiba hafi tekist að slá út markaðinn með því að gefa út nýja fartölvulínu með heilum þremur skjákortum.
X305, eins og línan heitir, hefur að geyma nýja skjáhraðalinn frá NVIDIA; 9400M (eins og finnst í nýjustu MB Air, MacBook og MB Pro) ásamt tveimur öðrum kortum sem vinna saman með s.k. SLI. Um er að ræða samtvinnun tveggja NVIDIA 9800M GTS skjákorta þegar mest á reynir í þrívíddarvinnslu í t.d. leikjum.
Herlegheitin kosta frá $1999 uppí $4199, eftir innihaldi og eru þær allar með 17″ skjá.
Varla er hægt að flokka blessuðu tölvuna sem fartölvu þar sem þyngd hennar er 4,1 kg, en til gamans má nefna er MacBook Pro 2,49 kg.
Til hliðsjónar hafa nýju MacBook Pro tölvurnar frá Apple tvö skjákort; NVIDIA 9400M skjáhraðal ásamt NVIDIA 9600M sem er sjálfstætt og gefur betri afköst hvað varðar þyngri grafíkvinnslu.
Heimild: DailyTech

Eins og mörg ykkar vitið þá er til fyrirtæki sem kallar sig Psystar sem setur saman sínar eigin tölvur með innbyggðu Mac OS X stýrikerfi. Eins og gefur að skilja hefur Apple kært fyrrnefnda fyrirtækið fyrir brot á höfundar of vörumerkjarétti en sú kæra var gefin út í júlí. Mánuði seinna kærði Psystar svo Apple fyrir að reyna bola sanngjarni samkeppni útaf markaðnum. Nú hefur svo verið gefin út tímatafla um öll komandi réttarmál fyrirtækjanna og munu þau ekki enda fyrr en þann 9. nóvember 2009.
Apple er nú meira virði heldur en Google Inc, samkvæmt útreikningi Digital Daily. AAPL er á mikilli uppleið þessa dagana eftir dágóða lægð, en hlutabréf náðu hámarki í gær í $180,00.
Hér má sjá lista yfir nokkur fyrirtæki í stærðarröð (markaðsvirði):