Apple Store niðri

Allt bendir til þess að við fáum að sjá nýjar vörur frá Apple í dag, en vaninn er sá að þegar Apple Store er niðri þá kemur eitthvað nýtt.

Reglan er þó ekki að svo sé ávallt, en vegna nýlegs orðróms þá gerum við sterklega ráð fyrir því.

Bíðum spennt!

http://store.apple.com

Nýjar Apple vörur í dag?

Samkvæmt orðróm er talið að Apple muni uppfæra iMac- og Mac Pro-línu sína í dag. Einnig er talið að nýir Cinema skjáir með LED-baklýsingu verði kynntir til sögunnar.

Mac Pro línan frá Apple hefur ekki verið uppfærð síðan í mars í fyrra og síðasta Cinema Display línan var gefin út 2008 (í millitíðinni var 24″ LED Cinema Display kynntur).

Þar að auki er talað um nýtt fjölsnertitæki frá Apple sem mun heita „Magic Trackpad“.

Þriðjudagur er dagur nýrra vara hjá Apple og því verður gaman að sjá hvort við fáum að sjá nýjar og spennandi vörur í dag.

Heimild

Önnur frumgerð af iPhone týnd?

Samkvæmt Víetnömskum umræðuvef (er niðri sem stendur) hefur ónefndur aðili undir höndunum 4. kynslóð af iPhone.

Eins og margir kannast við, keypti Gizmodo slíkt tæki af aðila sem segist hafa fundið það á þýskum bar í San Francisco.

Það sem hins vegar er öðruvísi við þessa gerð er að hún skilgreinir geymslupláss, 16GB í þessu tilfelli, en frumgerðin sem Gizmodo keypti stóð á „XXGB“. Þar að auki eru engar skrúfur undir símanum eins og var á símanum sem Gizmodo var með.

Það verður að segjast býsna merkilegt ef Apple hefur tekist að týna tveimur frumgerðum af næstu kynslóð af iPhone, því fyrirtækið er þekkt fyrir að vera með mjög strangar öryggisreglur til að koma í veg fyrir að slíkir hlutir gerast. Eitthvað hefur hins vegar farið úrskeiðis í ár.

Talið er að iPhone 4G eða „iPhone HD“ eins og hann er sagður heita (vegna betri upplausnar á skjá), verði kynntur í júní á þessu ári þegar WWDC á sér stað í San Francisco í Kalíforníu-ríki.

Heimild og fleiri myndir: MacRumors

Nýjar vörur frá Apple á morgun?

Samkvæmt nýjasta orðrómi er talið að Apple kynni uppfærðar MacBook Air eða jafnvel nýja Cinema skjái.

Ef Buyer’s Guide hjá MacRumors er skoðaður þá er komið tæpt ár síðan MacBook Air var uppfærð og rúm þrjú ár síðan 30″ Cinema Display var uppfærður.

Vonandi fáum við að sjá skilaboðin „We’ll be back soon.“ á Apple Store um hádegisbil á morgun.

Heimild: MacRumors

Staðfest: Apple kynning 27. janúar

top

Apple hefur sent boðskort til fjölmiðla um sérstaka kynningu sem verður haldin þann 27. janúar, eða eftir rúma viku.

Samkvæmt orðrómi er talið að ný fartölva með snertiskjá verði kynnt, nýtt iPhone stýrikerfi (OS 4.0) og iLife 2010.

I spoke to a source at Apple this morning, before the invite hit my inbox, who said the event would likely focus on three projects: The tablet device, iPhone 4, and a new round of iLife 2010 software. While we won’t see new iPhone hardware just yet, we will see the next-generation software.

Kynningin hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma, miðvikudaginn 27. janúar.

Heimildir: Engadget, MacRumors og Fox News.

64GB iPhone og 128GB iPod touch á næsta ári?

aah19101

Toshiba hefur tilkynnt fjöldaframleiðslu á 64GB NAND minniskubbum í byrjun næsta árs sem gefur Apple kost á að tvöfalda geymsluminni á tækjum á borð við iPod touch og iPhone.

Hingað til hafa 32GB kubbar verið framleiddir og þar sem iPod touch rýmir tvo kubba í einu, hefur stærsta útgáfan geta tekið 64GB (2x 32GB). Takmörkunin á iPhone er vegna plássleysis í símanum þar sem hann rýmir einn kubb, eða 32GB hingað til.

Tilkynningin gefur því Apple möguleika á að gefa út iPod touch með allt að 128GB geymslu og iPhone með allt að 64GB geymsluminni á næsta ári, en að sjálfsögðu veltir það líka á innkaupaverðinu á þessum fyrrnefndu NAND flash-kubbum frá Toshiba.

Heimild: MacRumors.com

Ný iMac og MacBook fyrir hátíðarnar?

imac_macbook_rumor_2009

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá AppleInsider er talið að nýr iMac verði kynntur fyrir jólin með SD-kortarauf, jafnvel fjögurra-kjarna örgjörva og endurhannaðri mús.

Þar að auki er talið að MacBook verði uppfærð með lægsta verðmiða í sögu fyrirtækisins.

Gæta skal að um orðróm er að ræða, en við vonum þó að hann sé réttur að einhverju leyti!

Heimildir:
Next-Generation iMac With SD Slot, Quad-Core, Possible Xeon? New Mouse and Remote in Pipeline?
MacBook Update to Be Released Alongside New iMacs?
Next-Generation iMacs Already in Production?

Nýtt AppleTV 9. september?

163852-apple_tv_40gb

Talið er að nýtt AppleTV verði kynnt með nýjum iPodum í næstu viku.

Vöntun á 40GB útgáfunni (sjá mynd) gefur til kynna að nýjar gerðir verði kynntar með meira rými og hugsanlega einhverjum útlitsbreytingum og/eða innihaldi.

Þar að auki hefur verið nefnt að einhvers konar sjónvarpssett verði kynnt, en það verður einfaldlega að koma í ljós á næstu dögum.

Hvað segið þið? Er ekki kominn tími á nýtt AppleTV? Hvernig myndi ykkur lítast á LCD sjónvarp frá Apple með innbyggðu AppleTV?

Nýir iPodar 9. september

rock and roll

Apple hefur sent út boðskort til fjölmiðla um kynningu sem verður haldin þann 9. september kl. 10:00 í San Francisco (kl. 17:00 að íslenskum staðartíma).

Talið er að nýr iPod nano og touch verði kynntir með innbyggðri myndavél. Þar að auki er talað um að jarðarför iPod classic (myndin gefur það líka til kynna) verði þann sama dag þar sem iPod touch verði fáanlegur í allavega 64GB (flash) stærð.

Fylgist með!

Apple að koma með snertitölvu á markað 2010?

123914-ai_tablet_500

Apple mun koma með snertitölvu á markað, mjög líklega á fyrsta ársfjórðungi næsta árs, a.m.k. samkvæmt áreiðanlegum heimildum AppleInsider.

Síðan skýrir frá því að Apple séu að leggja lokahönd á þessa nýju tölvu, sem hefur verið mjög lengi í burðarliðnum. Miklar tafir á vélinni hafa stafað vegna mikillar hönnunnar og þróunarvinnu sem þurfti til að tækið gæti fullnægt öllum gæðakröfum Apple. Í greininni segir að helstu tafir á tækinu hafi verið vegna ákvarðana sem hafi þurft að taka í sambandi við örgjörvann. Í fyrstu hafi átt að notast við Intel Atom en seinna svo ákveðið að nota við ARM-örgjörva frá P.A. Semi, fyrirtæki sem Apple tók yfir fyrir nokkru. Nú lítur svo út fyrir að Steve Jobs sé loks sáttur við vöruna en samkvæmt heimildum hefur hann meira að segja fylgst með þróun hennar úr sjúkrarúmminu.

Tölvan mun að öllum líkindum líkjast iPhone í hönnun en talið er að hún muni hafa 10” snertiskjá og 3G netkort, sem Verizon Wireless myndi hugsanlega veita þjónustu í stað AT&T.

-Myndin sem fylgir er aðeins teikning af hugsanlegu útliti tölvunnar en engum myndum hefur verið lekið ..ennþá.




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!