
Apple hefur sent út þrjár nýjar auglýsingar sem gera lítið úr orðum Microsoft um að allt sé orðið mun betra með nýja stýrikerfinu, Windows 7.
Mæli með að kíkja á þær: Apple.com/getamac/ads

Apple hefur sent út þrjár nýjar auglýsingar sem gera lítið úr orðum Microsoft um að allt sé orðið mun betra með nýja stýrikerfinu, Windows 7.
Mæli með að kíkja á þær: Apple.com/getamac/ads
Microsoft mun sýna nýja kynslóð af lyklaborðum á sýningu (User Interface Software and Technology conference) sem verður í október á þessu ári.
Kosturinn við nýja lyklaborðið er að það skynjar hve miklum þrýstingi er beitt á hvern hnapp fyrir sig á lyklaborðinu. Eins og sýnt er í myndbandinu hér að neðan gæti þetta hentað vel t.d. í leiki og við skriffinnsku.
Where most keyboards only register input as on or off, membranes under every key on the new example can register 256 different levels of force and perform a different action accordingly. In tests, Microsoft has already shown the keyboard could be used to enter capital letters just by pressing hard on a key or to erase a whole word with the Delete key.
Annað nýtt í auglýsingum frá Apple:
PC Choice Chat – Skoða myndskeið
Customer Care – Skoða myndskeið

Orðrómurinn segir að Microsoft sé um þessar mundir að vinna í tæki á borð við iPhone í samstarfi með Verizon.
Talið er að tækið, kallað „Pink“, eigi að koma út árið 2010 og muni þá hafa fjölsnertiskjá ásamt hugbúnaðarverslunina „Windows Marketplace“ (sem margir þekkja sem App Store í iPhone).
Fyrirtækið hefur áður reynt að feta í fótspor Apple með mp3-spilara sinn „Zune“ – sem varla er hægt að segja að hafi náð sama árangri og iPod hvað vinsældir varðar.
Í nýlegri grein í BusinessWeek er fjallað um auglýsingarnar frá Microsoft, sem einblína á verðmiða Apple-tölva.
Greinarhöfundur hafði samband við Apple og fékk eftirfarandi viðbrögð:
A PC is no bargain when it doesn’t do what you want …. The one thing that both Apple and Microsoft can agree on is that everyone thinks the Mac is cool. With its great designs and advanced software, nothing matches it at any price.
Fyrir þá sem ekki hafa séð auglýsingarnar, er hægt að sjá þær á YouTube eða með því að smella hér.
Ný auglýsing frá hugbúnaðarrisanum Microsoft gefur í skyn að Apple-tölvur séu yfirleitt of dýrar.
Sérstaklega er einblínt á að að úrval fartölva undir $1000 sé hreinlega ekki til og er dæmið einfaldað á áhugaverðan hátt.
Dæmi hver fyrir sig…

Apple byrjaði fyrir nokkru að gera “Hello, I’m a Mac” auglýsingingarnar til þess að sýna kosti Apple tölva fram yfir Windows tölvur. Í auglýsingumum var gert talsvert mikið grín að Microsoft. Nú hafa þeir blásið vörn í sókn og í nýjustu auglýsingaherferð sinni hafa þeir m.a. haft Jerry Seinfeld með í ráðum í tveimur ’sketsum’, en núna hafa þeir gert nýjar auglýsingar sem eru beint að auglýsingum Apple.
Í þeim kemur fyrir fólk sem segir “Hello I’m a PC” við mismunandi aðstæður. Ég veit ekki hvað er hægt að segja meira um nýjasta útspil Microsoft þannig að endilega sjáið auglýsingarnar á hér, hér og hér.

Ekki í fyrsta og ekki í síðasta skiptið hafa Microsoft menn treyst á hugmyndaflug annarra til að koma með eitthvað nýtt á boðstólinn.
Að þessu sinni er það Skymarket, netverslun fyrir farsímaforrit. Skymarket mun virka nokkuð svipað Apple iPhone AppStore og App Market fyrir Android stýrikerfi Google. Verður búðinni komið á þegar Windows Mobile 7 kemur árið 2009. Greinilegt er nú að mikil samkeppni mun eiga sér stað milli Apple og Microsoft til þess að fá framleiðendur hugbúnaðar á sitt band og bjóða þeim betri kjör en hinn aðilinn.

Í dag, föstudaginn 27. júní 2008, mun Bill Gates hætta störfum hjá Microsoft eftir að hafa stofnað og verið hjá fyrirtækinu síðastliðin 33 ár.
Bill Gates er án efa einn áhrifaríkasti maður tækniheimsins og þrátt fyrir hatur margra gagnvart Microsoft og vörum þess, þá verður að segjast að án Microsoft væri líklegast Apple ekki í þeirri mynd sem það er nú. Samkeppnin er holl og ekki má gleyma að Microsoft bjargaði Apple að stórum hluta þegar Steve Jobs sannfærði Gates um að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu á ákveðnu gengi árið 1997.
Við kveðjum því Bill Gates og þökkum samkeppnina (og hugsanlega Xbox 360)..
Maðurinn er þó ekki algjörlega horfinn af sjónarsviðinu því hann mun áfram vera stærsti hluthafi Microsoft ásamt því að vera stjórnarformaður fyrirtækisins.
Til gamans má geta gegnir Steve Ballmer hlutverki sem forstjóri Microsoft í dag.
Hér er kveðja frá Joy of Tech.