Horfið á Keynote 2009

Jæja, þá er það loks komið á netið:

Smellið hér.

Ný 17″ MacBook Pro, iLife 09′ og iWork 09′ kynnt á Macworld

features17-display20090106.jpg

Rétt í þessu lauk Phil Schiller kynningu sinni á Macworld 2009. Satt að segja áttu flestir von á meiru á kynningunni s.s. nýrri Mac mini og jafnvel uppfærslu á iMac.

17″ MacBook Pro

Apple kynntu nýja 17″ MBP með sama útliti og núverandi 15″ vél. Á tölvunni er 1900×1200 LED upplýstur skjár, með 700:1 contrast ratio og stærra litsviði. Einnig er boðið uppá valmöguleikann á því að hafa skjáinn mattann fyrir $50. Ekki voru miklar uppfærslur á “standard” vélbúnaðinum aðrar en þær tölvurnar koma nú með innbyggðu batteríi sem endist í allt að 8 klst og 1000 hleðslur. Hægt er að velja um fjölda uppfærslna á vélinni en án allra auka endurbóta kostar hún $2799.

overview_hero1_image20090106.pngiLife 09′

iPhoto: Tvær nýjar leiðir kynntar til þess að flokka myndir, Faces og Places. Einnig er nú hægt að setja myndir beint úr iPhoto yfir á facebook eða flickr auk fjölda annarra nýjunga.

iMovie: Gerir nú fólki kleyft að búa til myndbönd á fljótlegan og einfaldan hátt en auðveldara er að klippa myndskeið sem aldrei fyrr. Einnig hefur verið bætt við alls kyns sniðugum effektum auk þess að forritið minnkar nú hristing á myndavélinni.

GarageBand: Helstu nýjungar eru þær að nú getur fólk lært að spila sín uppáhalds lög í gegnum forritið.

iLife 09′ mun koma út í janúar fyrir $79.

overview_hero1_image20090106-1.png

iWork 09′

Keynote: Forritið gert enn betra með alls konar nýjum effektum, auk þess að hægt verður að nota iPhone eða iPod touch sem fjarstýringu.

Pages: Núna getur fólk unnið skjölin sín í full-screen og með nýjum valmyndum. Einnig var stuðningi fyrir MathType 6 bætt við.

Numbers: Formúluskrif gerð einfaldari með nýjum formúluvafra auk fleiri möguleika á dálkauppsetningu.

iWork.com var kynnt til sögunnar en það gerir notendum kleyft að vinna skjöl og deila með öðrum á netinu.
iWork 09′ er komið út fyrir $79 en einnig verður hægt að kaupa það á $49 með nýrri Apple vél.

iTunes
Í dag munu 8 af 10 milljónum laga í iTunes Store verða DRM laus í gegnum iTunes Plus og í mars munu þær tvær milljónir sem eftir eru einnig verða það. Eigendur iPhone 3G munu nú geta náð í lög yfir 3G net í stað einungis Wi-Fi. Að lokum munu svo Apple breyta verðlagningu sinni á lögum í iTS sem hefst í apríl. Lögin verða á þá 69 cent, 99 cent eða $1.29.

Fylgist með Apple kynningunni í dag

ZZ0A8919D7.jpg

Nú fer að styttast í að Phil Schiller stigi svið og kynnir ferskar vörur frá Cupertino og að vana hafa ýmsar getgátur farið fram á netinu hvað verður kynnt.

Kynning hefst í dag kl. 17:00 á íslenskum tíma.

Til að fylgjast með þessari síðustu kynningu Apple á Macworld mælum við með eftirfarandi:

Því miður er einungis hægt að fylgjast með í beinni á textaformi ásamt ljósmyndum, en ef notendur vilja sjá sjálfa kynninguna er vaninn að hún fari á heimasíðu Apple.com seinna um kvöldið. Fylgist með á Maclantic.

Samantekt á íslensku verður svo send inn á forsíðuna okkar í kvöld.

Góða skemmtun!

Myndir frá Macworld (Maclantic á MacBook Air)

Snillingurinn Jón Helgi hefur sent okkur mynd frá Macworld:

photo1.jpg

  • Fleiri myndir af MacBook Air
  • Myndir af Time Capsule
  • MacBook Air SuperDrive



  • Auglýsingar

    Maclantic á Facebook

    Kommentið á Engadget:

    The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

    Joy of Tech

    Nýjasta Joy of Tech!