Formáli
Apple hélt blaðamannafund í gær þar sem rætt var um loftnetsvandamál á iPhone 4 og öðrum símum.
Í stuttu máli var sagt að allir GSM símar í dag væru með svipað vandamál (líka eldri gerðir af iPhone), að þeim þætti mjög vænt um viðskiptavini sína, að þeir myndu gefa ókeypis hulstur fyrir þá sem vilja þegar iPhone 4 er keyptur eða 100% endurgreiðslu.

Einnig var þessi síða stofnuð: http://apple.com/antenna/
Mæli með að hafa skoðað fyrrnefndu síðu og einnig að hafa lesið þessa frétt áður en grein mín er lesin: MacRumors: Apple to Offer Free Cases for iPhone 4 Customers.
Staðsetning

Ég er staddur í S-Þýskalandi, við Alpafjöllin, þar sem mikið er um hóla og hæðir í þessu undurfagra strjálbýla svæði. GSM sambandið hér er bæði mjög lélegt og sums staðar mjög gott, en það fer alveg eftir því hvort maður er uppi á hóli, milli hóla og fjalla eða einfaldlega í stórum og dimmum skógi.
Því fannst mér kjörið að nota tækifærið og aðstæðurnar og prófa nýja iPhone 4 símann minn ásamt iPhone 3G (sem er því miður farinn að líta út eins og gamall Nokia sími við hliðina á iPhone 4).
Ég ákvað að taka mér dágóðan göngutúr þar sem gengið var upp á fjöll, niður í drungalega og dimma skóga, og opin svæði þar sem kýrnar bauluðu og flugurnar æstar í að fá sér sopa af fersku íslensku blóði með ívafi af þýskum bjór.
(meira …)
Skrifað í flokkinn: Maclantic, iPhone
11 athugasemdir / Skrifa athugasemd
Þar sem Steve Jobs hefur verið ansi glaður á að svara tölvupósti frá Apple-notendum síðastliðna mánuði (og staðfest það í viðtali á All Things Digital) þá ákvað ég að senda stutta línu á kappann í gær.
Í þetta skipti spurði ég einfaldlega af hverju Keynote væri ekki lengur sent út í beinni á netinu, eins og áður var gert. Ég vildi deila þessu með ykkur þar sem einmitt margir hafa pirrað sig á þessu síðastliðin ár og líka vegna þess að WWDC er í dag.
Svar hans var hnitmiðað að vana:

Skrifað í flokkinn: Maclantic, Steve Jobs, Uppákomur
11 athugasemdir / Skrifa athugasemd
Þar sem sumir hafa ekki getað notað spjallvefinn í dag er hægt að leysa það á mjög einfaldan máta:
Ef upp kemur villa þegar þú ferð inn á spjallið skaltu smella á „Aftengjast“ og skrá þig svo aftur inn.
Skrifað í flokkinn: Maclantic
Skrifa athugasemd
Það fer að styttast í kynninguna hjá Apple sem verðu haldin 27. janúar, eða eftir sex daga.
Nokkuð víst er að nýtt tæki verður kynnt til sögunnar samkvæmt heimildum, en svo kemur ýmist annað til greina eins og iPhone OS 4.0, iLife ‘10 með meiru.
Taktu endilega þátt í könnuninni í reitnum „Við spyrjum“ hér til hliðar ->
Skrifað í flokkinn: Maclantic
8 athugasemdir / Skrifa athugasemd
24. desember 2009 | Bjöggi
| Senda á Facebook

Maclantic óskar lesendum og notendum sínum gleðilegra jóla og þakkar allar góðu, skemmtilegu, pólítísku og áhugaverðu umræður sem skapast hafa á spjallvefnum á þessu ári.
Eplaárið í ár hefur verið nokkuð gott með tilkomu iPhone 3GS, endurhannaðri og öflugari MacBook, glæsilegum nýjum iMökkum ásamt mörgu fleira (hvar er nýja Apple TV og iTablet?).
Vonandi fá sem flestir harða Apple-pakka í jólagjöf í ár.
Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar!
Jólakveðjur,
Björgvin Björgvinsson
Stofnandi Maclantic.is
Skrifað í flokkinn: Maclantic
7 athugasemdir / Skrifa athugasemd
16. desember 2009 | Bjöggi
| Senda á Facebook
Vegna bilunar liggur spjallsvæðið niðri. Ekki er vitað hvað veldur því, en verið er að skoða það í þessum skrifuðum orðum.
Læt ykkur vita þegar þetta hefur verið lagað.
Kv.
Bjöggi
Uppfærsla: Up and running…
Uppfærsla 2: Ekki lengur…
Uppfærsla 3: Virkar. Afsaka biðina.
Skrifað í flokkinn: Maclantic
26 athugasemdir / Skrifa athugasemd
22. nóvember 2009 | Bjöggi
| Senda á Facebook
Vegna aukinnar eftirspurnar hef ég ákveðið að bjóða notendum að kaupa iTunes kort í gegnum Maclantic.
Það hefur komið í ljós að margir hafa lent í miklum vandræðum vegna svika á iTunes kortum í gegnum tíðina og hef ég því ákveðið að bjóða upp á þessa þjónustu fyrir notendur Maclantic.
Um er að ræða 100% lögleg kort sem keypt eru í Bandaríkjunum og fær fólk afhent mynd af kortinu ásamt kóða.
$50 iTunes kort verða til boða og kosta þau $60 stykkið.
Íslendingar hafa hingað til getað keypt sér 100% lögleg kort frá t.d. Maximuscards.com. Lesendur verða að gera sér grein fyrir því að innkaupaverðið á kortunum er það sama og andvirði þeirra. Ýmis færslugjöld koma frá Paypal. Einnig tekur vinur minn 50% af hagnaði fyrir umstangið. Með því að versla hér getið þið því verið 100% örugg um að kortin séu lögleg og – þið styrkið Maclantic samfélagið í leiðinni.
Eitt mjög mikilvægt atriði:
Aðgangur getur verið lokaður vegna fyrri kaupa viðkomandi aðila af ólöglegum kortum (hugsanlega án ykkar vitneskju). Þess vegna ráðlegg ég ykkur að stofna nýjan aðgang nema þið séuð 100% viss um að fyrri viðskipti ykkar á núverandi aðgangi hafi verið byggð á 100% löglegum iTunes kortum. Leiðbeiningar um hvernig stofna skal nýjan aðgang fylgir hverju keyptu korti.
Nánar um afgreiðslu korta og skilmála má nálgast hér:
Skrifað í flokkinn: Maclantic, iTunes
2 athugasemdir / Skrifa athugasemd
27. febrúar 2009 | Bjöggi
| Senda á Facebook
Eftir mikla erfiðleika er Maclantic nú loksins flutt til Íslands og þar af leiðandi er nýja slóðin .IS
Við biðjumst velvirðingar á töfinni sem varð í dag, en vegna óhjákvæmilegra breytinga hjá fyrri hýsingaraðila féll Maclantic.com skyndilega niður án viðvörunar.
Maclantic.is er nú loks komið á góðan stað og vil ég nota tækifærið og þakka 1984.is fyrir frábæra þjónustu og þá sérstaklega Helga (sem þið þekkið best sem „harabanar“ á spjallinu) fyrir alla hjálpina.
Kveðja,
Bjöggi
PS. Ef þið rekist á villur eða hafið einhverjar athugasemdir vinsamlegast hafið samband við mig, takk.
PPS. Munið að breyta bókamerkjum í Maclantic.is þar sem .com verður lokað á næstunni!
Skrifað í flokkinn: Maclantic
Skrifa athugasemd
27. febrúar 2009 | Bjöggi
| Senda á Facebook
Þeir heppnu sem gáfu bestu ástæðu fyrir því að þeir ættu að fá Things for Mac voru Bragi Bergþórsson og Freyr Ómarsson.
Hér eru ástæður Braga:
Mér finnst að ég eigi að fá eintak af Things vegna þess að það myndi hjálpa mér að vera ekki alltaf svona djöfulli mikill sauður. Getur maður verið sauður að eilífu? Ég held ekki.
Ég gæti td. verið búinn að leggja á minnið og kortleggja leið mína að heimsfrægð, verið búinn að búa til skipulag um hvernig ég geti dreift gjafakaupum handa konunni, sett upp heilsteypta dagskrá fyrir bleijuskiptingar á barninu, munað eftir því að fara í heimsókn til afa og ömmu og síðast (af upptöldum atriðum) en ekki síst verið fáránlega þakklátur fyrir svona geðveikt forrit.
Ég held ég geti bara ekki verið án Things.
…og Freys:
Ég hef alltaf átt í vandræðum með að skipuleggja minn tíma. Hef verið talin frekar óskipulagður maður og ávallt gengið eftir því, þ.e. hef oft misst sjónar á verkefnum og þ.a.l af lestinni líka. Núna er ég á fyrsta ári í háskóla og einnig að stofna sprotafyrirtæki og því nauðsynlegt að skipuleggja tímann vel eins og flestir vita. Byrjaði á að skrifa niður í venjulega dagbók þau dagsverk sem þurfti að koma af stað en náði aldrei að fylgja því eftir almennilega. Síðan rakst ég á Things eftir að hafa lesið um það á Maclantic og náði í mér í prufuútgáfu.
Ég var undrandi á því hversu þægilegt og auðvelt er að nota þetta forrit. Þetta hjálpaði mér að koma verkefnum í gang og fylgja þeim fast á eftir. Eftir viku var ég búinn að koma öllu því í verk sem ég planaði í byrjun og er þetta fyrsta forritið sem ég hef virkilega verið ánægður með hvað varðar GTD.
Þar sem þetta forrit er orðið nauðsynlegur partur af mínu lífi bæði hvað varðar skóla og vinnu er ég kominn í smá klípu þar sem ég hef ekki nægilega mikla aura til þess að fjárfesta í þessu verkefni. Því tel ég mig vera verðugan vinningshafa í þessari keppni hjá ykkur.
Til hamingju með vinninginn strákar! Njótið vel.
Skrifað í flokkinn: Forrit, Maclantic
1 athugasemd / Skrifa athugasemd
Það var mjög strembið að velja réttan aðila, en mér barst yfir þriðja tug skeyta og voru þar flestallir með mjög sannfærandi rök fyrir því að það ætti skilið að fá Things í boði Maclantic og Cultured Code.
En því miður þá var einungis hægt að velja einn notanda og sá heppni er Daníel Frímannsson!
Ég ætla að leyfa mér að birta skeytið frá Daníel:
Góðan og blessaðan daginn,
Ég heiti Daníel Frímannsson og var að klára doktorsnámið mitt í efnafræði þar sem ég var að þróa ljósvirkt krabbameinslyf.
Í gegnum þau fjögur ár sem námið tók, þá var ég alltaf að leita að öflugu forriti sem gæti hjálpað mér að skipuleggja mig betur (betur þá meina ég í staðinn fyrir post-it miða sem hanga á ísskápnum og um herbergið mitt). Því miður, þá hef ég ekki haft nógan pening á milli handana til að kaupa þetta forrit en þegar ég náði í prufuútgáfuna varð ég mjög hrifinn af því sem ég sá.
Í stuttu máli þá myndi þetta forrit hjálpa mér gífurlega í skipulagningu við nýdoktorsstöðuna sem ég er í núna. Staðan felur í sér kennslu, eintómir fundir og ráðstefnur, deadlines. Þar að auki eru skipulagning á vinnunni, hvað á að gera á hverjum degi.
Að auki yrði þetta húrrandi hjálp við fjárhag stúdents í útlöndum.
Til hamingju Daníel! Þín bíður póstur með ókeypis útgáfu af Things for Mac.
Skrifað í flokkinn: Forrit, Maclantic
8 athugasemdir / Skrifa athugasemd