Eftir að hafa kynnt skemmtilega eiginleika í iLife ‘11 og nýja Mac OS X Lion steig Steve Jobs á svið og kom með hin fleygu orð: „One more thing…“.
Algjörlega endurhönnuð MacBook Air var kynnt til sögunnar. Með nýjan verðmiða og kynþokkafyllri en nokkru sinni fyrr.
Aðeins 1kg og með 11,6″ skjá og hærri upplausn en 13,3″ MacBook/Pro! 5-7 klst rafhlöðuendingu og flash-minni. Enginn SSD-diskur lengur vegna plássleysis. Standby tími 30 dagar. Betra gerist það ekki, eða hvað? Jú… aðeins $999.
Örgjörvinn í nýju vélinni er Core 2 Duo eins og við þekkjum nokkuð vel. En hraðinn er þó kannski ekki beint til að hrópa húrra yfir, 1,4GHz í minnstu gerðinni (hægt að sérpanta með 1,6GHz örgjörva) sem er meira en nóg fyrir þá sem eru í almennri vinnslu (ritvinnslu, netinu, hlusta á tónlist o.þ.h).
Stærri gerð fæst einnig með 13″ skjá og virkilega góðri upplausn: 1440×900 – sú sama og fyrirfinnst í 15″ MacBook Pro! Stærri gerðin hefur að geyma 1,86GHz Core 2 Duo (hægt að sérpanta með 2,13GHz) og stærra flash-minni. Þessi vél hentar þeim sem vilja MacBook án geisladrifs, ef svo má orða það… nema að hún er mun hraðvirkari að sækja gögn og opna forrit og með 7 klst rafhlöðuendingu. Verðmiðinn er þó aðeins hærri: $1299, $100 hærri en ódýrasta MacBook Pro.
Allar gerðir hafa 2GB DDR3 (1066MHz) sem er stækkanlegt í 4GB. Geymsluplássið er ágætt, frá 64GB í ódýrustu gerðinni í allt að 256GB í stærri gerðunum.
Öfluga skjástýringu er að finna í nýju MacBook Air; NVIDIA GeForce 320M.
Það má segja að MacBook Air hefur tekið allt aðra stefnu og gefur okkur innsýn í hvað við munum sjá í framtíðinni frá Apple: notkun á flash-minni í stað SSD diska, þynnri og léttari vélar án geisladrifs, hærri upplausn í smærri skjám en áður hefur þekkst (undantekning: iPhone 4), og meiri áhersla á lengri rafhlöðuendingu.
MacBook Air er bara rétt byrjunin á stefnu Apple inní fartölvumarkaðinn.



Byltingarkennd grafíktækni frá NVIDIA var einnig kynnt. Um er að ræða samnýtt skjákort með heitið 9400M sem gefur allt að 500% betri afköst en Intel tæknin. Þessi tækni verður flutt í allar fartölvurnar, þ.e. MacBook, MacBook Air og MacBook Pro. Hin síðastnefnda fær þar að auki NVIDIA 9600M sem er sjálfstætt kort með allt að 512MB skjáminni, en tölvan skiptir sjálfkrafa yfir í öflugra skjákortið þegar þess þarf. Þetta sparar líftíma rafhlöðu til muna.




Apple hefur gefið út uppfærslu fyrir MacBook Air notendur sem á að endurbæta vídeó afspilun og koma í veg fyrir að aðeins annar kjarninn starfi við vissar aðstæður.
Apple hefur lækkað verðið á MacBook Air með 64GB SSD flash-drifi úr $3098 í $2598, en lækkunin nemur um 24%.







The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.