Endurhönnuð MacBook kynnt

Screen shot 2009-10-20 at 9.28.34 PM

Auk nýs iMac kynnti Apple í dag endurhannaða MacBook. Tölvan er hvít eins og áður með nýrri polyarbonate unibody hönnun, LED baklýstum skjá, 7 tíma batterílífi og gler trackpad eins og á MacBook Pro. Plastið í tölvunni á að hrinda frá sér óhreinindum en einnig er nýtt undirlag á henni sem á að koma í veg fyrir að hún renni til.

Screen shot 2009-10-20 at 9.28.55 PM

Í vélinni er 2.26 GHz Core 2 Duo örgjörvi, 2GB í vinnsluminni (hægt að auka í 4GB), NVIDIA 9400M skjástýring, 250GB harður diskur og SuperDrive. Mun hún fást fyrir $999.

Ný iMac og MacBook fyrir hátíðarnar?

imac_macbook_rumor_2009

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá AppleInsider er talið að nýr iMac verði kynntur fyrir jólin með SD-kortarauf, jafnvel fjögurra-kjarna örgjörva og endurhannaðri mús.

Þar að auki er talið að MacBook verði uppfærð með lægsta verðmiða í sögu fyrirtækisins.

Gæta skal að um orðróm er að ræða, en við vonum þó að hann sé réttur að einhverju leyti!

Heimildir:
Next-Generation iMac With SD Slot, Quad-Core, Possible Xeon? New Mouse and Remote in Pipeline?
MacBook Update to Be Released Alongside New iMacs?
Next-Generation iMacs Already in Production?

MacBook touch í október?

Samkvæmt heimildum China Times mun Apple gefa út „netbók“ með snertiskjá í október á þessu ár og er verðið sagt vera í kringum 800 USD.

Although there are many reports that highlight the new iPhone debut during the last month as well as Steve Jobs’ return, Jobs will not face any new product shortage, at least not for this year. Taiwan’s high-tech supply chain companies said Apple will debut its first netbook in October; Apple will pose itself to tackle the Christmas shopping season. Three corporations – Foxconn, Wintek, Dynapack have received direct orders from Apple. (Wintek will be producing touch screens and providing relevant technologies for Apple.) In addition, some supply chain companies have privately confirmed deals related to netbooks (Direct quote: “台灣科技供應鏈廠商透露,蘋果小筆電將於10月登場”).

During the past several years, there have been countless rumors about Apple competing the netbook market, but this year, Apple formally finalized orders for netbooks. According to past patterns, Apple normally holds news conference showcasing new products in October, announcing new products for the upcoming shopping season. Last year, for example, new Macbooks (and upgrades) were announced…

According to reliable information, Apple will not follow the current market trend (by producing netbooks with screens about 10.2 or 10.1 inches in diagonal length.) Instead, Apple will produce screens with about 9.7 inches in diagonal length. Touch screen will be installed. Wintek will be the main manufacturer of the touch screen.

In addition, although most of Foxconn’s Macbook orders were gobbled up by Quanta due to fierce competition between the two corporations, Foxconn will be the main manufacture for Apple’s new netbooks, since Foxconn cooperated with Apple on designing and ultimately manufacturing iPhone.

Because Apple will adopt touch screen technology on its netbooks, Apple will not target low-end consumers, avoiding direct competition with Acer, Asus, as well as their less-than-500-dollars netbooks. Apple’s netbook (or a “tablet” as many call it,) will probably be sold at around $800 USD each.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem orðrómur af þessu tagi fer á netið, en kannski eru heimildirnar áreiðanlegar í þetta sinn? Verður gaman að sjá…

forums.macrumors.com

Apple uppfærir hvítu MacBook í 2,13GHz

product-white-legacyHvíta MacBook tölvan frá Apple fæst nú með öflugri örgjörva, 2,13GHz í stað 2GHz, og stærri disk, 160GB í stað 120GB. Verð er óbreytt.

Samkvæmt þessu er ódýrasta fartölvan frá Apple með hraðvirkari örgjörva og jafn stórt geymslupláss og nýja ál-vélin, en augljóslega mun ódýrari. Munurinn á þeim liggur þá enn í að sú dýrari er úr áli, þynnri, léttari, sterkbyggðari, með hraðvirkari kerfisbraut og hraðvirkara vinnsluminni.

Það má spyrja sig hvort Apple sé að fara að uppfæra vélarnar sínar á næstunni eða einfaldlega hætta með milligerðina. Kemur í ljós.

store.apple.com

Apple uppfærir ódýrustu gerðina af MacBook

ZZ53810853.jpg
Í dag hefur Apple uppfært ódýrustu gerðina af MacBook (hvít/plast) með eftirfarandi breytingum:

  • Nýr 2,0GHz Core 2 Duo með 1066MHz brautarhraða
    • áður eldri 2,1GHz með 866MHz brautarhraða
  • 2GB DDR II vinnsluminni
    • áður 1GB DDR II
  • NVIDIA 9400M skjástýringu með 256MB minni
    • áður Intel X3100 skjástýring með 144MB minni
  • Bluetooth 2.1
    • áður Bluetooth 2.0

Nýr MacBook eigandi? Ekki fjarlægja rafhlöðuna…

Komið hefur í ljós að nýju MacBook og MacBook Pro fartölvurnar hægi töluvert á sér sé rafhlaðan fjarlægð og einungis tengdar við spennugjafa.

Prófanir, framkvæmdar af Electronista, gefa þær niðurstöður að örgjörvinn hægi það mikið á sér að einungis 63% af afli hans er nýttur.

Ástæðan er sú að spennubreytirinn nær ekki að sinna orkuþörfum tölvunnar sem gæti leitt til þess að hún hreinlega slökkvi á sér. Því sé óumflýjanlegt að minnka afl tölvunnar verulega (um 37% skv prófunum) undir þessum kringumstæðum.

Því er tvímælalaust mælt með að eigendur nýrra MacBook tölva noti tölvurnar með rafhlöðu þegar hún er tengd við rafmagn.

Yfirlýsing frá Apple
Mælingar Electronista

Apple kynnir nýjar MacBook, MacBook Pro og uppfærða MacBook Air

ZZ68A981D1.jpg

Í dag hefur Apple kynnt til sögunnar endurhannaðar MacBook og MacBook Pro með sama strúktúr og í MacBook Air. Tölvurnar eru þ.a.l. mun þægilegri, sterkari, einfaldari og úr ál. Lítið mál er að nálgast harðan disk tölvunnar og skipta út vinnsluminni.

Þar að auki hafa allar tölvurnar háglansskjá með LED baklýsingu. Þetta gerir skjáinn mun bjartari og endingarbetri.

ZZ43F29637.jpgByltingarkennd grafíktækni frá NVIDIA var einnig kynnt. Um er að ræða samnýtt skjákort með heitið 9400M sem gefur allt að 500% betri afköst en Intel tæknin. Þessi tækni verður flutt í allar fartölvurnar, þ.e. MacBook, MacBook Air og MacBook Pro. Hin síðastnefnda fær þar að auki NVIDIA 9600M sem er sjálfstætt kort með allt að 512MB skjáminni, en tölvan skiptir sjálfkrafa yfir í öflugra skjákortið þegar þess þarf. Þetta sparar líftíma rafhlöðu til muna.

Allar MacBook (MacBook, Pro og Air) línurnar fá nýtt tengi sem kallast „Mini Display Port“ en það er opinn staðall og styður DVI, Dual-link DVI og VGA. Þetta einfaldar mjög mikið fyrir notendum og gerir þeim kleift að kaupa tengi sín ekki bara frá Apple heldur öðrum framleiðendum.

ZZ26E412FB.jpg

Nýr snertiflötur er komin á MacBook og MacBook Pro sem er með „multitouch“ tækni og hefur hinn hefðbundni hnappur verið fjarlægður. Yfirborð snertiflatarins er úr gleri og því þægilegra fyrir fingurna (mýkra). Nú er t.d. hægt að skipta á milli forrita með því að nota fjóra fingur.

Öll tengi eru nú á vinstri hlið MacBook Pro (eins og á MacBook) og nýr hnappur á báðum línum sem segir til um hleðslu á rafhlöðu. Geisladrif er þá komið hægra megin á MB Pro eins og á MacBook.

Hér eru nánari tæknilegar upplýsingar um vörurnar (örgjörvi, vinnsluminni osfrv.)

MacBook

ZZ7250FC1D.jpg

$999 – Gamla gerðin

  1. Eldra útlit / plast / hvít
  2. 2.1GHz Core 2 Duo
  3. 1GB vinnsluminni
  4. 120GB HDD
  5. Superdrive
  6. Intel GMA X3100


$1299 – Ný/ál

  1. 2.0GHz Intel Core 2 Duo
  2. 2GB (tveir 1GB SO-DIMMs) – 1066MHz DDR3 SDRAM (PC3-8500); allt að 4GB
  3. 160GB SATA diskur (5400 rpm)
  4. 8x SuperDrive
  5. NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
  6. 2 USB tengi, Gbit Ethernet, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)


$1499 – Ný/ál

  1. 2.4GHz Intel Core 2 Duo
  2. 2GB (tveir 1GB SO-DIMMs) – 1066MHz DDR3 SDRAM (PC3-8500); allt að 4GB
  3. 250GB SATA diskur (5400 rpm)
  4. 8x SuperDrive
  5. NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
  6. 2 USB tengi, Gbit Ethernet, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)

MacBook Pro

ZZ7096FDD1.png

$1999 – Ný/ál

  1. 2.4GHz Intel Core 2 Duo (3MB L2 Cache)
  2. 2GB (tveir 1GB SO-DIMMs) – 1066MHz DDR3 SDRAM (PC3-8500); allt að 4GB
  3. 250GB SATA diskur (5400 rpm)
  4. 8x SuperDrive
  5. NVIDIA GeForce 9400M graphics processor
  6. NVIDIA GeForce 9600M GT með sjálfstæðu 256MB skjáminni
  7. Eitt FW800 tengi, 2 USB tengi, Gbit Ethernet, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)


$2499 – Ný/ál

  1. 2.53GHz Intel Core 2 Duo (6MB L2 Cache)
  2. 4GB (tveir 2GB SO-DIMMs) – 1066MHz DDR3 SDRAM (PC3-8500)
  3. 320GB SATA diskur (5400 rpm)
  4. 8x SuperDrive
  5. NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
  6. NVIDIA GeForce 9600M GT graphics processor (512MB)
  7. Eitt FW800 tengi, 2 USB tengi, Gbit Ethernet, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)


$2799 – Gamla gerðin

  1. 2.5GHz Intel Core 2 Duo
  2. 4GB (tvö 2GB SO-DIMMs)
  3. 320GB SATA diskur (5400 rpm)
  4. Skjár með 1920×1200 upplausn
  5. 8x SuperDrive
  6. NVIDIA GeForce 8800 512MB

MacBook Air

ZZ1F06D400.png

$1799 – Uppfærð

  1. 1.6GHz Intel Core 2 Duo
  2. 2GB of 1066MHz DDR3 SDRAM onboard
  3. 120GB SATA diskur (4200 rpm)
  4. NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
  5. Eitt USB tengi, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)



$2499 – Uppfærð

  1. 1.86GHz Intel Core 2 Duo
  2. 2GB of 1066MHz DDR3 SDRAM onboard
  3. 128GB SSD diskur
  4. NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
  5. Eitt USB tengi, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)

Nánari upplýsingar á Apple.com.

Nýjar MacBook með öflugara skjákorti

Eins og hefur komið fram áður þá verður stór fartölvukynning hjá Apple í dag og hefur ýmislegt lekið út frá Silicon Valley á síðustu dögum.

Í fyrri frétt er greint frá ýmsum spennandi uppfærslum á MacBook Pro en minna er vitað um MacBook – allavega hefur engin mynd farið út á netið eins og stendur.

Nýju vélarnar verða til í þremur gerðum eins og er í dag, en gera má ráð fyrir að ódýrasta gerðin verður tiltölulega ódýrari. Telja má að verðið á henni verði $899 eða $999 í stað $1099. Ódýrasta gerðin mun þá vera nánast óbreytt hvað varðar fídusa.

Stærri gerðirnar, $1299 og $1499, munu hafa 2,0GHz og 2,4GHz örgjörva ásamt 160GB og 250GB HDD. Báðar vélar verða með 2GB vinnsluminni.

Mikilvægasti hluturinn í þeirri uppfærslu verður ekki bara útlitsbreytingar heldur einnig að skjákortið verður mun öflugara heldur en það er í dag, en MacBook hefur þurft að sæta mikilli gagnrýni fyrir skjákort þess. Um er að ræða NVIDIA 9400M.

MacBook á $799?

Samkvæmt nýjasta orðróm er talið að Apple muni til með að kynna nýjar MacBook og MacBook Pro á næstunni.

Þar að auki er hugsanlegt að verðlækkun verði á MacBook fartölvunum og það hefur heyrst frá Silicon Valley að fyrirtækið mun kynna MacBook á aðeins $799.

Þetta eru ekkert nema bjartar fréttir og ætti að vera skref til þess að geta haldið áfram vaxandi viðskiptum Apple ef hugsað er um vandamál í fjármálamarkaðinum í dag.

MacRumors.com

Getgátur um nýtt útlit MacBóka

macb.jpg

Eins og allt bendir til er Apple að fara koma með nýjar fartölvulínur fyrir jólin. Nákvæm tímasetning er ekki enn komin en hægt er að búast við nýjum vörum í október.

AppleInsider segir í dag frá því að fólk sem hafi séð nýju MacBook og MacBook Pro tölvurnar, segir að þær séu með nýju og sameinuðu útlitit. Munu línurnar tvær vera báðar úr áli og getgátur eru um að hönnunin verði einhvers konar sambland af MacBook Air og núverandi iMac.

Ath. að myndin er einungis “mockup” og fylgir með til gamans.




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!