Apple kynnir 12-kjarna Mac Pro

Eftir ýmsar skemmtilegar nýjungar í dag (m.a. Magic Trackpad, nýjan iMac og 27″ LED Cinema Display) hefur Apple þar að auki kynnt nýja Mac Pro.

Nýja gerðin af Mac Pro er fáanleg með 4, 6, 8 eða 12 kjörnum. Þar að auki fylgir mun öflugra skjákort með vélunum: ATI Radeon HD 5770 með 1GB GDDR5. Hægt er að uppfæra það í ATI Radeon HD 5870.

Allar gerðir hafa tvö Mini DisplayPort skjátengi og eitt dual-link DVI tengi. Önnur tengi hafa að öðru leyti ekki breyst.

Einnig er hægt að panta Mac Pro vélarnar með allt að fjórum 512GB SSD-diskum, en gera má ráð fyrir að slík uppfærsla sé mjög kostnaðarsöm.

Dæmi um verð á nýju Mac Pro:

$2499: einn 4-kjarna 2,8GHz / 3GB vinnsluminni / 1TB HD
$3499: tveir 4-kjarna 2,4GHz / 6GB vinnsluminni / 1TB HD
$4999: 12-kjarna / 6GB vinnsluminni / 1TB HD

Nýja Mac Pro verður fáanleg í ágúst í Bandaríkjunum

Nýjar Apple vörur í dag?

Samkvæmt orðróm er talið að Apple muni uppfæra iMac- og Mac Pro-línu sína í dag. Einnig er talið að nýir Cinema skjáir með LED-baklýsingu verði kynntir til sögunnar.

Mac Pro línan frá Apple hefur ekki verið uppfærð síðan í mars í fyrra og síðasta Cinema Display línan var gefin út 2008 (í millitíðinni var 24″ LED Cinema Display kynntur).

Þar að auki er talað um nýtt fjölsnertitæki frá Apple sem mun heita „Magic Trackpad“.

Þriðjudagur er dagur nýrra vara hjá Apple og því verður gaman að sjá hvort við fáum að sjá nýjar og spennandi vörur í dag.

Heimild

Nýi iMac gerir lítið úr Mac Pro

performance_hero_20091020

Nýja iMac línan frá Apple stendur sig virkilega vel ef marka má hraðaprófanir.

Macworld hefur prófað alla línuna og sýnir Mac Pro og eldri iMac til viðmiðunar á hraða þeirra.

iMac með Quad-Core i5 eða i7 er virkilega orðinn fýsilegur kostur fyrir atvinnumenn og kröfuharða notendur.

Lesið grein Macworld hér.

143970-quadcoreimac1009chart_original

Bluetooth vandamál í nýju Mac Pro?

bluetoothFréttir herma að nýju Mac Pro tölvurnar beri með sér galla sem tengist Bluetooth. Vandamálið lýsir sér svo að þegar Bluetooth tæki eru tengd við tölvuna slekkur hún á sér án viðvörunar.

Eins og stendur hefur Apple enga lausn á vandanum nema að slökkva á Bluetooth. Að öllum líkindum verður þetta leyst með fastbúnaðar- og/eða hugbúnaðaruppfærslu á næstunni.

Hafa íslenskir Mac Pro (2009) eigendur lent í þessu?

Mikilvæg atriði varðandi nýju vélarnar – uppfært

mac_early_2009

Margar og miklar uppfærslur voru í dag kynntar á Mac mini, iMac og Mac Pro eins og margir hafa tekið eftir.

Nokkra áhugaverða punkta er vert að nefna hvað varðar breytingarnar, en ekki hefur einungis innihaldið breyst heldur uppfærslumöguleikar hvað vinnsluminni varðar og ýmsir fylgihlutir eins og Apple Remote hættir að fylgja með.

Blátt+ (til hins betra)
Rautt = - (afturför/mætti bæta)

(meira …)

Nýr og öflugri Mac Pro kynntur

macpro-090303-1

Í dag kynnti Apple nýjar Mac Pro vélar með hinum nýja Intel Xenon Nehalem örgjörva. Nýju vélarnar eru nú með allt að tvöfalt betri vinnslu en áður og eru fáanlegar með bestu skjákortum sem Apple hefur boðið uppá. Skjákortin sem um ræðir eru 512MB NVIDIA GeForce GT 120 og 512MB ATI Radeon HD 4870, en hægt er að hafa allt að fjögur NVIDIA kort í vélinni. Vélarnar koma í 2 stöðluðum gerðum en það er hægt að sérpanta vél sem fyrr.  Stöðluðu gerðirnar eru eftirfarandi:

Quad-core á $2,499:

  • one 2.66 GHz Quad-Core Intel Xeon 3500 series processors with 8MB of L3 cache
  • 3GB of 1066 MHz DDR3 ECC SDRAM memory, expandable up to 8GB
  • NVIDIA GeForce GT 120 graphics with 512MB of GDDR3 memory
  • 640GB Serial ATA 3GB/s hard drive running at 7200 rpm
  • 18x SuperDrive with double-layer support (DVD+/-R DL/DVD+/-RW/CD-RW)
  • Mini DisplayPort and DVI (dual-link) for video output (adapters sold separately)
  • four PCI Express 2.0 slots
  • five USB 2.0 ports and four FireWire 800 ports
  • Bluetooth 2.1+EDR
  • Ships with Apple Keyboard with numerical keypad and Mighty Mouse.

8-core á $3,299:

  • two 2.26 GHz Quad-Core Intel Xeon 5500 series processors with 8MB of shared L3 cache
  • 6GB of 1066 MHz DDR3 ECC SDRAM memory, expandable up to 32GB
  • NVIDIA GeForce GT 120 graphics with 512MB of GDDR3 memory
  • 640GB Serial ATA 3Gb/s hard drive running at 7200 rpm
  • 18x SuperDrive with double-layer support (DVD+/-R DL/DVD+/-RW/CD-RW)
  • Mini DisplayPort and DVI (dual-link) for video output (adapters sold separately)
  • four PCI Express 2.0 slots
  • five USB 2.0 ports and four FireWire 800 ports
  • Bluetooth 2.1+EDR
  • Ships with Apple Keyboard with numerical keypad and Mighty Mouse.

Nýjar tölvur í mars?

zz470b0e4aÁætlað er að Mac mini, iMac og Mac Pro fái dágóða uppfærslu í næstu dögum eða vikum samkvæmt ýmsum Mac-fréttasíðum.

Stórar líkur eru á því að Mac Pro fái Nehalem örgjörvana frá Intel og iMac Quad-Core örgjörva. Einnig má telja að Mac mini fái nýja skjákortið frá NVidia (9400) og að sjálfsögðu nýjan örgjörva, en stærstar breytingar ættu að vera á þeirri tölvu þar sem hún var síðast uppfærð í ágúst 2007.

Nýju tölvurnar munu þá fá ný skjákort og styðja Mini DisplayPort staðalinn sem Apple hefur valið að nota í framtíðarvörum sínum.

Ef skoðaður er eftirfarandi listi er nokkuð öruggt að segja að tími sé kominn til að uppfærsla sé í nánd:

  • Mac Pro
    síðast uppfærð fyrir 419 dögum síðan – 217 dagar er meðaltalið
  • iMac
    síðast uppfærð fyrir 308 dögum síðan - 211 dagar meðaltal
  • Mac mini
    síðast uppfærð fyrir 573 dögum síðan – 188 dagar meðaltal

Orðrómurinn segir að Apple verði með sérstaka kynningu 24. mars næstkomandi, en það verður tíminn sjálfur að leiða í ljós.

MacRumors.com

AMD gefur út nýtt skjákort fyrir bæði Mac og PC

ZZ022651DB.jpg

AMD hefur gefið út nýtt skjákort fyrir Mac Pro sem ber heitið ATI Radeon HD 3870, sem hefur að geyma tvö dual-link DVI-tengi, 512MB GDDR4 vinnsluminni og 320 stream örgjörva.

AMD is introducing the ATI Radeon HD 3870 Mac & PC Edition to enhance the Mac experience to maximum levels of 3D gaming and HD performance. Mac users demand the best when it comes to HD graphics performance, and the ATI Radeon 3870 Mac & PC Edition is designed to meet and exceed that need by delivering The Ultimate Visual Experience™ to our customers’ displays.

Það skemmtiega við kortið er að það passar í allar gerðir af Mac Pro, en það verður fáanlegt í lok júní á $219 í BNA.

Fréttatilkynning frá AMD

GeForce 8800 GT komið út fyrir Mac Pro (1. kynslóð) – uppfært

ZZ23214E47.jpg

Margir voru svekktir þegar Apple uppfærði Mac Pro fyrr á árinu með nýju og öflugra skjákorti (8800 GT), því það einfaldlega virkaði ekki á eldri tölvum. En nú hefur Apple, í samstarfi við NVidia, loksins gefið út GeForce 8800 GT frá NVidia fyrir fyrstu kynslóð Mac Pro tölva.

Uppfærsla:
Skjákortið verður hægt að panta hérlendis, en búast má við 2-3 vikna biðtíma. Verð á kortinu er í kringum 30.990 kr. m.vsk.

store.apple.com

Apple kynnir nýjar Mac Pro og Xserve

ZZ46EBF886.png

Mac Pro hefur verið uppfærð allsvakalega og er nú standard með 8-kjarna Penryn örgjörva.

Verðið helst í $2799 og inniheldur:
- tvo 2,8GHz Quad-Core Intel Xeon með 1600MHz brautarhraða
- 2GB RAM (800MHz DDR2)
- 320GB SATA 7200rpm
- ATI Radeon HD 2600 XT með 256MB skjáminni
- 16x Súperdrif með dual-layer skrifara
- Bluetooth 2.0+ EDR og Airport Extreme (802.11n) (reyndist rangt)
- lyklaborð og mús

Lesið meira um Mac Pro á apple.com/macpro.

Xserve var einnig uppfærður og hefur nú að geyma einn 2,8GHz Quad-Core örgjörva og ýmsar aðra nýjungar. Meira um það hér.




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!