
16. febrúar síðastliðinn kynnti Apple nýja útgáfu af Mac OS X stýrikerfinu (nú bara OS X). Mun OS X 10.8 bera nafnið Mountain Lion og var það kynnt til sögunnar öllum að óvörum, fyrir utan nokkra útvalda sem fengu einkakynningu frá sjálfum Phil Schiller vikunni fyrr.
Með Mountain Lion heldur Apple áfram þeirri umdeildu vegferð sinni að samrýma og tengja OS X og iOS stýrikerfin, með að innleiða ýmsar smávægilegar breytingar og fídusa sem eru stórlega innblásnir af iOS. Hefur Apple líka ákveðið að hér eftir muni ný útgáfa af OS X koma út á hverju ári eða með mun styttra millibili en hingað til.
Með þessari 9. útgáfu stýrikerfisins koma ýmsar nýjungar eins og:
- Notes og Reminders sem mun virka eins og þekkist á iPad og iPhone
- Style Sheets sem gerir fólki kleift að deila nánast hverju sem er, eins og myndum, myndböndum eða vefsíðum á Twitter, Vimeo o.s.frv. (en þó hvorki Facebook né Youtube)
- Stórlega uppfært iChat, nú Messages sem mun m.a. virka með iMessage
- Notification Center, svo maður missi ekki af neinu
- Game Center sem mun halda utan um allt sem tengist leikjunum þínum úr Mac App Store
- Og mun allt þetta allt synca við öll iOS tækin þín í gegnum iCloud
- Svo mun langþráð Airplay Mirroring gera fólki kleift að deila nánast hverju sem sést á skjánum beint yfir á flatskjáinn þráðlaust í gegnum Apple TV.
Einnig munu nöfn hina ýmsu forrita vera samrænd systkinum sínum á iOS þannig að iCal verður Calendar, Address Book – Contacts, iChat – Messages o.s.frv og að lokum á Gatekeeper að stuðla að meira öryggi notenda með því að gefa fólki kost á að leyfa einungis uppsetningu á forritum sem koma annaðhvort úr Mac App Store eða frá sannreyndum hugbúnaðarþróendum og banna allt annað sem gæti hugsanlega skaðað tölvuna.
Þess má þó geta að þetta er einungis sýnishorn af því sem koma skal og gæti því vel verið að OS X Mountain Lion muni hafa upp á eitthvað fleira að bjóða þegar það kemur út næsta sumar, einungis í Mac App Store að nýrri venju fyrir óþekkt verð.











(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.