Apple kynnir endurhannaða Mac mini

Í dag kynnti Apple nýja Mac mini á vefsíðu sinni, en um er að ræða algjöra endurhönnun á tölvunni og breytingu á innihaldi eins og sést hér á myndunum að neðan.

Mac mini er nú orðin s.k. „unibody“ tölva eins og á núverandi fartölvulínu Apple, og hefur eftirfarandi eiginleika:

  • 2,4GHz eða 2,6GHz Intel Core 2 Duo
  • 3.6 cm þykk með innbyggðum spennubreyti
  • NVIDIA 320M (sama og í nýju fartölvunum)
  • HDMI-tengi
  • Einfalt aðgengi að vinnsluminni

Nánari upplýsingar og myndir eru að finna á Apple.com/macmini

Einnig má nefna merkilegar breytingar á orkunotkun, því Mac mini notar einungis 10W og hefur loksins HDMI-tengi sem margir eiga eftir að fagna. Þar að auki er harði diskurinn orðinn stærri, eða frá 320GB.

Þó er eitt neikvætt við þessar breytingar, en það er verðmiðinn. Verðið hefur hækkað um $100.

Hvað finnst ykkur um nýju Mac mini?

Afkastageta iMac og Mac mini (2009 módel)

zz4f41dea4

Með hraðaprófunum Geekbench hefur komið í ljós að nýju iMac og Mac mini vélarnar sýna ekki teljanlegan mun hvað varðar afköst en fyrri gerð, samkvæmt AppleInsider.

Þar sem nokkuð líkir örgjörvar eru notaðir í tölvunum í dag og í síðustu kynslóð – sést lítill sem enginn hraðamunur á örgjörva.

Hins vegar má ekki láta blekkja sig á þeim tölum, en hraðvirkara vinnsluminni og betri skjákort eru til staðar í nýju vélunum. Því eru vélarnar mun betur búnar fyrir þyngri grafíkvinnslu og forrit sem hafa háar kröfur á notkun vinnsluminnis. Einnig er vinnsluminnisgeta þeirra tvöfölduð frá fyrri gerð.

Ertu sátt/ur við nýju iMac, Mac mini og Mac Pro?

Sjá niðurstöður

Loading ... Loading ...

Myndir af nýju Mac mini og iMac

9foot

Myndir af nýju vélunum er komið á netið og að sjálfsögðu einnig myndir af þeim í bútum.

Nánast engar sjáanlegar breytingar hafa verið gerðar á Mac mini og iMac (fyrir utan breyting á tengjum) en þó er fóturinn á iMac orðinn þynnri að framanverðu líkt og er á nýja 24″ LED Cinema Display.

Myndir af Mac mini
Myndir af iMac | iMac tekin í sundur

Mikilvæg atriði varðandi nýju vélarnar – uppfært

mac_early_2009

Margar og miklar uppfærslur voru í dag kynntar á Mac mini, iMac og Mac Pro eins og margir hafa tekið eftir.

Nokkra áhugaverða punkta er vert að nefna hvað varðar breytingarnar, en ekki hefur einungis innihaldið breyst heldur uppfærslumöguleikar hvað vinnsluminni varðar og ýmsir fylgihlutir eins og Apple Remote hættir að fylgja með.

Blátt+ (til hins betra)
Rautt = - (afturför/mætti bæta)

(meira …)

Apple kynnir nýjan Mac mini

macmini090303-1

Eftir orðróm í marga mánuði hefur nýr Mac Mini loksins litið dagsins ljós. Nýja gerðin er útbúin sama Nvidia Geforce 9400M kubbasettinu og er í MacBook línunni og er nú með 5 sinnum betri grafík en áður.

Nýji Mac Mini fæst í tveimur gerðum:

Á $599:

  • 2.0 GHz Intel Core 2 Duo processor with 3MB shared L2 cache;
  • 1GB of 1066 MHz DDR3 SDRAM expandable up to 4GB;
  • NVIDIA GeForce 9400M integrated graphics;
  • 120GB Serial ATA hard drive running at 5400 rpm;
  • a slot-load 8x SuperDrive with double-layer support (DVD+/-R DL/DVD+/-RW/CD-RW); separately);
  • Mini DisplayPort and mini-DVI for video output (adapters sold separately);
  • built-in AirPort Extreme wireless networking & Bluetooth 2.1+EDR;
  • Gigabit Ethernet (10/100/1000 BASE-T);
  • five USB 2.0 ports;
  • FireWire 800 port
  • one audio line in and one audio line out port, each supporting both optical digital and analog.

..og á 799$:

  • 2.0 GHz Intel Core 2 Duo processor with 3MB shared L2 cache;
  • 2GB of 1066 MHz DDR3 SDRAM expandable up to 4GB;
  • NVIDIA GeForce 9400M integrated graphics;
  • 320GB Serial ATA hard drive running at 5400 rpm;
  • a slot-load 8x SuperDrive with double-layer support (DVD+/-R DL/DVD+/-RW/CD-RW);
  • Mini DisplayPort and mini-DVI for video output (adapters sold separately);
  • built-in AirPort Extreme wireless networking & Bluetooth 2.1+EDR;
  • Gigabit Ethernet (10/100/1000 BASE-T);
  • five USB 2.0 ports;
  • FireWire 800 port;
  • one audio line in and one audio line out port, each supporting both optical digital and analog.

Ný iMac og Mac mini á morgun?

zz2657c4c5

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum koma út nýjar gerðir af Mac mini og iMac á morgun, en í flestöllum tilvikum þegar gefur Apple út nýjar vörur gerist það á þriðjudegi.

Borist hefur mynd á netið af hugsanlegum Mac mini pakkningum sem sést hér að ofan.

Mac mini mun hafa eftirfarandi eiginleika ef marka má orðróminn:

  • 5x USB tengi
  • 1x FireWire 800
  • 1x mini-DVI
  • 1x mini DisplayPort
  • NVidia skjákort (eins og finnst í MacBook)
  • Intel Core 2 Duo 2.0 GHz og stærri
  • 1 og 2 GB DDR3 vinnsluminni (stækkanlegt í 4 GB)
  • 120 GB harður diskur (stækkanlegt í 320 GB)

iMac mun innihalda og fást í:

  • fjórum gerðum; ein 20″ og þrjár 24″
  • 2.66 Ghz, 2.93 Ghz og 3.06 Ghz Intel Core 2 Duo
  • 1x mini DisplayPort tengi
  • 20″ með 2GB DDR3 vinnsluminni; 24″ með 4GB DDR3 (stækkanlegt í 8GB)

Athugið að um er að ræða orðróm og því ekki hægt að staðfesta ofangreindar upplýsingar. Kemur í ljós á morgun (vonandi)!

Hardmac
Onemorething.nl

Nýjar tölvur í mars?

zz470b0e4aÁætlað er að Mac mini, iMac og Mac Pro fái dágóða uppfærslu í næstu dögum eða vikum samkvæmt ýmsum Mac-fréttasíðum.

Stórar líkur eru á því að Mac Pro fái Nehalem örgjörvana frá Intel og iMac Quad-Core örgjörva. Einnig má telja að Mac mini fái nýja skjákortið frá NVidia (9400) og að sjálfsögðu nýjan örgjörva, en stærstar breytingar ættu að vera á þeirri tölvu þar sem hún var síðast uppfærð í ágúst 2007.

Nýju tölvurnar munu þá fá ný skjákort og styðja Mini DisplayPort staðalinn sem Apple hefur valið að nota í framtíðarvörum sínum.

Ef skoðaður er eftirfarandi listi er nokkuð öruggt að segja að tími sé kominn til að uppfærsla sé í nánd:

  • Mac Pro
    síðast uppfærð fyrir 419 dögum síðan – 217 dagar er meðaltalið
  • iMac
    síðast uppfærð fyrir 308 dögum síðan - 211 dagar meðaltal
  • Mac mini
    síðast uppfærð fyrir 573 dögum síðan – 188 dagar meðaltal

Orðrómurinn segir að Apple verði með sérstaka kynningu 24. mars næstkomandi, en það verður tíminn sjálfur að leiða í ljós.

MacRumors.com

Mynd af nýjum Mac mini lekið?

macmini0902191

Bæði MacRumors og AppleInsider hafa birt mynd af hugsanlega nýjum Mac mini en mikið hefur verið talað um nýja útgáfu undanfarið, sérstaklega fyrir Macworld. Líklegt þykir að Nvidia muni koma að gerð nýs kubbasetts en ekkert er þó staðfest í þeim efnum. Einhverjar upplýsingar um vélbúnað fylgdu myndinni en þær eru auðvitað algjörlega óstaðfestar sem og myndin.

- 2GHz Core 2 Duo, 3MB Level 2 cache,

- 2GB 1066MHz DDR3 RAM

- ATA Super Drive.

Auk þess sjást á myndinni 5 USB tengi, mini DVI, hið nýja Mini Display Port og FW800 tengi.

[Viðbót/Bjöggi: Tvö skjátengi sem þýðir dual-display! Loksins...]

Getgátur um Mac mini

horriblemacmini.jpg
Fyrir ekki svo löngu síðan töldu margir að dagar Mac mini tölvunnar væru taldir. Núna búast þó allir við nýrri kynslóð tölvunnar á síðustu Macworld kynningu Apple í næstu viku. TUAW vefbloggið hefur tekið saman sínar helstu upplýsingar um nýju tölvuna.

Þeir segja að líklegt verði að nýji Mac mini muni hafa SATA tengi fyrir diskadrifið og því muni vera hægt að bæta við öðrum hörðum disk í vélina í stað diskadrifs, en það kemur sér til dæmis vel ef tölvan er notuð sem server. Segjast þeir þá nokkuð vissir um að hann eigi eftir að líkjast Time Capsule að því leytinu til að sama skrítna raufin verði á honum. Hún mun þó fá aukið fagurfræðilegt hlutverk í þetta skiptið þar sem hún mun fela opið fyrir diskadrifið. Fram kemur einnig að tölvan muni vera úr álumgjörð sem fyrr en nú með svörtu plasti. -Hvíti liturinn er greinilega ekki lengur í hlýjunni hjá Apple.

Nýr iMac og Mac mini munu nota NVIDIA kubbasett

Picture 11.jpg

Einhverjum snillingnum hefur tekist að finna stillingaskjöl í OS X sem gefa til kynna að nýr iMac og nýr Mac mini séu á leiðinni með NVIDIA kubbasett. Apple hefur nýlega uppfært fartölvulínur sínar á þennan hátt og gætum við jafnvel átt von á þessari uppfærslu á iMac og Mac mini á Macworld í janúar.

Skjölin sem um ræðir vísa í nafn kubbasettsins, NVIDIA MCP79, en einnig í svokallaðan iMac 9,1 og Mac mini 3,1. Núverandi útgáfur eru skráðar sem 8,1 og 2,1 svo að greinilegt er að um eitthvað nýtt sé að ræða.




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!