Sækið Steam fyrir Mac hér:
http://store.steampowered.com/public/client/steam.dmg
Ps. Sem stendur er ekki hægt að skrá sig inn, en það verður virkt seinna í dag.
Sækið Steam fyrir Mac hér:
http://store.steampowered.com/public/client/steam.dmg
Ps. Sem stendur er ekki hægt að skrá sig inn, en það verður virkt seinna í dag.
12. maí er merkisdagur í sögu Makkans því stærsti dreifingar- og söluaðili tölvuleikja á netinu hefur ákveðið að gefa út hugbúnaðinn Steam fyrir okkur makkanotendur.
Steam má líkja við iTunes, því Steam býður upp á Steam Store og gagnagrunn fyrir alla þína leiki. Þar að auki er hægt að spjalla við vini sína á Steam og bjóða þeim að spila með í viðkomandi netleik.
Fyrir þá sem þekkja þá mun Source-vélin einnig vera til fyrir Mac, og því verður hægt að spila leiki á borð við Left 4 Dead 2, Half-Life og Day of Defeat:Source á Makkanum.
Þeir sem nota nú þegar Steam á Windows geta glatt sig yfir því að hafi þeir nú þegar t.d. keypt sér Left 4 Dead leikinn á Steam, þá þurfa þeir ekki að kaupa tvö eintök eins og þekkist í dag, heldur verður hægt að ná í leikinn án endurgjalds á Steam fyrir Mac.
Til að byrja með verður leikjaúrvalið mjög takmarkað, en samkvæmt fréttatilkynningu verður leikurinn Portal og Torchlight fáanlegir strax í dag. Bráðlega ættu fleiri stærri titlar frá Valve að koma út. Svo er bara tímaspursmál hvenær aðrir leikjaframleiðendur fara að selja sína leiki á Steam.
Ekki er vitað nákvæmlega hvenær í dag Steam kemur út fyrir Mac, en hægt er að fylgjast með því á Steampowered.com.
Nánari upplýsingar um Steam er að finna hér.
Heimild: Fréttatilkynning frá Steam

Elgato hefur hingað til framleitt nett USB-tengd sjónvarpskort með bæði stafrænum og hliðrænum inngangi ásamt öflugum hugbúnaði.
Ný vara kölluð Video Capture var kynnt í dag sem gerir fólki kleift að nýta upptökur úr gömlu upptökumyndavélinni eða frá VHS spólum til að setja í tölvuna á stafrænt snið. Það styðir bæði NTSC og PAL með Composite og S-Video inngangi.
Nánar um vöruna hér.
Margir þekkja Psystar sem byrjuðu á því að selja PC tölvur með Mac OS X stýrikerfinu án leyfis frá Apple. Nú er kominn enn annar framleiðandi og það í Evrópu.
Fyrirtækið er þýskt og heitir PearC. Þar er hægt að kaupa ýmsar stærðir og gerðir af turntölvum og er verðið frá €499 með sendingarkostnaði. Sent er innan Evrópu á stærstu löndin en Ísland er eins og stendur ekki með á listanum.
Svo er tímaspursmál hvenær Apple fer að leggja kærur á hendur PearC fyrir að selja búnað með Mac OS X stýrikerfinu innsett.

Fyrir nákvæmlega 25 árum kynnti Steve Jobs fyrstu Macintosh-tölvuna, sem á sínum tíma var byltingarkennd hvað varðar stýrikerfi og hönnun.
Til hamingju Apple með þennan áfanga – „keep up the good work“.
Hér er ágætt yfirlit um sögu Makkans á Wikipedia: smelltu

Belkin hefur kynnt til sögunnar eitt þægilegasta tól, að svo virðist vera, til þess að færa öll nauðsynleg gögn frá Windows yfir í Mac.
Um er að ræða USB2-snúru ásamt hugbúnaði sem flytur allar stillingar, hljóðskrár, myndir og ýmis skjöl yfir í Mac og flokkar það í réttar möppur.
Þetta ætti að auðvelda lífið fyrir marga nýja Mac-notendur sem vilja ná í öll sín gögn úr Windows-vélinni yfir á Makkann.
Verð á dýrðinni er um $50 USD, sem er um 8.500 ÍSK með VSK.
Margir hafa séð Get a Mac auglýsingarnar frá Apple þar sem Mac og PC eru persónugerðar og óspart er verið að setja út á „PC“. Það hafa nokkrir reynt að gera misheppnaðar eftirlíkingar af þessum auglýsingum í þeim tilgangi að gagnrýna þær, en ég verð að segja Laurie McGuinness hefur tekist það nokkuð vel.
Hér sjáið þið eitt af fjórum myndböndum, en ég mæli með að þið kíkið á síðuna sem býður einnig upp á þau öll í betri upplausn.

Apple hefur bætt við þremur nýjum auglýsingum á síðu sína.
Flashback er í uppáhaldi: www.apple.com/getamac

Það fer að styttast í jólin og hví ekki að skreyta Mac-auglýsingarnar smávegis í þeim stíl? Apple hefur gefið út þrjár nýjar Mac-auglýsingar sem er hægt að horfa á vefsíðunni hér að neðan.