Steam fyrir Mac kominn út

Sækið Steam fyrir Mac hér:
http://store.steampowered.com/public/client/steam.dmg

Ps. Sem stendur er ekki hægt að skrá sig inn, en það verður virkt seinna í dag.

Steam kemur út í dag!

12. maí er merkisdagur í sögu Makkans því stærsti dreifingar- og söluaðili tölvuleikja á netinu hefur ákveðið að gefa út hugbúnaðinn Steam fyrir okkur makkanotendur.

Steam má líkja við iTunes, því Steam býður upp á Steam Store og gagnagrunn fyrir alla þína leiki. Þar að auki er hægt að spjalla við vini sína á Steam og bjóða þeim að spila með í viðkomandi netleik.

Fyrir þá sem þekkja þá mun Source-vélin einnig vera til fyrir Mac, og því verður hægt að spila leiki á borð við Left 4 Dead 2, Half-Life og Day of Defeat:Source á Makkanum.

Þeir sem nota nú þegar Steam á Windows geta glatt sig yfir því að hafi þeir nú þegar t.d. keypt sér Left 4 Dead leikinn á Steam, þá þurfa þeir ekki að kaupa tvö eintök eins og þekkist í dag, heldur verður hægt að ná í leikinn án endurgjalds á Steam fyrir Mac.

Til að byrja með verður leikjaúrvalið mjög takmarkað, en samkvæmt fréttatilkynningu verður leikurinn Portal og Torchlight fáanlegir strax í dag. Bráðlega ættu fleiri stærri titlar frá Valve að koma út. Svo er bara tímaspursmál hvenær aðrir leikjaframleiðendur fara að selja sína leiki á Steam.

Ekki er vitað nákvæmlega hvenær í dag Steam kemur út fyrir Mac, en hægt er að fylgjast með því á Steampowered.com.

Nánari upplýsingar um Steam er að finna hér.

Heimild: Fréttatilkynning frá Steam

Steam og Source frá Valve kemur á makkann í apríl

Leikjaframleiðandinn Valve hefur tilkynnt að leikir þeirra ásamt verslunin Steam verður fáanleg á Mac í apríl.

Steam er hugbúnaður sem gerir notendum kleift að kaupa leiki og hala þeim niður í gegnum netið. Þar að auki heldur það utan um alla leikina og eru CD/DVD diskar óþarfir.

Leikir sem byggja á Source tækninni munu virka á Mac í næsta mánuði, þar má nefna m.a. Left 4 Dead 2, Team Fortress 2, Counter-Strike, Portal og Half-Life leikina.

Þar að auki hefur verið staðfest að nýjasti leikurinn frá Valve, Portal 2, verður gefinn út á sama tíma fyrir Mac OS X og Windows.

Þessar fréttir eru án efa mjög stórar fyrir bæði framtíð Apple í leikjabransanum og okkur leikjanördana sem notum Mac OS X og viljum helst ekki snerta Windows.

Nánari upplýsingar: store.steampowered.com/news

Púsluspil tónlistaráhugamannsins

audiopuzzle

Íslenska leikjafyrirtækið Dexoris hefur gefið út tónlistarleikinn Audio Puzzle fyrir iPhone og iPod Touch en leikurinn á engan sinn líkan í heiminum. Hann er sá fyrsti í netverslun Apple sem breytir tónlist leikmanna í púsluspil með því að nota lög sem efnivið í púsluspilið í stað mynda. Ólíkt öðrum tónlistarleikjum, þá sækir Audio Puzzle lögin úr tónlistarsafni leikmanna og því þarf ekki að kaupa tónlistina sérstaklega. Það má því segja að Audio Puzzle sé hið eina sanna púsluspil tónlistaráhugamannsins og bylting fyrir púsláhugamenn um allan heim.

“Það er skemmtilegt að velja uppáhaldslögin sín og láta leikinn breyta þeim í púsl en þó hef ég meira gaman að því að láta Audio Puzzle velja lögin fyrir mig.” segir Ólafur Viggósson framkvæmdastjóri Dexoris. “Þannig enduruppgötva ég gamla og góða slagara sem höfðu gleymst í tónlistarsafninu mínu.” Ennfremur finnst honum sem hann þjálfist í hlustun við spilun leiksins og leikurinn hafi því áhrif á það hvernig hann skynjar tónlist. “Mér finnst ég þekkja lögin betur og stundum lendi ég í því að heyra í nýjum hljóðfærum og laglínum.”

Gagnrýnendur eru sammála um það að Audio Puzzle sé skyldueign fyrir alla eigendur iPhone eða iPod touch enda einstakur og vandaður leikur. Dexoris hlaut styrk frá Átaki til atvinnusköpunar til áframhaldandi þróunar á leiknum svo búast má við meiri tónlistarupplifun frá þeim á vormánuðum.

Leikjafyrirtækið Dexoris hafði áður gefið út leikinn Peter und Vlad, æsispennandi ævintýraleik fyrir alla fjölskylduna sem fjallar um Sedov-bræðurna, smalann Pétur og uppfinningamanninn Valda, og baráttu þeirra við stjórnlausa uppfinningu. Leikurinn fékk góðar viðtökur en fleiri en 40 þúsund notendur hafa sótt leikinn frá upphafi og í október valdi Apple leikinn inn á listann What’s Hot í netverslun sinni.

Báðir leikirnir fást í Apple iTunes Store:

Audio Puzzle: http://www.audiopuzzle.com/buy-audiopuzzle/
Peter und Vlad: http://www.peter-und-vlad.com/buy-peterundvlad

Nýr íslenskur tölvuleikur fyrir iPhone

Leikjaiðnaður á Íslandi er svo sannarlega kominn á flug, en tölvuleikjaframleiðandinn Gogogic sendi nýverið frá sér hinn léttgeggjaða fjölspilunarleik Soft Freak Fiesta fyrir iPhone og iPod Touch. Leikurinn hefur þegar fengið frábærar viðtökur eins og sjá má á heimasíðu hans.

Í leiknum stjórna leikmenn þremur krúttlegum kvikindum er kallast Soft Freaks. Leikurinn er lotubundinn og er takmark hans að ýta andstæðingum sínum fram af klettum, ofan í sýru, útí sjó, brenna þá, stinga eða kremja. Leikmenn tengjast hverjum sem er í heiminum í gegn um WiFi, Bluetooth eða 3G. Búast má við uppfærslu á leiknum mjög bráðlega, en hún mun innihalda ný kvikindi, nýtt borð, lagfæringar og viðbætur.

Soft Freak Fiesta er annar leikur Gogogic sem komið hefur út á App Store, en fyrr á árinu gaf fyrirtækið út hinn rómaða Symbol6 sem var valinn einn af 15 áhugaverðustu þrautaleikjum á App Store auk þess sem hann var tilnefndur til Nordic Game verðlaunanna 2009. Búast má við nýjum iPhone leik frá Gogogic á næsta ári.

Soft Freak Fiesta kostar tímabundið aðeins $0.99. Náðu í Soft Freak Fista hér.

Bioshock kemur út fyrir Mac

ZZ5F706012.jpg

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hjá Macworld mun Feral Interactive gefa út hinn vinsæla leik „Bioshock“ á Mac OS X.

Ekki er vitað nákvæmlega hvenær það verður en hins vegar mjög góðar fréttir fyrir Mac-notendur.

Nánar um það seinna.

www.macworld.com

Diablo III kynntur – líka á Mac

ZZ2D595D22.jpg

Blizzard Entertainment hefur tilkynnt áframhald af vinsælu leikjunum Diablo I og II.

Samkvæmt talsmanni fyrirtækisins mun leikurinn koma út samtímis á Mac og Windows, en ekki hefur enn verið tilkynnt hvenær það verður.

Þetta eru að sjálfsögðu frábærar fréttir fyrir okkur Mac-notendur sem hafa gaman að RPG leikjum, því sjaldan hafa fyrri Diablo leikirnir valdið fólki vonbrigðum.

Diablo III will feature a custom 3D-graphics engine to render lush indoor and outdoor areas of Sanctuary with a high level of detail and vivid special effects. The game’s physics-enhanced environments will be interactive and destructible, offering traps and obstacles that create added danger for players and monsters alike. These elements, along with a new quest system and random scripted events, will be integrated into the game’s random-level generator, giving Diablo III what Blizzard hopes to be the ultimate combination of dynamic gameplay and replayability. Cooperative and competitive play will be available online through an upgraded version of Blizzard Entertainment’s renowned online gaming service, Battle.net.

Nánar um leikinn
Skjáskot úr Diablo III

Tíu ástæður til þess að nota Boot Camp

ZZ466098B4.jpg

Það er sjaldgæft að Mac-notendur mæli með að nota Windows og Boot Camp, en stundum er einfaldlega góð ástæða til þess þegar kemur að leikjaúrvali.

Peter Cohen hjá Macworld hefur komið með nokkrar góðar ástæður fyrir okkur leikjaunnendur að nota Boot Camp, en eftirfarandi leikir hafa einungis verið gefnir út fyrir Windows af einhverri ástæðu:

  • Company of Heroes
  • Crysis
  • The Elder Scrolls IV: Oblivion
  • Grand Theft Auto: Vice City
  • Guild Wars
  • Orange Box
  • Psychonauts
  • Rome: Total War
  • Sins of a Solar Empire
  • World in Conflict

Lesið um leikina með því að smella hér.

Sýndarkynskipti algeng meðal beggja kynja

wow.jpg

Könnun sem Nottingham Trent háskólinn í Bretlandi gerði meðal einstaklinga sem spila leiki á netinu hefur leitt í ljós að meirihluti þeirra skiptir um kyn þegar leikið er. 125 einstaklingar sem spila tölvuleiki á netinu tóku þátt í rannsókninni og kom í ljós að konur voru mun líklegri til að skipta um kyn en karlar.

Allt að 70 prósent kvenna sögðu að þær kysu frekar að nota sér karlhlutverk í netleikjum þar sem hægt er að búa til eigin persónu og velja kyn, uppruna og útlit. Ólíkar ástæður virðast þó liggja að baki þessu vali. Helstu ástæður kvenna virðast þó vera þær að þeim finnst karlpersónur njóta betri samskipta sín á milli auk þess sem kvenpersónur séu meira áreittar að óþörfu.

Þrátt fyrir að færri karlmenn viðurkenndu kynskipti en konur leiddi rannsóknin í ljós að einnig meðal þeirra er það meirihlutinn sem stundar þessa iðju í netleikjum. Um 54 prósent karlanna viðurkenndu að hafa komið fram sem konur, til að daðra við aðra leikendur og uppgötva óþekktar hliðar á eigin persónuleika.

Aðrir þættir þessarar rannsóknar tóku á ástæðum þess að fólk stundar netleiki en um 40 prósent sögðu að það væri til að flýja erfiðar aðstæður heima fyrir eða í vinnu og einn af hverjum fimm sagðist eiga auðveldara með samskipti við annað fólk í netleikjum en í raunverulegum samskiptum.

Þrátt fyrir að netleikir hafi fyrst komið til sögunnar uppúr 1980 er það ekki fyrr en nú sem bylting hefur orðið með tilkomu ljósleiðara- og breiðbandstenginga. Sýndarveruleiki í þrívídd hefur þannig rutt sér braut inná netið við ótrúlegar vinsældir almennings. Til dæmis eru fastir áskrifendur World of Warcraft orðnir um tíu milljónir í dag og koma frá öllum heimshornum.

Í þessu umhverfi er hægt að stjórna kyni, uppruna og jafnvel tegund. Fólki finnst áhugavert og skemmtilegt að breyta hinum og þessum einkennum sinnar persónu til að skoða hvaða áhrif það hefur á aðra. Sýndarheimurinn er ekki háður þeim mörkum sem okkur eru sett í daglegu lífi og sífellt fleiri fá áhuga á því að kanna þær hliðar persónu sinnar sem annars væri ekki hægt í daglegu lífi.

Unreal Tournament 3 á Mac

ZZ686F89EE.jpg

MacSoft hefur gefið út fréttatilkynningu um að Unreal Tournament 3 sé á leið á makkann.

MacSoft couldn’t be happier to bring Unreal Tournament 3 ’s insane fast-paced action and brutal weaponry to the Mac. We have a long history of bringing the Unreal series to Mac gamers, and with its expanded campaign mode and killer vehicles, Unreal Tournament 3 is the biggest, best and bloodiest game in the series yet.

Búast má við leiknum snemma á næsta ári og er ekki enn vitað hvort hann verði Universal (PPC og Intel) eða skrifaður einungis fyrir Intel-örgjörvann.

www.insidemacgames.com




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!