Apple kynnir Magic Trackpad og nýtt hleðslutæki

Í dag kynnti Apple til sögunnar nýtt jaðartæki sem ber heitið „Magic Trackpad“.

Um er að ræða þráðlausan (Bluetooth) músarflöt með fjölsnertiskynjurum eins og þekkist á fartölvum frá Apple, en þó er flatarmálið mun stærra á Magic Trackpad.

Verð á nýja jaðartækinu er $69 í Bandaríkjunum

Ásamt Magic Trackpad var nýtt hleðslutæki fyrir AA-rafhlöður kynnt. Um er að ræða hleðslutæki sem notar litla orku og með því fylgja 6 AA NiMH rafhlöður og eiga að endast í allt að 10 ár samkvæmt Apple.

Rafhlöðurnar virka í þráðlausu jaðartækin frá Apple: Magic Mouse, Apple Wireless Keyboard og að sjálfsögðu Magic Trackpad.

Verð á Apple Battery Charger er $29.

Wacom kynnir þráðlaust teikniborð

Wacom kynnti nýlega teikniborð, Intuos4 Wireless, með Bluetooth eiginleika.

Innbyggð rafhlaða er í borðinu sem hægt er að endurhlaða með hjálp USB-snúru tengda við tölvuna.

2048 þrýstipunktar eru snertifletinum á Intuos4 Wireless og er stærð borðsins 363mm x 253mm (snertiflötur 203mm x 127mm).

The new Intuos4 Wireless pen tablet with Bluetooth® wireless technology lets you relax in your favorite working position or move about freely up to 33 feet (10 meters) from your computer. Enjoy the freedom of working “unattached” from your Mac or PC and reducing cord clutter.

Verð á nýja Wacom borðinu er $399 á Bandaríkjamarkaði.

Lesið meira um Wacom Intuos4 Wireless hér.

Svona lítur Magic Mouse út

Smellið á „full screen“ hnappinn til að sjá myndbandið betur.

Western Digital kynnir 1TB fartölvudisk

Í dag kynnti Western Digital til sögunnar tvær gerðir af 2,5″ hörðum diskum, en sú stærð er notuð í flestum tegundum fartölva í dag.

Um er að ræða stærðirnar 750GB og 1TB í WD blue flokknum (5400 RPM), en hingað til hefur stærsta gerðin verið 500GB og því um að ræða nokkuð stórt stökk hvað gagnageymslu varðar.

Hins vegar skal hafa í huga að þessir nýju diskar eru 12,5mm þykkir (venjulega eru 2,5″ diskar 9,5mm) sem þýðir að þeir passa því miður ekki í fartölvurnar frá Apple enn sem stendur.

Diskarnir verða seldir í utanáliggjandi USB 2.0 húsi og verðið er $189,99 fyrir 750GB og $249,99 fyrir 1TB.

Heimild: Hardmac.com

Elgato kynnir Video Capture

header_en

Elgato hefur hingað til framleitt nett USB-tengd sjónvarpskort með bæði stafrænum og hliðrænum inngangi ásamt öflugum hugbúnaði.

Ný vara kölluð Video Capture var kynnt í dag sem gerir fólki kleift að nýta upptökur úr gömlu upptökumyndavélinni eða frá VHS spólum til að setja í tölvuna á stafrænt snið. Það styðir bæði NTSC og PAL með Composite og S-Video inngangi.

Nánar um vöruna hér.

HDD-kví með FireWire 800

zz08435a37

Newer Technology hefur gefið út nýja HDD-kví, Voyager Q, sem gerir manni kleift að tengja utanáliggjandi SATA diska (bæði 2,5″ og 3,5″) við tölvuna án mikillar fyrirhafnar.

Voyager Q Quad Interface Drive Dock er með öllum mögulegum tengjum: USB2, eSATA, FireWire 400 og FireWire 800.

Eins og sést á myndinni er harða disknum einfaldlega stungið í kvína og birtist hann þá á skjáborðinu án auka hugbúnaðar. Stuðningur er fyrir Mac OS X 8, 9 og 10.2 og nýrra ásamt Windows sem er býsna gott m.v. flestar hýsingar í dag.

Verð í BNA er $97.99 en hægt er að panta vöruna á Macsales.com.

Sjá vörulista Macsales hér.

Apple hættir framleiðslu á 20″ Cinema Display

24ledcinemadisplay

Í dag hefur Apple hætt að framleiða 20″ Cinema Display, en talið er að nýr skjár sjái dagsins ljós með LED-baklýsingu og nýrri hönnun eins og þekkja má af 24″ LED Cinema Display.

Allir skjáir munu þá nota Mini DisplayPort tengið, sem innbyggt er í öllum fartölvulínum Apple í dag.

Enn sem stendur er 30″ Cinema Display til staðar á Apple Store, en búast má við nýjum skjá á þessu ári.

Apple Store

Hágæðamyndir af 24″ LED Cinema Display

ZZ131869E8.jpg

AppleInsider hafa tekið nokkrar góðar myndir af nýja gripnum frá Apple: 24″ LED Cinema Display. Skemmtilegt fyrir okkur Apple-nördana…

Sjá myndirnar hér.

USB 3.0 gefur tífalt meiri hraða

Á ráðstefnu WinHEC (Windows Hardware Engineering Conference) um daginn kom fram að nákvæmar upplýsingar (specifications) um nýja USB 3.0-staðalinn yrðu gefnar út mánudaginn þann 17. nóvember.

Samkvæmt heimildum gefur nýi staðallinn, USB 3.0, a.m.k. tífaldan hraða ef miðað er við USB 2.0 eða allt að 5Gbps!

Nokkrar tafir hafa verið á þessum staðli, en kosturinn við USB 3.0 er að hann virkar með eldri útgáfum (USB 2.0 og USB 1.1).

Hér sést hraðamunur á hinum þremur USB-stöðlum þegar flutt er 25GB HD-kvikmynd:

USB 1.1: 9,3 klst.

USB 2.0: 13,9 mínútur

USB 3.0: 70 sekúndur

Talið er að USB 3.0 komi á markaðinn 2009/2010 en spurningin er hvort að FireWire 3200 nái einhverjum vinsældum fyrir þann tíma.

T.a.m. hefur Apple „útrýmt“ FireWire tenginu í nýju MacBook-tölvunum og ekki hefur fyrirtækið sýnt því áhuga í iPod-spilurunum né MacBook Air.

Þetta verður að teljast merkilegt af fyrirtæki sem heillaði fyrrnefnda staðal (FireWire) fyrir ekki svo löngu síðan.

Intel.com/pressroom

Færa gögn úr Windows í Mac? Belkin Switch-to-Mac hefur svarið

ZZ2DEDD5C0.jpg

Belkin hefur kynnt til sögunnar eitt þægilegasta tól, að svo virðist vera, til þess að færa öll nauðsynleg gögn frá Windows yfir í Mac.

Um er að ræða USB2-snúru ásamt hugbúnaði sem flytur allar stillingar, hljóðskrár, myndir og ýmis skjöl yfir í Mac og flokkar það í réttar möppur.

Þetta ætti að auðvelda lífið fyrir marga nýja Mac-notendur sem vilja ná í öll sín gögn úr Windows-vélinni yfir á Makkann.

Verð á dýrðinni er um $50 USD, sem er um 8.500 ÍSK með VSK.

Nánar um Belkin Switch-to-Mac




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!