iWork ‘09 ásamt iLife ‘09 komið í Applebúðina

ilife09iwork09.jpg

Loks eru nýju uppfærslurnar af iWork og iLife komnar til landsins, en þær innihalda mikið af áhugaverðum eiginleikum sem hægt er að kynna sér á apple.com/ilife og apple.com/iwork.

Single license (einstaklingsútgáfa) er á 12.990 kr. og Family Pack (fjölskylduútgáfa) á 16.990 kr.

Uppfært: Mac Box Set, sem inniheldur iLife, iWork og Mac OS X Leopard er einnig komið, kostar 37.990 kr. og er fjölskylduútgafa (fimm tölvur).

Ný 17″ MacBook Pro, iLife 09′ og iWork 09′ kynnt á Macworld

features17-display20090106.jpg

Rétt í þessu lauk Phil Schiller kynningu sinni á Macworld 2009. Satt að segja áttu flestir von á meiru á kynningunni s.s. nýrri Mac mini og jafnvel uppfærslu á iMac.

17″ MacBook Pro

Apple kynntu nýja 17″ MBP með sama útliti og núverandi 15″ vél. Á tölvunni er 1900×1200 LED upplýstur skjár, með 700:1 contrast ratio og stærra litsviði. Einnig er boðið uppá valmöguleikann á því að hafa skjáinn mattann fyrir $50. Ekki voru miklar uppfærslur á “standard” vélbúnaðinum aðrar en þær tölvurnar koma nú með innbyggðu batteríi sem endist í allt að 8 klst og 1000 hleðslur. Hægt er að velja um fjölda uppfærslna á vélinni en án allra auka endurbóta kostar hún $2799.

overview_hero1_image20090106.pngiLife 09′

iPhoto: Tvær nýjar leiðir kynntar til þess að flokka myndir, Faces og Places. Einnig er nú hægt að setja myndir beint úr iPhoto yfir á facebook eða flickr auk fjölda annarra nýjunga.

iMovie: Gerir nú fólki kleyft að búa til myndbönd á fljótlegan og einfaldan hátt en auðveldara er að klippa myndskeið sem aldrei fyrr. Einnig hefur verið bætt við alls kyns sniðugum effektum auk þess að forritið minnkar nú hristing á myndavélinni.

GarageBand: Helstu nýjungar eru þær að nú getur fólk lært að spila sín uppáhalds lög í gegnum forritið.

iLife 09′ mun koma út í janúar fyrir $79.

overview_hero1_image20090106-1.png

iWork 09′

Keynote: Forritið gert enn betra með alls konar nýjum effektum, auk þess að hægt verður að nota iPhone eða iPod touch sem fjarstýringu.

Pages: Núna getur fólk unnið skjölin sín í full-screen og með nýjum valmyndum. Einnig var stuðningi fyrir MathType 6 bætt við.

Numbers: Formúluskrif gerð einfaldari með nýjum formúluvafra auk fleiri möguleika á dálkauppsetningu.

iWork.com var kynnt til sögunnar en það gerir notendum kleyft að vinna skjöl og deila með öðrum á netinu.
iWork 09′ er komið út fyrir $79 en einnig verður hægt að kaupa það á $49 með nýrri Apple vél.

iTunes
Í dag munu 8 af 10 milljónum laga í iTunes Store verða DRM laus í gegnum iTunes Plus og í mars munu þær tvær milljónir sem eftir eru einnig verða það. Eigendur iPhone 3G munu nú geta náð í lög yfir 3G net í stað einungis Wi-Fi. Að lokum munu svo Apple breyta verðlagningu sinni á lögum í iTS sem hefst í apríl. Lögin verða á þá 69 cent, 99 cent eða $1.29.

iWork update

iWork

Apple hefur gefið út nýjar uppfærslur á öllum iWork forritunum sem hægt er að nálgast auðveldlega í Software Update. Uppfærslurnar eru minniháttar og auka samhæfni við Mac OS X í Pages og Numbers en laga performance í Keynote.

iLife ‘08 og iWork ‘08 lent í Apple IMC

ilife08.jpg

iLife ‘08 og iWork ‘08 lenti í dag í Apple IMC.

Verðið hefur komið fram hér áður en iLife er á 6.990 kr. og iWork á sama verði. Fjölskyldupakkar (5 leyfi) eru á 9.990 kr. [leiðr] 8.990 kr.

iWork og iLife uppfærslur

ilife_iwork.jpgApple hefur uppfært bæði iLife ‘06 og iWork ‘06 í dag sem á að veita aðallega stuðning við nýjustu útgáfuna af Aperture (1.5).

iPhoto fékk ýmsar viðbætur hvað varðar þema á dagatöl, kveðjur og póstkort. Í iMovie var þá einnig gert stöðugra og lagfærir ýmis smáatriði.

Hægt er að nálgast uppfærslurnar í gegnum Software Update í Apple valblaðinu.

iWork ‘07 með töflureikni?

iwork 06Næsta útgáfa af iWork mun innihalda töflureikni, samkvæmt ThinkSecret.

Forritið, sem er kallað Charts, á þó ekki að keppa við forrit á borð við Microsoft Excel heldur frekar að vera notendavænna og ætlað þá fyrir heimili og minni fyrirtæki. Charts mun styðja Excel-snið (bæði import/export).

Ekki er enn vitað hvort þetta muni hækka verðmiðann á næstkomandi útgáfu af iWork.

www.thinksecret.com/news/0607charts.html




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!