Apple uppfærir iTunes og Snow Leopard

Ný útgáfa af Snow Leopard er komin út – 10.6.3. – og inniheldur mikið af endurbótum og lagfæringum á stýrikerfinu.

The 10.6.3 Update is recommended for all users running Mac OS X Snow Leopard and includes general operating system fixes that enhance the stability, compatibility, and security of your Mac, including fixes that:

- improve the reliability and compatibility of QuickTime X
- address compatibility issues with OpenGL-based applications
- address an issue that causes background message colors to display incorrectly in Mail
- resolve an issue that prevented files with the # or & characters in their names from opening in Rosetta applications
- resolve an issue that prevented files from copying to Windows file servers
- improve performance of Logic Pro 9 and Main Stage 2 when running in 64-bit mode
- improve sleep and wake reliability when using Bonjour wake on demand
- address a color issue in iMovie with HD content
- improve printing reliability
- resolve issues with recurring events in iCal when connected to an Exchange server
- improve the reliability of 3rd party USB input devices
- fix glowing, stuck, or dark pixels when viewing video from the iMac (Late 2009) built-in iSight camera

Hægt er að nálgast uppfærsluna í Software Update í Eplavalblaðinu eða sækja sem eina heild hér: http://support.apple.com/kb/DL1017

iTunes 9 var einnig uppfært í útgáfu 9.1 með stuðning við iPad:

- Sync with iPad to enjoy your favorite music, movies, TV shows, books and more on the go
- Organize and sync books you’ve downloaded from iBooks on iPad or added to your iTunes library
- Rename, rearrange, or remove Genius Mixes

Sömuleiðis er hægt að nálgast uppfærsluna í Eplavalblaðinu eða með því að heimsækja www.itunes.com.

Ný þjónusta á Maclantic: iTunes kort

www.maclantic.is/itunes

Vegna aukinnar eftirspurnar hef ég ákveðið að bjóða notendum að kaupa iTunes kort í gegnum Maclantic.

Það hefur komið í ljós að margir hafa lent í miklum vandræðum vegna svika á iTunes kortum í gegnum tíðina og hef ég því ákveðið að bjóða upp á þessa þjónustu fyrir notendur Maclantic.

Um er að ræða 100% lögleg kort sem keypt eru í Bandaríkjunum og fær fólk afhent mynd af kortinu ásamt kóða.

$50 iTunes kort verða til boða og kosta þau $60 stykkið.

Íslendingar hafa hingað til getað keypt sér 100% lögleg kort frá t.d. Maximuscards.com. Lesendur verða að gera sér grein fyrir því að innkaupaverðið á kortunum er það sama og andvirði þeirra. Ýmis færslugjöld koma frá Paypal. Einnig tekur vinur minn 50% af hagnaði fyrir umstangið. Með því að versla hér getið þið því verið 100% örugg um að kortin séu lögleg og – þið styrkið Maclantic samfélagið í leiðinni.

Eitt mjög mikilvægt atriði:

Aðgangur getur verið lokaður vegna fyrri kaupa viðkomandi aðila af ólöglegum kortum (hugsanlega án ykkar vitneskju). Þess vegna ráðlegg ég ykkur að stofna nýjan aðgang nema þið séuð 100% viss um að fyrri viðskipti ykkar á núverandi aðgangi hafi verið byggð á 100% löglegum iTunes kortum. Leiðbeiningar um hvernig stofna skal nýjan aðgang fylgir hverju keyptu korti.

Nánar um afgreiðslu korta og skilmála má nálgast hér:

www.maclantic.is/itunes

Stofnaðu iTunes aðgang án kreditkorts

zz053a582c

Eftir að App Store varð til hefur verið lítið mál að stofna iTunes aðgang án þess að hafa erlent kreditkort til að niðurhala ókeypis efni af iTunes eða einfaldlega hafa möguleikann opinn til að nota inneignarkort frá iTunes.

Apple er með mjög skýrar og góðar leiðbeiningar, þökk sé ókeypis forritum á App Store:

support.apple.com/kb/HT2534

iTunes kvikmyndir í háskerpu

zz2c9a6ed4

Í gær tilkynnti Apple að iTunes mun hefja sölu á high-definition kvikmyndum, en hingað til þess hefur einungis verið hægt að leigja þær.

Þetta er stórkostlegar fréttir fyrir þá sem vilja kaupa sér myndir og eiga þær í góðum gæðum.

Það sem vantar hins vegar í útgáfur frá iTunes er möguleiki á texta og aukaefni – en það kemur að öllum líkindum í framtíðinni.

Nýjar kvikmyndir í HD kosta $19.99 og fáanlegar til leigu 30 dögum eftir útgáfu á aðeins $4.99.

iTunes slóð

Ný 17″ MacBook Pro, iLife 09′ og iWork 09′ kynnt á Macworld

features17-display20090106.jpg

Rétt í þessu lauk Phil Schiller kynningu sinni á Macworld 2009. Satt að segja áttu flestir von á meiru á kynningunni s.s. nýrri Mac mini og jafnvel uppfærslu á iMac.

17″ MacBook Pro

Apple kynntu nýja 17″ MBP með sama útliti og núverandi 15″ vél. Á tölvunni er 1900×1200 LED upplýstur skjár, með 700:1 contrast ratio og stærra litsviði. Einnig er boðið uppá valmöguleikann á því að hafa skjáinn mattann fyrir $50. Ekki voru miklar uppfærslur á “standard” vélbúnaðinum aðrar en þær tölvurnar koma nú með innbyggðu batteríi sem endist í allt að 8 klst og 1000 hleðslur. Hægt er að velja um fjölda uppfærslna á vélinni en án allra auka endurbóta kostar hún $2799.

overview_hero1_image20090106.pngiLife 09′

iPhoto: Tvær nýjar leiðir kynntar til þess að flokka myndir, Faces og Places. Einnig er nú hægt að setja myndir beint úr iPhoto yfir á facebook eða flickr auk fjölda annarra nýjunga.

iMovie: Gerir nú fólki kleyft að búa til myndbönd á fljótlegan og einfaldan hátt en auðveldara er að klippa myndskeið sem aldrei fyrr. Einnig hefur verið bætt við alls kyns sniðugum effektum auk þess að forritið minnkar nú hristing á myndavélinni.

GarageBand: Helstu nýjungar eru þær að nú getur fólk lært að spila sín uppáhalds lög í gegnum forritið.

iLife 09′ mun koma út í janúar fyrir $79.

overview_hero1_image20090106-1.png

iWork 09′

Keynote: Forritið gert enn betra með alls konar nýjum effektum, auk þess að hægt verður að nota iPhone eða iPod touch sem fjarstýringu.

Pages: Núna getur fólk unnið skjölin sín í full-screen og með nýjum valmyndum. Einnig var stuðningi fyrir MathType 6 bætt við.

Numbers: Formúluskrif gerð einfaldari með nýjum formúluvafra auk fleiri möguleika á dálkauppsetningu.

iWork.com var kynnt til sögunnar en það gerir notendum kleyft að vinna skjöl og deila með öðrum á netinu.
iWork 09′ er komið út fyrir $79 en einnig verður hægt að kaupa það á $49 með nýrri Apple vél.

iTunes
Í dag munu 8 af 10 milljónum laga í iTunes Store verða DRM laus í gegnum iTunes Plus og í mars munu þær tvær milljónir sem eftir eru einnig verða það. Eigendur iPhone 3G munu nú geta náð í lög yfir 3G net í stað einungis Wi-Fi. Að lokum munu svo Apple breyta verðlagningu sinni á lögum í iTS sem hefst í apríl. Lögin verða á þá 69 cent, 99 cent eða $1.29.

Viltu fá iTunes Store og iPhone til Íslands?

Tekið af spjallborði Maclantic, skrifað af „BIRD“:

Ég var eitthvað að kvarta við Apple Customer Service vegna þess að Genius virkar ekki hjá mér. Ástæðan er sú að ég get ekki skráð mig inn á iTunes store þar sem það er ekki í boði á Íslandi.

En hún Amy sem ég talaði við ráðlagði mér að senda inn Feedback um þetta. Stakk meira að segja upp á að ég léti alla Apple nörda sem ég þekkti senda feedback líka. Það er kannski dropi í hafið en hefur vonandi eitthvað segja.

Þannig að ég legg til að allir Maclantic notendur sendi inn Feedback og biðji um tvennt:

1. Að iTunes Store verði virkt fyrir Ísland:
http://www.apple.com/feedback/itunesapp.html

2. Að iPhone verði seldur á Íslandi ASAP:
http://www.apple.com/feedback/iphone.html

Margt smátt gerir eitt stórt. Látið þetta endilega ganga og þá kannski fáum við eitthvað af viti hingað.

Eins og hann segir, allir að senda Apple feedback og látum heyra í okkur. Það skaðar allavega ekki :)

iTunes 8.0

genius20080909.jpg
Á Let’s Rock kynningunni í dag kynnti Steve Jobs nýja útgáfu af iTunes með nokkrum nýjungum.

Genius playlist er ein þessara nýjunga en það er í raun kerfi sem í raun virkar þannig að iTunes setur saman playlista með lögum útfrá einhverju lagi sem þú velur. Einnig er Genius sidebar að finna í iTunes 8.0 en það er kerfi sem byggir á upplýsingum iTunes notenda og mælir með tónlist úr iTS útfrá þínum smekk.

Svokölluðu Grid view hefur verið bætt við en það býður þér að skoða efnið þitt á nýjan hátt. Auk þessa eru sjónvarpsþættir nú líka seldir í HD gæðum á $2.99 og sjónvarpsstöðin NBC er aftur komin með sína þætti inní verslunina. Rúsínan í pylsuendanum má svo segja að segja að sé nýr vægast sagt flottur visualizer.

Meira um iTunes 8.0 hér.

Skissa af iTunes 8.0 o.fl.

magnetosphere.jpg

Kevin Rose, maðurinn sem virðist vera með alla orðróma á hreinu þessa dagana, telur sig vera kominn með það á hreint hvernig nýja iTunes 8.0 verður, en það er einmitt hann sem einnig telur að forritið muni koma út 9. september.

Hann hefur gert teikningu þar sem hann merkir inn alls konar nýjungar. Þar má nefna að hliðarstikan sem geymir smart playlists verður skipt út fyrir genius playlists. Einnig verður genius hliðarstika vinstra megin sem mælir með tónlist úr iTunes Store sem viðkomandi gæti litist á.

Samkvæmt Kevin mun iTunes ennþá hafa 3 valmöguleika til að skoða tónlistina; lista, cover flow en í stðainn fyrir listann með plötuumslögunum verða einfaldlega mörg plötuumslög saman (svipað og plötuumslaga skjáhvílan).

Til viðbótar sagði hann á dögunum að Apple hafi keypt Magnetosphere visulizerinn (sjá meðfylgjandi mynd) og að hann muni fylgja iTunes 8.0.

Nú er maður orðinn ansi spenntur fyrir morgundeginum og gaman verður að sjá hvort allt þetta reynist rétt hjá okkar manni.

-Ég minni svo á Apple Special Event klukkan 17:00 að íslenskum tíma í dag, 09.09.08.

Apple Special Event 9. september?

omt.jpg

Eins og orðrómurinn sem hefur verið í gangi undanfarið bendir til er það nánast öruggt að Apple muni halda kynningu á nýjum iPod tengdum vörum í september mánuði.

Rétt eins og í fréttinni hér á undan er það Kevin Rose sem heldur því fram að kynningin muni verða þriðjudaginn 9. september næstkomandi en einnig telja þeir hjá ArsTechnica og Gizmodo að sú muni verða raunin.

Nýir iPodar mjög bráðlega?

untitled image2.jpg

Tæknigúrúinn Kevin Rose hjá digg.com hefur tekið saman nokkur atriði í YouTube myndskeiði sem hann telur að Apple muni kynna einhverntímann fyrir lok september.

Hann nefnir eftirfarandi:

-Breytingar á allri iPod línunni

-Algjörlega ný hönnun á iPod Nano(sjá mynd) og smávægilegar á iPod Touch

-iPod spilarar munu lækka í verði

-2.1 software fyrir iPod Touch sem iPhone mun fá stuttu seinna

-iTunes 8.0 með miklum breytingum

Hægt er að sjá myndskeiðið hér.




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!