iPod nano (1. kynslóð) – INNKÖLLUN!

Tilkynning frá Epli.is

Í tilefni af villandi tilkynningum í íslenskum fjölmiðlum vegna útskipta á iPod nano fyrstu kynslóð vill epli.is koma á framfæri eftirfarandi:

Apple hefur ákvarðað að í einhverjum tilfellum geti rafhlöður í iPod nano fyrstu kynslóð ofhitnað og orsakað hættu. Á það við um iPod nano spilara sem voru framleiddir og seldir á tímabilinu september 2005 til desember 2006. Þetta á ekki við alla spilara af þessari gerð eins og kom fram í einum fjölmiðli.

Framleiðandinn ráðleggur öllum að hætta notkun á iPod nano fyrstu kynslóð og að viðkomandi setji sig í samband við þjónustuaðila Epli.is á Íslandi til að fá úr því skorið hvort spilarinn falli undir ofangreint.
Tækið mun vera sent til Apple sem að lokinni athugun sendir annað tæki í staðinn. Allt að 6 vikur geta liðið þar til tækið berst frá Apple.

Tilkynning frá Apple: http://www.apple.com/support/ipodnano_replacement/

Nánar hér:
http://www.epli.is/innkollun

Special Event hjá Apple 1. september

Apple hefur sent út boðskort til fjölmiðla um sérstaka kynningu þann 1. september kl. 10 í San Francisco.

Í september koma oftast nýjar línur af iPod og því má sérstaklega gera ráð fyrir að nýjar gerði verði kynntar.

Þar að auki er talað um nýtt Apple TV sem mun heita iTV og kosta aðeins $99.

Gert er ráð fyrir nýjungum þar á ferð (fyrir utan verðlækkunina), en talið er að græjan muni styðjast við iOS stýrikerfið sem er að finna í iPod touch, iPhone og iPad. Þar að auki að hægt verði að leigja þætti á 99¢ á iTunes Store (US).

Kemur í ljós eftir rúma viku!

Heimild

Joystiq komið í App Store

Leikjasíðan Joystiq hefur gefið út skemmtilega útgáfu af heimasíðu sinni í App Store fyrir iPhone og iPod touch.

Mun þægilegra er að lesa greinar, skoða vídeó og lesa gagnrýni en ella. Mæli eindregið með því.

Forritið er frítt og fæst hér.

Nýtt og nettara iPod/iPhone hleðslutæki frá Apple

MB707

Apple hefur kynnt nýtt hleðslutæki fyrir Evrópumarkað sem er mun nettara en fyrra tæki.

Álíka stærð af Apple USB hleðslutækjum hafa verið fáanlegar fyrir Bandaríkjamarkað sem og þau lönd sem nota breskar klær.

Nýja hleðslutækið er væntanlegt til landsins á næstu vikum.

64GB iPhone og 128GB iPod touch á næsta ári?

aah19101

Toshiba hefur tilkynnt fjöldaframleiðslu á 64GB NAND minniskubbum í byrjun næsta árs sem gefur Apple kost á að tvöfalda geymsluminni á tækjum á borð við iPod touch og iPhone.

Hingað til hafa 32GB kubbar verið framleiddir og þar sem iPod touch rýmir tvo kubba í einu, hefur stærsta útgáfan geta tekið 64GB (2x 32GB). Takmörkunin á iPhone er vegna plássleysis í símanum þar sem hann rýmir einn kubb, eða 32GB hingað til.

Tilkynningin gefur því Apple möguleika á að gefa út iPod touch með allt að 128GB geymslu og iPhone með allt að 64GB geymsluminni á næsta ári, en að sjálfsögðu veltir það líka á innkaupaverðinu á þessum fyrrnefndu NAND flash-kubbum frá Toshiba.

Heimild: MacRumors.com

Nýi iPod nano tekinn í sundur

p4xsDR4Z63tfGwXM.large

Það verður að segjast að kvikindið er mjög „shiny“

iFixit.com

Nýir iPodar 9. september

rock and roll

Apple hefur sent út boðskort til fjölmiðla um kynningu sem verður haldin þann 9. september kl. 10:00 í San Francisco (kl. 17:00 að íslenskum staðartíma).

Talið er að nýr iPod nano og touch verði kynntir með innbyggðri myndavél. Þar að auki er talað um að jarðarför iPod classic (myndin gefur það líka til kynna) verði þann sama dag þar sem iPod touch verði fáanlegur í allavega 64GB (flash) stærð.

Fylgist með!

Næstu kynslóðar iPod Touch með hljóðnema og myndavél?

overview-hero-20090514Tæknibloggsíðan Wired.com heldur því fram að verksmiðjur í Kína séu þegar farnar að framleiða næstu kynslóðar iPod Touch með hljóðnema og myndavél. Tækið, sem mun líklega koma út í september eða október, mun þá gera notendum kleift að nota það sem voice over IP “síma” þar sem Wi-Fi tenging er til staðar. Auk þessa myndi tækið geta notað Voice command, videoupptökur og enn fleiri forrit úr AppStore en það gerir nú.

Myndum af næstu kynslóð iPhone og iPod lekið?

iPhone matturSamkvæmt vef MacRumors gæti verið að næsta kynslóð af iPhone 3G verði með mattri bakhlið til að minnka rispur. Einnig er nefnt að síminn komi út í þremur útgáfum, eftir því hvað dreifikerfi hvers staðar býður upp á; 3G, bætt 3G og svo kínversk útgáfa. Talið er líklegt að símanum með bætta 3G kerfinu verði dreift í Bandaríkjunum til að unnt sé að nota nýja dreifikerfið þar, sem gerir niðurhal á allt að 7.2 megabitum á sekúndu kleyft.

Á vef iLounge kemur einnig fram að mögulegt gæti verið að iPod nano verði með áfastri myndavél, svipað og iPhone. Hann muni þó enn státa af hinu „geysivinsæla“ smelli-hjóli, sem margir furða sig á að skuli enn vera á iPod enda er sú uppfinning orðin fimm ára gömul.

MacRumors
iLounge

Er nýi iPod shuffle flopp?

shuffle-3g-unbox-generation-2Nýi iPod-spilarinn frá Apple fær mjög dræmar móttökur og þykir mörgum ákvörðun Apple um að fjarlægja stýrihnappa frá spilaranum mikil afturför.

iLounge hefur fengið spilarann í hendurnar og skrifað ágæta grein um hann. Nokkrir góðir punktar eiga rétt á sér í dómnum og þar á meðal má nefna:

  • Hvernig notar maður iPod shuffle með öðrum heyrnartólum? Hvað þá græjum?
  • Maður þarf loks að lesa leiðbeiningarnar til þess að geta notað spilarann / Flókinn
  • Of dýr / Var frá $49, er nú frá $79

Apple virðist hafa „leyst“ fyrsta vandamálið með því að gefa út snúru með mini-jack tengi sem hefur að geyma fjarstýringu. Hana þarf þó að kaupa sérstaklega og er þá iPod shuffle vægast sagt orðinn nokkuð dýr spilari.

Lesið grein iLounge hér.

Er nýi iPod shuffle flopp?

Sjá niðurstöður

Loading ... Loading ...



Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!