Viltu vinna iPhone 4?

Vefþátturinn Helginn (http://helginn.is) og vefverslunin Buy.is (http://buy.is) hafa sett af stað skemmtilegan leik á Facebook. Verðlaunin eru ekki af verri endanum. Fyrstu verðlaun eru hvorki meira né minna en iPhone 4 32GB í boði Buy.is. Leikurinn gengur út á notkun samfélagsmiðlanna Facebook og YouTube. Mikið af myndbrotum sem sýnd eru í Helganum koma einmitt af YouTube, en nú er komið að áhorfendum til að búa til efnið.

Til að taka þátt þarf að „Like-a“ Helgann og Buy.is á Facebook og svo þarf þátttakandi að segja af hverju sá á skilið að fá iPhone 4. Taka þarf skilaboðin upp á video, setja þau á YouTube og senda þeim slóðina á http://helginn.net/iphone4. Þeir fara yfir innsent efni og velja 10 myndbönd í úrslit. Úrslita myndböndin verða sett á Facebook og sá sem fær flest „Like“ vinnur.

Þessi leikur byggir á hugmyndaflugi og samfélagsáhrifum þátttakenda með hjálp þeirra netmiðla sem eru í boði í dag. Þátttakendur geta sent inn hvað sem er, en hver Facebook notandi getur aðeins tekið þátt einu sinni.

Tekið er á móti efni frá til 6. ágúst og úrslitin eru svo vikuna 8. – 14. ágúst. Sigurvegarinn verður kynntur í Helganum í vikunni þar á eftir. Kynningu leiksins má finna á http://www.helginn.is/2010/07/19/special-iphone-4-leikur/ og á http://www.youtube.com/watch?v=b_aY56g_8B4

Nánar um Helgann

Helginn er vefþáttur þar sem Helgi Hrafn og Helgi Steinar ræða um fréttir og efni af netinu. Þeir fá til sín gesti, prufa nýjustu tækni og ræða um það sem gengur og gerist að hverju sinni. Þátturinn varð 1. árs 1. júlí 2010 og náðu strákarnir að gefa út að meðaltali 3 þætti í mánuði. Helgi Hrafn er verkefnastjóri hjá hugbúnaðarhúsinu Stefnu og Helgi Steinar er verslunarstjóri NOVA á Akureyri.

Vefslóð: http://helginn.is
Twitter: http://twitter.com/helginn
Facebook: http://facebook.com/helginnTV
Youtube: http://youtube.com/helginnTV

Joystiq komið í App Store

Leikjasíðan Joystiq hefur gefið út skemmtilega útgáfu af heimasíðu sinni í App Store fyrir iPhone og iPod touch.

Mun þægilegra er að lesa greinar, skoða vídeó og lesa gagnrýni en ella. Mæli eindregið með því.

Forritið er frítt og fæst hér.

Skjáskot úr leiðarvísi fyrir HTC Droid Eris

Myndin segir allt sem segja þarf:

Sjá bls. 13 hér.

Antennagate vídeó frá Taiwan

Þetta ætti að fá flesta til að hlægja:

Er iPhone 4 í raun og veru með gallað loftnet? Maclantic prófar iPhone 4 og iPhone 3G

Formáli

Apple hélt blaðamannafund í gær þar sem rætt var um loftnetsvandamál á iPhone 4 og öðrum símum.

Í stuttu máli var sagt að allir GSM símar í dag væru með svipað vandamál (líka eldri gerðir af iPhone), að þeim þætti mjög vænt um viðskiptavini sína, að þeir myndu gefa ókeypis hulstur fyrir þá sem vilja þegar iPhone 4 er keyptur eða 100% endurgreiðslu.

Einnig var þessi síða stofnuð: http://apple.com/antenna/

Mæli með að hafa skoðað fyrrnefndu síðu og einnig að hafa lesið þessa frétt áður en grein mín er lesin: MacRumors: Apple to Offer Free Cases for iPhone 4 Customers.

Staðsetning


Ég er staddur í S-Þýskalandi, við Alpafjöllin, þar sem mikið er um hóla og hæðir í þessu undurfagra strjálbýla svæði. GSM sambandið hér er bæði mjög lélegt og sums staðar mjög gott, en það fer alveg eftir því hvort maður er uppi á hóli, milli hóla og fjalla eða einfaldlega í stórum og dimmum skógi.

Því fannst mér kjörið að nota tækifærið og aðstæðurnar og prófa nýja iPhone 4 símann minn ásamt iPhone 3G (sem er því miður farinn að líta út eins og gamall Nokia sími við hliðina á iPhone 4).

Ég ákvað að taka mér dágóðan göngutúr þar sem gengið var upp á fjöll, niður í drungalega og dimma skóga, og opin svæði þar sem kýrnar bauluðu og flugurnar æstar í að fá sér sopa af fersku íslensku blóði með ívafi af þýskum bjór.

(meira …)

iOS 4.0.1 uppfærsla frá Apple – Uppfært

Í dag gaf Apple út iOS uppfærslu fyrir iPhone 4, 3GS og 3G.

Um er að ræða útgáfu 4.0.1 af iOS, og inniheldur að öllum líkindum lagfærslu á loftnetsvandamáli á iPhone 4 ásamt skýrari og stærri mynd af GSM styrkleika.

Það verður að koma í ljós hvort þetta lagfærir loftnetsvandamálið eður ei, en ég er að uppfæra iPhone 4 símann minn í þessum skrifuðum orðum. Læt ykkur vita innan skamms!

Uppfærsla: Lagfærir ekki loftnetsvandamál. Verður áhugavert að sjá tilkynninguna á morgun frá Apple…

iPhone 4 fréttatilkynning á morgun

Apple hefur boðið helstu fjölmiðlum Bandaríkjanna til sín á fund þar sem rætt verður um iPhone 4.

Að öllum líkindum verður fjallað um vandamál sem tengjast loftneti símans, en mjög margir eru að upplifa lélegra GSM samband þegar haldið er á honum þannig að loftnetin tvö sem umliggja iPhone 4 tengjast vegna snertingu frá fingur eða lófa.

Ekki er vitað hvað Apple mun tilkynna á fjölmiðlafund sínum en tvennt kæmi t.d. til greina: hugbúnaðaruppfærsla sem lagar vandamálið og drepur allar umræður hjá fjölmiðlum er varða núverandi vandamál eða einfaldlega innköllun á iPhone 4.

Tilkynningin verður kl. 17 að íslenskum tíma á morgun, föstudaginn 16. júlí.

Keynote með Steve Jobs á WWDC í dag

Í dag mun Steve Jobs stíga á svið og kynna margt spennandi, þ.ám. næstu kynslóð af iPhone.

Það verður gaman að sjá hvort Apple sýni „sneakpeak“ af Mac OS X 10.7 og vonandi kynna þeir einhverjar aðrar djúsí vörur.

Til að fylgjast með kynningunni er hægt að skoða t.d. Engadget og MacRumorsLive (í fljótu bragði virðist sem Gizmodo ekki hafa verið boðið).

Kynningin hefst kl. 17 að íslenskum staðartíma.

Þeir sem vilja horfa á kynninguna þurfa líklegast að bíða til kvölds (fer oftast í loftið á milli kl. 22 og 23).

Slóðin að myndskeiðinu verður birt hér: www.apple.com/quicktime/qtv

Önnur frumgerð af iPhone týnd?

Samkvæmt Víetnömskum umræðuvef (er niðri sem stendur) hefur ónefndur aðili undir höndunum 4. kynslóð af iPhone.

Eins og margir kannast við, keypti Gizmodo slíkt tæki af aðila sem segist hafa fundið það á þýskum bar í San Francisco.

Það sem hins vegar er öðruvísi við þessa gerð er að hún skilgreinir geymslupláss, 16GB í þessu tilfelli, en frumgerðin sem Gizmodo keypti stóð á „XXGB“. Þar að auki eru engar skrúfur undir símanum eins og var á símanum sem Gizmodo var með.

Það verður að segjast býsna merkilegt ef Apple hefur tekist að týna tveimur frumgerðum af næstu kynslóð af iPhone, því fyrirtækið er þekkt fyrir að vera með mjög strangar öryggisreglur til að koma í veg fyrir að slíkir hlutir gerast. Eitthvað hefur hins vegar farið úrskeiðis í ár.

Talið er að iPhone 4G eða „iPhone HD“ eins og hann er sagður heita (vegna betri upplausnar á skjá), verði kynntur í júní á þessu ári þegar WWDC á sér stað í San Francisco í Kalíforníu-ríki.

Heimild og fleiri myndir: MacRumors

Steve Jobs svarar tölvupósti frá Maclantic

Það verður að teljast nokkuð merkileg tíðindi, en Steve Jobs svaraði tölvupósti sem ég sendi honum í gær er varðar iPad og iPhone tethering.

Í bréfi mínu til Steve Jobs tók ég fram hversu leitt það væri að horfa upp á að sjá þessi tvö tæki ekki virka saman, þ.e. að iPhone hafi möguleikann til þess að deila neti sínu (kallað „tethering“) með Bluetooth á iPad en iPad leyfi það ekki. Bréf mitt í heild sinni hljóðaði svo:

iPhone tethering and the iPad:
It’s very disturbing to think of these two devices that have the technology and ability to be able to connect to each other without a problem (I would think) and share each others Internet connection… But they can’t, because of your (or Apple’s) restrictions.
I understand you want to sell the 3G iPad, but doing this to your current iPhone customers isn’t the right thing to do. Sometimes it’s better to get more respect rather than making more money… Or perhaps less money in the long run?
Please reconsider this decision you’ve possibly made about restricting the iPad to connect to the iPhone via Bluetooth with Internet tethering enabled.
Best regards,
Bjorgvin Bjorgvinsson
Sent from my iPad
Svar Steve Jobs:

It is the carrier’s policy that restricts this, not Apple.

Sent from my iPhone

Það er nokkuð augljóst að AT&T hafi neitað að leyfa iPhone tethering fyrir iPad, en af minni bestu vitund er ekki hægt að nota iPhone tethering yfirhöfuð í Bandaríkjunum vegna reglugerða AT&T (það virkar þó í „hökkuðum“ iPhone símum þarlendis).
Hins vegar gildir þessi takmörkun ekki á Íslandi t.d. eða mörgum öðrum Evrópulöndum. Því gæti þetta breyst þegar iPad verður markaðssettur í Evrópu, hver veit?
En spurningin er þá sú, mun næsta iPad-hugbúnaðaruppfærsla frá Apple leyfa iPhone tethering á iPad þegar hann verður fáanlegur í Evrópu? Ef Steve Jobs er að segja sannleikann þá mætti gera ráð fyrir því, þar sem iPad er í raun bara markaðssettur í USA sem stendur og því hafa þeir líklegast ekki haft fyrir því að bæta við þessum möguleika í iPad stýrikerfinu.
Hins vegar þykir mér skrítið að ef takmörkunin er nú þegar til staðar hjá AT&T – til hvers þá að loka alfarið á það á iPad ef fólk getur hvort eð er ekki notað tethering á iPhone símanum sínum? Kemur í ljós í sumar geri ég ráð fyrir…



Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!