Fréttatilkynning frá Epli.is:
Föstudaginn 25. mars verður hulunni svipt af iPad 2, sem er önnur kynslóð af spjaldtölvunni vinsælu frá Apple. Eftir kl. 17:01 verður hægt að kynna sér iPad 2 í verslun Epli.is á Laugavegi 182 og hægt að panta á vefsíðu þess, www.epli.is, kl. 01:00 á föstudeginum.iPad 2 er algjörlega endurhönnuð og er 33% þynnri og allt að 15% léttari en fyrri kynslóð af iPad. Hún viðheldur sömu skjástærð og skjá (9,7” LED-baklýstur LCD). iPad 2 er með nýjan tveggja-kjarna A5 örgjörva frá Apple sem skilar mun meiri afköstum í hraða og grafík en áður. Þar að auki hefur hann að geyma tvær innbyggðar myndavélar, ein að framanverðu fyrir FaceTime® og Photo Booth® og ein að aftan sem getur tekið upp hreyfimyndir í háskerpugæðum (720p).Þrátt fyrir að vera þynnri, léttari og troðinn nýjum eiginleikum, fæst enn allt að 10 klst rafhlöðuending á iPad 2.iPad 2 með Wi-Fi mun vera á eftirfarandi verði; 79.990 kr. fyrir 16GB gerðina, 109.990 kr. fyrir 32GB gerðina og 126.990 kr. fyrir 64GB gerðina.iPad 2 með Wi-Fi og 3G mun vera á eftirfarandi verði; 114.990 kr. fyrir 16GB gerðina, 129.990 kr. fyrir 32GB gerðina og 149.990 kr. fyrir 64GB.Tveir litir verða í boði; svartur og hvítur.










The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.