USB 3.0 væntanlegt í Mac?

Margir hafa beðið örvæntingarfullir eftir að Apple skelli USB 3.0 tenginu í vélarnar sínar, en eftir að ThunderBolt-tengið var kynnt í nýjustu línunum telja margir að enn minni líkur séu á því að fyrrnefnda tengi fái að njóta makkans.

Nýjasti orðrómur segir hins vegar að Apple sé að leita leiða til að nota USB 3.0 staðalinn í tölvunum sínum, en Intel hafa verið seigir við að styðja kubbasettið. (Til upplýsinga var það Intel sem þróaði ThunderBolt tæknina.)

Hvenær það er væntanlegt eða hvort orðrómurinn sé réttur er erfitt að segja til um, en líklegt þykir að við fáum að sjá bæði ThunderBolt og USB 3.0 í Apple-tölvum á næstunni (rétt eins og USB 2.0 og FireWire 800 fengu að lifa saman).

Heimild

Nær MacBook Pro yfir 3GHz í sumar?

zz3c0e8c55

Samkvæmt heimildum mun Intel gefa út þrjár nýjar gerðir af örgjörvum fyrir ferðatölvur:

Core 2 Duo T9900 – 3.06 GHz með 6 MB skyndiminni
Core 2 Duo P9700 – 2.8 GHz með 6 MB skyndiminni
Core 2 Duo P8800 – 2.66 GHz með 3 MB skyndiminni

Í dag hefur MacBook Pro að geyma 2,4 / 2,53 / 2,66 GHz örgjörva, en það er einfaldlega tímaspursmál hvenær ofangreindu örgjörvar fara í næstu gerð af vélunum.

Áttu MacBook eða MB Pro með nýja útlitinu?

Sjá niðurstöður

Loading ... Loading ...

MacBidouille

Intel kynnir Centrino 2

ZZ474A4B67.jpgIntel hefur í dag kynnt til sögunnar nýja tækni sem ber heitið „Centrino 2“ (kallað Montevina) en hún hefur að geyma mun hraðvirkari Penryn Core 2 Duo örgjörva, brautarhraða og samnýtt skjákort (GMA X4500). Þar að auki er stuðningur við WiMax, sem er í stuttu máli langdræg þráðlaus tækni.

Það sem gerir Centrino 2 „djúsí“ er að örgjörvahraðinn nær frá 2,26 uppí 3,06GHz með 1066MHz brautarhraða, en núverandi (sem Apple notar í fartölvulínur sínar; MacBook og MacBook Pro) nær hámark 2,8GHz og 800MHz brautarhraða.

Gera má sterklega ráð fyrir að Apple uppfæri fartölvur sínar með Centrino 2 tækni (og jafnvel fáum við að sjá endurhönnun), en gera má ráð fyrir uppfærslu á næstu mánuðum.

Nánari upplýsingar um Centrino 2

Nýir Intel örgjörvar í vor

intel1.jpg

Í vor mun Intel kynna nýja línu af örgjörvum sem ber nú vinnuheitið Montevina en mun seinna meir vera kölluð Centrino 2. Sagt er að örgjörvarnir muni verða kynntir á Computex Taipei 2008 ráðstefnuni sem mun standa 3. til 7. júní.

Línan mun standa af sex nýjum fartölvu örgjörvum sem allir verða á bilinu 2.26GHz – 3.06GHz.

Þetta eru að sjálfssögðu mjög góðar fréttir fyrir okkur Apple notendur en Steve Jobs og félagar í Cuppertino munu að öllum líkindum nota þessa örgjörva í nýjar gerðir af MacBook og MacBook Pro tölvunum. Auk þessa er Intel einnig að þróa nýja örgjörva sömu stærða og þeim sem er í MacBook Air. -Semsagt, allt að fara gerast með vorinu hjá Intel.

Í stuttu máli: Macworld, Penryn og OS X

ZZ0B5574BB.jpg

Samkvæmt nýjustu fregnum mun Steve Jobs, forstjóri Apple, halda hið fræga „Keynote“ á Macworld-ráðstefnunni í San Francisco í byrjun janúar. Oft á tíðum eru nýjar og byltingarkenndar vörur kynntar þar og má þá búast við nýrri fartölvulínu ef orðrómurinn reynist vera réttur.

Markaðshlutdeild Makkans fer stækkandi með tímanum og samkvæmt nýjustu tölum hefur Windows-notendum fækkað um 1,74% á meðan Mac-notendur hafa aukist um 1,41% ef miðað er við nóvember 2006 og 2007.

Það fer að styttast í Penryn-örgjörvann frá Intel, en hann er uppfærsla af núverandi örgjörvum sem hafa verið notaðir í MacBook og MacBook Pro. Um er að ræða klukkutíðni frá 2,1GHz uppí 2,8GHz með allt að 6MB skyndiminni. Búast má við þeim í janúar og því nokkuð hentugt fyrir Apple að kynna eitthvað nýtt og spennandi í þeim mánuði (Macworld, einhver?).

Björt framtíð hjá Apple, ekki annað hægt að segja!

iMac 2,8GHz hraðari en allt – nema Mac Pro

imac_28_score.jpg

Nýjustu gerðina af 24″ iMac er hægt að sérpanta með 2,8GHz Core 2 Extreme örgjörva, en staðalútgáfan hefur uppá að bjóða 2,4GHz Core 2 Duo. Þessi vél hefur nú verið prófuð í hraða hvað varðar örgjörva og vinnsluminni og sýna niðurstöður augljóslega að hún slær allt út – nema að sjálfsögðu Mac Pro og Xserve.

Ef litið er á tölurnar fær fyrrnefnda vél 3740 en eldri gerðin af iMac með stækkuðum örgjörva (2,33GHz) fær ekki nema 3058 í einkunn.

Það er því augljóst að 24″ iMac 2,8GHz er ódýrasti kosturinn fyrir þá sem vilja öflugan makka og stóran skjá í einum pakka.

Sjá fleiri niðurstöður:www.primatelabs.ca

Santa Rosa mætt á svæðið

inasd091.jpgIntel hefur loks gefið út uppfærslu (2. kynslóð) af Core 2 Duo örgjörvum sínum ætlaðir fartölvum. Um er að ræða nafnið „Santa Rosa“ á nýju fartölvulínunni s.k., en örgjörvarnir þar eru ekki einungis hraðari heldur bjóða upp á mun hraðvirkari brautarhraða (800MHz á móti 667MHz).

Örgjörvarnir eru til í eftirfarandi útgáfum:

  • T7700 – 2,40GHz, 4MB L2 skyndiminni, 800MHz FSB
  • T7500 – 2,20GHz, 4MB L2 skyndiminni, 800MHz FSB
  • T7300 – 2,00GHz, 4MB L2 skyndiminni, 800MHz FSB
  • T7100 – 1,80GHz, 2MB L2 skyndiminni, 800MHz FSB
  • Það sem gerir örgjörvana merkilegri er að þeir nota minni orku (þ.a.l. kaldari) og gefa því lengri rafhlöðuendingu en fyrri kynslóð af Core 2 Duo. Þar að auki eru þeir ódýrari en eldri útgáfa af Core 2 Duo eins og hægt er að sjá á töflunni hér að neðan (nýju gerðirnar eru efst):

    santarosa.gif
    Smellið til að stækka

    Búast má við að MacBook Pro verði fyrsta línan hjá Apple til að fá þessa nýju örgjörva og jafnvel LED-baklýsingu á LCD skjái sína á næstunni. Erfitt er að segja nákvæmlega hvenær tölvurnar verða uppfærðar en telja má að það verði í júní.

    www.appleinsider.com

    Næsta kynslóð örgjörva frá Intel í þróun

    Intel_logo.jpgIntel hefur í dag gefið út ítarlegar upplýsingar um næstu kynslóð af 45nm örgjörvum á heimasíðu sinni en þar kemur fram hvað við megum búast við frá þeim á næstunni.

    Örgjörvinn sem um er að ræða ber nafnið Penryn, en hann mun hafa eftirfarandi eiginleika:

  • Yfir 3GHz í hraða
  • Tveggja kjarna með 6MB L2 skyndiminni, 4x kjarna með 12MB L2
  • Hraðaaukningu hvað varðar Intel Virtualization Technology
  • „Enhanced Intel Dynamic Acceleration Technology“. Þetta þýðir einfaldlega að þegar annar kjarninn er óvirkur/sofandi þá mun annar fá aukna orku til að sinna forritum sem nota einn kjarna.
  • „Deep Power Down Technology“. Rafhlöðuending á fartölvum mun aukast þegar lítil sem engin vinnsla er í gangi.
  • Eins og staðan er í dag hefur Intel áætlað að hafa 15 gerðir af Penryn, en þeir munu þá flokkast undir „Core“ og „Xeon“ nöfnin eins og núverandi gerðir bera. Core hefur þá að geyma tveggja kjarna fartölvuörgjörva ásamt tveggja- og fjögurra kjarna borðtölvuörgjörva. Xeon mun þá hafa tveggja- og fjögurra kjarna gerðir fyrir þyngri vinnslu (Mac Pro er með Xeon örgjörva).

    Búast má við að þessar nýju gerðir af örgjörvum komi seinni part þessa árs.

    www.intel.com/pressroom

    Boot Camp styður nú Windows Vista

    bootcamp_icon.jpgApple hefur gefið út uppfærslu af Boot Camp, sem gerir mann kleift að innsetja Microsoft Windows stýrikerfið á Mac með Intel-örgjörva, og styður núverandi útgáfa bæði Windows XP Pro og Windows Vista.

    Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar:

  • Stuðningur fyrir Windows Vista (32ja-bita útgáfuna)
  • Uppfærsla á reklum á borð við hljóð, módem og iSight
  • Stuðningur við Apple Remote (hægt að stjórna iTunes og Windows Media Player)
  • Endurbætt innsetningarferli fyrir Windows rekla
  • Apple Software Update (fyrir bæði Windows XP og Vista)
  • Boot Camp er 138MB að stærð og hægt að ná í hér:
    www.apple.com/bootcamp

    Airport Extreme uppfærsla

    airport.jpgApple hefur gefið út Airport Extreme uppfærslu fyrir Makka með Intel-örgjörva.

    This update is recommended for all Intel-based Macintosh computers and provides compatibility with AirPort Extreme base stations and networks.

    Uppfærslan fæst að vana í Software Update í Apple-valblaðinu.




    Auglýsingar

    Maclantic á Facebook

    Kommentið á Epic Games:

    (Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

    Joy of Tech

    Nýjasta Joy of Tech!