Apple kynnir iLife ‘11

Í dag kynnti Apple uppfærða útgáfu af iLife pakkanum sem inniheldur ýmsa nýja og spennandi eiginleika í iPhoto, iMovie og GarageBand.

Þar að auki hefur verðmiðinn lækkað um tæp 40% og er nýja verðið í USA $49 (áður $79).

iPhoto hefur nýja og skemmtilega vídd, en hægt er að nota það og vinna í algjörlega í „full screen“ eða með því að nýta allan skjáinn. Þar að auki er endurbætt viðmót til að deila myndum á m.a. Facebook og með skeytum.

iMovie hefur nú loksins möguleika til að klippa hljóð og þar að auki skemmtilega fídusa á borð við Movie Trailer, sem einfaldar gerð á kynningu stuttmynda eða mynda.

GarageBand býður upp á nýja skemmtilega leið til að spila á píanó/hljómborð undir spil sinfóníu. Þessu má líkja við Singstar, sem við það kannast, en í þessu tilfelli er píanóið sem ræður. Þar að auki er nýr fídus sem gerir notandanum möguleika á að sameina takt á mörgum hljóðupptökum í einu.

Margir aðrir fídusar eru í nýja iLife ‘11, en til að fá nánari lýsingar á því er gott að kíkja á
www.apple.com/ilife

Styttist í stóru stundina

Í dag kl. 17:00 mun Apple kynna nýjar vörur sem tengjast makkanum. (Því er óþarfi að halda að það tengist iOS stýrikerfinu).

Talið er að kynningin verði send beint út eins og var gert á síðustu kynningu, en það hefur ekki enn verið staðfest af Apple.

Mikið hefur verið talað um að Apple tilkynni nýja fartölvu sem verði örþunn með allt að 10 klst rafhlöðuendingu (ágiskun Maclantic: tölva úr liquid metal). Einnig er talið að iLife ‘11 verði kynnt til sögunnar og Mac OS X Lion (10.7).

Við munum senda inn frétt með slóð um leið og við vitum meira.

Fylgist með á Maclantic!

Staðfest: Apple kynning 27. janúar

top

Apple hefur sent boðskort til fjölmiðla um sérstaka kynningu sem verður haldin þann 27. janúar, eða eftir rúma viku.

Samkvæmt orðrómi er talið að ný fartölva með snertiskjá verði kynnt, nýtt iPhone stýrikerfi (OS 4.0) og iLife 2010.

I spoke to a source at Apple this morning, before the invite hit my inbox, who said the event would likely focus on three projects: The tablet device, iPhone 4, and a new round of iLife 2010 software. While we won’t see new iPhone hardware just yet, we will see the next-generation software.

Kynningin hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma, miðvikudaginn 27. janúar.

Heimildir: Engadget, MacRumors og Fox News.

Fékkstu ekki iLife ‘09 með nýju vélinni?

ZZ13A9722A.jpg

Loksins er Ísland með á kortinu hjá Apple, því nú er hægt að sækja um iLife ‘09 uppfærslu fyrir þá sem keyptu tölvu 6. janúar eða seinna.

Sendingar- og efniskostnaður er $10 og þeir taka við kreditkortum með hjálp PayPal. Ekkert nema snilld.

http://www.apple.com/euro/ilife/uptodate/

iWork ‘09 ásamt iLife ‘09 komið í Applebúðina

ilife09iwork09.jpg

Loks eru nýju uppfærslurnar af iWork og iLife komnar til landsins, en þær innihalda mikið af áhugaverðum eiginleikum sem hægt er að kynna sér á apple.com/ilife og apple.com/iwork.

Single license (einstaklingsútgáfa) er á 12.990 kr. og Family Pack (fjölskylduútgáfa) á 16.990 kr.

Uppfært: Mac Box Set, sem inniheldur iLife, iWork og Mac OS X Leopard er einnig komið, kostar 37.990 kr. og er fjölskylduútgafa (fimm tölvur).

Keyrðu iMovie ‘09 á PowerPC G4 örgjörva

Samkvæmt lágmarkskröfum Apple til að nota nýjustu útgáfu af iMovie þarf að hafa a.m.k. 1,9GHz G5 eða Intel örgjörva.

Fyrir hina sem standast ekki þessar kröfur geta nú glaðst því hægt er að breyta forritinu þannig að það virki á eldri örgjörva.

Leiðbeiningar fást á Mac OS X Hints.

Ný 17″ MacBook Pro, iLife 09′ og iWork 09′ kynnt á Macworld

features17-display20090106.jpg

Rétt í þessu lauk Phil Schiller kynningu sinni á Macworld 2009. Satt að segja áttu flestir von á meiru á kynningunni s.s. nýrri Mac mini og jafnvel uppfærslu á iMac.

17″ MacBook Pro

Apple kynntu nýja 17″ MBP með sama útliti og núverandi 15″ vél. Á tölvunni er 1900×1200 LED upplýstur skjár, með 700:1 contrast ratio og stærra litsviði. Einnig er boðið uppá valmöguleikann á því að hafa skjáinn mattann fyrir $50. Ekki voru miklar uppfærslur á “standard” vélbúnaðinum aðrar en þær tölvurnar koma nú með innbyggðu batteríi sem endist í allt að 8 klst og 1000 hleðslur. Hægt er að velja um fjölda uppfærslna á vélinni en án allra auka endurbóta kostar hún $2799.

overview_hero1_image20090106.pngiLife 09′

iPhoto: Tvær nýjar leiðir kynntar til þess að flokka myndir, Faces og Places. Einnig er nú hægt að setja myndir beint úr iPhoto yfir á facebook eða flickr auk fjölda annarra nýjunga.

iMovie: Gerir nú fólki kleyft að búa til myndbönd á fljótlegan og einfaldan hátt en auðveldara er að klippa myndskeið sem aldrei fyrr. Einnig hefur verið bætt við alls kyns sniðugum effektum auk þess að forritið minnkar nú hristing á myndavélinni.

GarageBand: Helstu nýjungar eru þær að nú getur fólk lært að spila sín uppáhalds lög í gegnum forritið.

iLife 09′ mun koma út í janúar fyrir $79.

overview_hero1_image20090106-1.png

iWork 09′

Keynote: Forritið gert enn betra með alls konar nýjum effektum, auk þess að hægt verður að nota iPhone eða iPod touch sem fjarstýringu.

Pages: Núna getur fólk unnið skjölin sín í full-screen og með nýjum valmyndum. Einnig var stuðningi fyrir MathType 6 bætt við.

Numbers: Formúluskrif gerð einfaldari með nýjum formúluvafra auk fleiri möguleika á dálkauppsetningu.

iWork.com var kynnt til sögunnar en það gerir notendum kleyft að vinna skjöl og deila með öðrum á netinu.
iWork 09′ er komið út fyrir $79 en einnig verður hægt að kaupa það á $49 með nýrri Apple vél.

iTunes
Í dag munu 8 af 10 milljónum laga í iTunes Store verða DRM laus í gegnum iTunes Plus og í mars munu þær tvær milljónir sem eftir eru einnig verða það. Eigendur iPhone 3G munu nú geta náð í lög yfir 3G net í stað einungis Wi-Fi. Að lokum munu svo Apple breyta verðlagningu sinni á lögum í iTS sem hefst í apríl. Lögin verða á þá 69 cent, 99 cent eða $1.29.

Mailplane – frábær viðbót fyrir góða póstþjónustu!

mailplane01.jpg

Gmail er sennilega ein besta veflæga póstlausnin sem fáanleg er. Þegar þessi orð eru skrifuð fær hver notandi nálægt þremur gígabætum úthlutað – frítt! Sjálfur hef ég eingöngu notað gmail síðustu tvö árin og er ekkert að fara að skipta yfir í aðra þjónustu. Hversvegna?

Í fyrsta lagi þykir mér þægilegt að hafa sama viðmót, tungumál og forrit, hvort sem ég er heima, í vinnu eða á ferðalagi. Þá skiptir vafrinn eða stýrikerfið ekki máli því viðmótið er veflægt.

Í öðru lagi er Gmail á íslensku. Það þykir mér kostur, ekki síst fyrir þá sem vilja stafsetningaryfirlestur áður en þeir senda frá sér póstinn sinn. (Yfirlestur fyrir íslensku er nú innbyggður í Gmail)

Í þriðja lagi er leit innan pósthólfs ákaflega auðveld í Gmail. Ég var með Gmail tengt við Mail.app en alltaf þegar ég þurfti að leita að einhverju mikilvægu endaði ég hreinlega á að fara inná Gmail í vafranum mínum og framkvæma leitina þar með niðurstöðu nokkrum sekúndum síðar.

Í fjórða lagi: Samtöl. Gmail hefur einstaklega lógíska leið til að raða saman samtölum, þ.e.a.s þegar menn svara sama pósti fram og til baka yfir lengra tímabil.

Í fimmta lagi er ruslpóstvörn Gmail að mínu mati ein sú besta sem völ er á – frítt!

Það var því með ákaflega jákvæðu viðhorfi sem ég prófaði Mailplane, forrit sem er byggt utan um veflægan grunn Gmail en hefur auk þess virkni góðs makkaforrits, samhæfingu við Address Book og iLife forritin, Growl tilkynningar, innsetningu textabúta, tekur fyrir þig skjáskot eða sendir fyrir þig nýjustu myndirnar úr iPhoto og minnkar þær eftir þinni fyrirfram ákveðnu forskrift. Og ekki sakar að forritið kemur einnig með íslenskri þýðingu.

En snúum okkur að praktískum atriðum. Ef menn vilja hafa íslenskt viðmót er einfaldlega hægrismellt í táknmynd forritsins og valið Info. Síðan eru önnur tungumál en íslenska afhökuð og forritið ræst.
Þegar forritið er ræst í fyrsta skipti er viðkomandi beðinn um að skrá inn notandanafn og lykilorð.

mailplane02.jpg

Þá birtist kunnuglegt viðmót Gmail á skjánum, en með nokkrum mikilvægum viðbótum. Efst er komin verkfærastika og fyrir þá sem nota meira en einn Gmail aðgang er hægt að opna hliðarskúffu og skipta milli aðganga á fljótlegan máta.

Það væri of langt mál að telja upp alla þá eiginleika sem forritið er búið – semja, lesa, eyða, stjörnumerkja eða þjappa kæmi fáum á óvart. En ég ætla að nefna nokkur atriði sem standa uppúr.

Hingað til hefur samhæfing iLife forritanna við Gmail ekki verið nein. Ferillinn við að senda mynd úr iPhoto hefur einhvernveginn verið á þessa leið hjá mér: Draga mynd út úr iPhoto, opna Photoshop og minnka hana í viðeigandi stærð, innskrá sig inní Gmail og hlaða upp myndinni sem viðhengi eftir að vera búinn að finna hana á skjáborði eða annars staðar.

Með Mailplane er ferillinn öðruvísi. Opna iPhoto, velja myndina (eða myndirnar) og smella á einn hnapp. Myndin eða myndirnar eru sjálfkrafa settar í rétta stærð, vistaðar og settar sem viðhengi í nýjan póst. Hægt er að velja fyrirfram ákveðnar myndastærðir í stillingum Mailplane og gera þannig langdreginn feril að fljótlegri og skemmtilegri lausn. Mailplane „optimizar” einnig myndirnar, þ.e. fær út bestu mögulegu útkomu varðandi stærð í bætum miðað við gæði.

mailplane03.jpg

Að auki er í verkfærastiku Mailplane að finna hnapp sem ber nafnið iMedia sem einsog nafnið bendir til tengist iLife forritunum frá Apple. Ef smellt er á hnappinn opnast gluggi þar sem hægt er að velja á milli hljóðs, ljósmynda eða hreyfimynda. Síðan má einfaldlaga draga og sleppa þeirri skrá sem valin er, hvort sem það er hljóðskrá, myndskrá eða kvikmyndaskrá.

Ef þú vilt hinsvegar senda mynd í fullri upplausn má halda niðri command eða slaufu hnappinum meðan dregið er og sleppt og fara þannig framhjá þeim stillingum sem settar hafa verið.

Með Mailplane má einnig taka skjáskot sem vistast sjálfkrafa sem viðhengi við skilaboð. Allt með því að smella á einn hnapp og ákvarða síðan hvaða hluta skjásins á að mynda, hvaða forriti eða hvort um venjulega skjáborðsmynd er að ræða.

Mailplane er þessa dagana í betaútgáfu og ekki hefur verið hægt að fá að prófa forritið nema gegnum „invitation”.

Ég hafði samband við Ruben Bakker, höfund Mailplane, sem góðfúslega úthlutaði Maclantic lesendum þrjátíu „boðsmiða” fyrir forritið og er einfaldlega hægt að setja nafn og netfang hér að neðan í athugasemdakerfið eða senda beint á mig á netfangið pallisvans (hjá) gmail punktur com og verður þá póstur sendur á viðkomandi með tilheyrandi upplýsingum – fyrstir koma, fyrstir fá.

Uppfært: Allir boðsmiðar kláraðir en hægt er að skrá sig hér og sjá hvort að boðsmiði komi ekki fljótlega í póstinum.

iLife ‘08 og iWork ‘08 lent í Apple IMC

ilife08.jpg

iLife ‘08 og iWork ‘08 lenti í dag í Apple IMC.

Verðið hefur komið fram hér áður en iLife er á 6.990 kr. og iWork á sama verði. Fjölskyldupakkar (5 leyfi) eru á 9.990 kr. [leiðr] 8.990 kr.

iMac verð og fleiri upplýsingar

imac2024.jpg

Þar sem margir eru orðnir mjög spenntir fyrir nýjustu útgáfunni af iMac og tugir fyrirspurna berast daglega, er því kjörið að tilkynna upplýsingar um verð og fleira hér á fréttavef Maclantic.

Verð

20″ iMac 2,0GHz – 129.990 kr.
20″ iMac 2,4GHz – 159.990 kr.
24″ iMac 2,4GHz – 189.990 kr.
24″ iMac 2,8GHz – 229.990 kr. (sérpöntun)

iLife ‘08 – 6.990 kr.
iWork ‘08 – 6.990 kr.

Mac mini – ekki enn vitað

Afhendingartími

iMac
Ekki er vitað um afhendingartíma, en það má því miður búast við örlítilli bið sem þýðir um 4-6 vikur. Það eru þó ávallt líkur á því að vélar detti inn fyrr en reynslan segir okkur að þegar nýjar vélar eru kynntar – sérstaklega með nýrri hönnun – þá er rúmur mánuður góður viðmiðunartími.

iLife og iWork
Ca. 2-3 vikur, gæti þó orðið styttra. Verður tilkynnt síðar.

Mac mini
4-6 vikur, jafnvel fyrr.




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!