Í dag kynnti Western Digital til sögunnar Scorpio Blue 750GB harðan disk fyrir fartölvur (2,5″ Serial-ATA).
Um er að ræða 9,5mm þykkan disk sem inniheldur tvær plötur (2x 375GB) og er 5400RPM (snúningar á mínútu).
2,5″ 750GB harðir diskar er engin nýjung, en hingað til hafa þeir einungis verið fáanlegir í 5200RPM og 12,5mm að þykkt sem gerði það að verkum að þeir pössuðu ekki í allar gerðir af fartölvum.
Áætlað söluverð í Bandaríkjunum er $149 og er vörunúmerið á disknum WD10TPVT fyrir áhugasama.
Nánari upplýsingar um diskinn: wdc.com/en/products/products.asp?driveid=815
Skrifað í flokkinn: Íhlutir
Skrifa athugasemd

Hitachi hefur kynnt til sögunnar fyrsta 3,5″ SATA diskinn sem er 7200 snúninga (7200RPM) í heilum 2TB (terabæt) með 32MB skyndiminni.
Hingað til hefur þessi stærð einungis verið fáanleg frá WD (Western Digital) með 5400RPM, sem er mun hægari diskur en hinn fyrrnefndi.
Ekki er enn vitað hvað verðið á Hitachi disknum mun verða.
Nánari upplýsingar um vöruna er hægt að nálgast á heimasíðu Hitachi.
Skrifað í flokkinn: Íhlutir
1 athugasemd / Skrifa athugasemd
Í dag kynnti Western Digital til sögunnar tvær gerðir af 2,5″ hörðum diskum, en sú stærð er notuð í flestum tegundum fartölva í dag.
Um er að ræða stærðirnar 750GB og 1TB í WD blue flokknum (5400 RPM), en hingað til hefur stærsta gerðin verið 500GB og því um að ræða nokkuð stórt stökk hvað gagnageymslu varðar.
Hins vegar skal hafa í huga að þessir nýju diskar eru 12,5mm þykkir (venjulega eru 2,5″ diskar 9,5mm) sem þýðir að þeir passa því miður ekki í fartölvurnar frá Apple enn sem stendur.
Diskarnir verða seldir í utanáliggjandi USB 2.0 húsi og verðið er $189,99 fyrir 750GB og $249,99 fyrir 1TB.
Heimild: Hardmac.com
Skrifað í flokkinn: Jaðartæki, Íhlutir
4 athugasemdir / Skrifa athugasemd

Barefeats er án efa ein virkasta síðan í að gera alls konar hraðaprófanir á vélbúnaði sem viðkemur Mac. Þeir hafa nú prófað að skella tveimur SSD (solid state drive) í eina MacBook Pro vél og miðuðu þá við X25-M SSD diskinn frá Intel.
Hraðinn er gífurlegur og nánast erfitt að trúa hve mikill hann er. Ég læt ykkur um að skoða niðurstöðurnar á vefsíðu þeirra.
Nánar hér.
Skrifað í flokkinn: MacBook Pro, Íhlutir
3 athugasemdir / Skrifa athugasemd
Samkvæmt Fudzilla mun Western Digital (WD) gefa út 3,5″ SATA harðan disk með 2TB rými á næstu dögum.
Eins og staðan er í dag eru stærstu 3,5″ diskar fáanlegir með allt að 1TB og má því segja að um sé að ræða nokkuð stórt skref hjá WD.
Diskurinn verður annað hvort 5400 eða 7200RPM samkvæmt heimildum og er talið að verðið verði í kringum €160 – €180.
Verður gaman að sjá hvort þetta rætist í næstu viku.
Fudzilla.com
Skrifað í flokkinn: Íhlutir
1 athugasemd / Skrifa athugasemd

AMD hefur gefið út nýtt skjákort fyrir Mac Pro sem ber heitið ATI Radeon HD 3870, sem hefur að geyma tvö dual-link DVI-tengi, 512MB GDDR4 vinnsluminni og 320 stream örgjörva.
AMD is introducing the ATI Radeon HD 3870 Mac & PC Edition to enhance the Mac experience to maximum levels of 3D gaming and HD performance. Mac users demand the best when it comes to HD graphics performance, and the ATI Radeon 3870 Mac & PC Edition is designed to meet and exceed that need by delivering The Ultimate Visual Experience™ to our customers’ displays.
Það skemmtiega við kortið er að það passar í allar gerðir af Mac Pro, en það verður fáanlegt í lok júní á $219 í BNA.
Fréttatilkynning frá AMD
Skrifað í flokkinn: Mac Pro, Íhlutir
Skrifa athugasemd
Þökk sé MCE Technologies er nú hægt að setja allt að 1TB af geymsluplássi í MacBook Pro. Lausnin byggist á því að skipta út geisladrifinu og setja þess í stað „OptiBay drive“ frá MCE, en það virkar eins og harðadiskbox sem hefur sama tengi og innbyggð geisladrif í MacBook/MacBook Pro.
Heppnir 17″ MacBook Pro eigendur geta því glatt sig yfir því að geta haft allt að 1TB (2x 500GB) fyrir aðeins $799 USD án vsk., en eigendur MacBook og 15″ MacBook Pro geta sett allt að 2x 320GB diska. Ástæðan er einfaldlega sú að núverandi 500GB fartölvudiskar (2,5″) eru örlítið of þykkir fyrir þær, þ.e. meira pláss er í 17″ MB Pro.
Tómt OptiBay hólf er á $99, en hægt er að fá þau með innsettum disk og utanáliggjandi box fyrir geisladrifið sem tekið er úr vélinni.
Gæta skal að aðgerðir sem þessar eru gerðar á eigin ábyrgð og rýfur neytendaábyrgð tölvunnar.
www.mcetech.com/optibay
Skrifað í flokkinn: MacBook, MacBook Pro, Íhlutir
3 athugasemdir / Skrifa athugasemd
Samsung hefur kynnt nýja vöru sem verður að teljast nokkuð merkileg, því hún er sú stærsta af sinni gerð og tegund hingað til.
Um er að ræða 2,5″ harðan disk sem passar í flestar fartölvur í dag; 500GB SATA. Það sem gerir hann enn merkilegri er að hann nær 5.400-snúningum á mínútu en Apple er í dag að bjóða upp á 300GB uppfærslu í MacBook Pro tölvurnar sínar með einungis 4.200-snúninga disk.
Ekki skaðar verðmiðinn, því diskurinn kostar aðeins $299 á Bandaríkjamarkaði.
MacBook Pro með 500GB hörðum disk? Já, takk.
www.electronista.com
Skrifað í flokkinn: Íhlutir
8 athugasemdir / Skrifa athugasemd
Seagate tilkynnti að þeir myndu hefja framleiðslu á allt af 450GB diskum sem eru hvorki meira né minna en 15.000-rpm, þ.e. snúningshraðinn er allt að 15,000 á hverri mínútu. Til viðmiðunar eru flestir diskar í dag 5.400-rpm (fartölvur) eða 7.200-rpm (borðtölvur).
Diskarnir verða framleiddir sem SAS (Serial Attached SCSI) og Fibre Channel, sem virka þá einungis á/með vélbúnaði á borð við Mac Pro og Xserve.
HANOVER, Germany-March 4, 2008-Seagate Technology (NYSE:STX) announced it will begin shipping its new Cheetah® 15K.6 hard drive this month. Designed for the world’s most demanding enterprise storage environments, the Cheetah 15K.6 drive is Seagate’s highest-performance hard drive ever in a 3.5-inch form factor, with a 28% increase in sustained data transfer rates compared to previous generations. With this new performance on tap, the Cheetah 15K.6 drive remarkably consumes significantly less power, using up to 61% less energy in both idle and operational modes.
Nánari upplýsingar um vöruna hér.
Skrifað í flokkinn: Íhlutir
1 athugasemd / Skrifa athugasemd
15. desember 2007 | Bjöggi
| Senda á Facebook

Seint í gær kynnti Intel nýja gagnageymsluflögu sem er sú minnsta sem fyrirfinnst á markaðinum í dag.
Um er að ræða 566 mg (0,6 g) þunga flögu sem er minni en íslensk króna að stærð og mun hraðvirkari en núverandi NAND-flash kort. Leshraði er í kringum 40MB á sekúndu og skrifhraði 30MB/sek.
Hið fyrrnefnda kort, sem ber heitið Z-P140 (hvað er annars málið með þessar nafnagiftir?), hefur að geyma 2GB pláss en mun ná 4GB um mitt árið 2008 og 16GB í framtíðinni.
Aðalkostur þessarar flögu er að hún hentar mjög vel í ferðatæki á borð við fartölvur þar sem nánast hvaða stýrikerfi sem er keyrir á henni án þess að þurfa harðdiskstýringu eins og er í tölvum í dag. Eini ókostur hennar, að mínu mati, er að hún er P-ATA stýrð.
Áætlað er að Z-P140 verði markaðssett á sama tíma og Menlow, sem er næsta kynslóð ferðaörgjörva, þ.e. á næsta ári.
Hvort þessi flaga hefur góðan möguleika á markaðinum er erfitt að segja, en augljóst er að geymslupláss Z-P140 verður að stækka til muna til að ná árangri.
www.intel.com
Skrifað í flokkinn: Íhlutir
Skrifa athugasemd