Viltu vinna eintak af Things fyrir Mac?
Einn heppinn aðili verður dreginn út! Sendu einfaldlega tölvupóst á vefstjori(hjá)maclantic.is og segðu mér af hverju þú eigir að fá eintak. Tilkynnt verður um vinningshafa í næstu viku.
Things
Í daglegu lífi er ýmislegt sem ég þarf nauðsynlega að muna og annað sem skiptir minna máli og má bíða betri tíma. Það sem fyrst kemur upp í kollinn er „jah, ég nota auðvitað Mail og iCal til að sinna þessum erindum“ en því miður hefur engum tekist það nógu vel. Þangað til nú…
Ég rakst á forritið „Things“ á vefrápi um daginn og ákvað að prófa það eftir að hafa skoðað myndskeið sem lýsti því nokkuð vel. Það sannaði sig strax og stóðst kröfur mínar sem minnisleysingja svo vægast sé sagt.
Things frá fyrirtækinu Cultured Code er líklegast best lýst sem svo að
„þú einfaldlega manst eftir öllu sem þú þarft að gera“.

Ekki þarf sérstaklega að skipta yfir í forritið til að bæta við minnismiða. Einfaldlega er notuð flýtiskipun sem birtist fyrir ofan alla glugga (t.d. ctrl-alt-space) þar sem hægt er að skrifa meginmál, flokka minnismiðann og jafnvel tengla skjöl, slóð eða mynd beint í athugasemdir hans. Hér sjáið þið dæmi:

Flokkunarkerfið er eitt af því þægilegasta sem finnst. Það er hægt að birta einungis flokka sem þig langar að sjá, t.d. „Vinna“ eða „Heimaverkefni“ og einnig eftir tímaramma. Ekki þarf sérstaklega að búa til flokka, heldur býr forritið til nýja um leið og notandinn skrifar þá niður á minnismiðann.
Meðal margra fídusa er einnig hægt að búa til verkefni og innan í því minnispunkta sem hægt er að tengja saman. Þetta hentar sérlega stærri verkefnum.
Virkar með iPhone og iCal
Það sem gerir forritið enn skemmtilegra er að það fæst einnig fyrir iPhone (og iPod touch) í App Store. Mjög vandað og einfalt forrit sem syncar sig við Things á Mac á þráðlausu neti.
Things tengist og færir einnig upplýsingar í iCal án vandræða.
Slóðir o.fl.
Things fyrir Mac
Things fyrir iPhone
Myndband (mæli með því)
Einnig er hægt að ná í prufueintak á vefsíðu þeirra hér.
Skrifað í flokkinn: Forrit
17 athugasemdir / Skrifa athugasemd