Apple hættir framleiðslu á 24″ og 30″ Cinema Display

Eins og margir hafa tekið eftir, þá kynnti Apple 27″ LED Cinema Display í gær en að sama skapi hefur fyrirtækið hætt að framleiða 24″ LED Cinema Display og 30″ Cinema Display. Ákveðið hefur verið að selja skjáina á meðan birgðir endast.

Nýi 27″ skjárinn má segja að komi í staðinn fyrir eldri 30″ Cinema Display þar sem hann ber nánast sömu upplausn (2560 x 1440 á móti 2560 x 1600), en ekki virðist vera að Apple muni koma með staðgengil fyrir 24″.

Vert er þó að nefna að 27″ LED Cinema Display mun til með að kosta $999, á meðan 24″ er á $799 og 30″ kostar $1799.

27″ LED Cinema Display er væntanlegur í september í BNA.

Nýr 27″ LED Cinema Display kemur í haust

Það er mikið að gerast í Apple-heiminum um þessar mundir, en fyrirtækið hefur kynnt nýjan 27″ LED-baklýstan skjá sem hefur hingað til einungis verið fáanlegur í 24″ stærð.

Skjárinn inniheldur 49W hátalara, iSight vefmyndavél, hljóðnema, MagSafe hleðslusnúru og Mini DisplayPort tengi.

Upplausnin á 27″ skjánum er 2560 x 1440 dílar, birtustig 375 cd/m2, viðbragðstími 12ms og contrast 1000:1.

Verðið er $999 í BNA og verður fáanlegur í september.

Nýjar Apple vörur í dag?

Samkvæmt orðróm er talið að Apple muni uppfæra iMac- og Mac Pro-línu sína í dag. Einnig er talið að nýir Cinema skjáir með LED-baklýsingu verði kynntir til sögunnar.

Mac Pro línan frá Apple hefur ekki verið uppfærð síðan í mars í fyrra og síðasta Cinema Display línan var gefin út 2008 (í millitíðinni var 24″ LED Cinema Display kynntur).

Þar að auki er talað um nýtt fjölsnertitæki frá Apple sem mun heita „Magic Trackpad“.

Þriðjudagur er dagur nýrra vara hjá Apple og því verður gaman að sjá hvort við fáum að sjá nýjar og spennandi vörur í dag.

Heimild




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!