Apple uppfærir Boot Camp fyrir Windows 7

Þeir sem nota Windows af einhverju viti á Apple tölvunni sinni tóku líklegast eftir því þegar fyrirtækið lofaði opinberlegum stuðningi við Windows 7 fyrir lok 2009.

Það tók örlítið lengri tíma (augljóslega) því uppfærsla kom út í gær, 19. janúar 2010.

Uppfærslan, sem er útgáfa 3.1 af Boot Camp, inniheldur eftirfarandi atriði:

  1. Stuðningur við þráðlausa lyklaborðið og Magic Mouse
  2. Lagfæringar á snertifleti fartölva
  3. Innrauði móttakarinn slekkur á sér þegar hann er ekki í notkun (sparar rafmagn)

Þar að auki gaf Apple út fastbúnaðaruppfærslu fyrir ákveðnar gerðir af iMac og Mac Pro: skoða nánar hér.

Einnig komu nýir reklar út fyrir iMac 21,5″ og 27″: skoða nánar hér.

Og síðast en ekki síst kom út „Boot Camp Utility for Windows 7 Upgrade“, sem lagfærir villu sem átti sér stað við uppfærslu úr Vista í 7.




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!