5. september 2011 | Bjöggi
| Senda á Facebook

Margir hafa beðið örvæntingarfullir eftir að Apple skelli USB 3.0 tenginu í vélarnar sínar, en eftir að ThunderBolt-tengið var kynnt í nýjustu línunum telja margir að enn minni líkur séu á því að fyrrnefnda tengi fái að njóta makkans.
Nýjasti orðrómur segir hins vegar að Apple sé að leita leiða til að nota USB 3.0 staðalinn í tölvunum sínum, en Intel hafa verið seigir við að styðja kubbasettið. (Til upplýsinga var það Intel sem þróaði ThunderBolt tæknina.)
Hvenær það er væntanlegt eða hvort orðrómurinn sé réttur er erfitt að segja til um, en líklegt þykir að við fáum að sjá bæði ThunderBolt og USB 3.0 í Apple-tölvum á næstunni (rétt eins og USB 2.0 og FireWire 800 fengu að lifa saman).
Heimild
Skrifað í flokkinn: Apple, Intel, ThunderBolt, USB 3.0
5 athugasemdir / Skrifa athugasemd
5. september 2011 | Bjöggi
| Senda á Facebook
Það er varla hægt að segja að Apple hafi fengið marga plúsa í kladdann eftir að þeir gáfu út Final Cut X (FCX), en hugbúnaðurinn hefur án efa verið mjög umdeildur og hafa margir atvinnuklipparar brugðist hart við og hreinlega móðgast eftir miklar eftirvæntingar.
Apple virðist gera sér grein fyrir því að einhverju leyti með því að lofa endurbótum og fleira í FCX, en það hefur greinilega ekki reynst nægilegt fyrir marga þar sem mikil eftirspurn er ennþá eftir gamla Final Cut Studio pakkanum. Því hefur Apple ákveðið að bjóða aftur upp á pakkann.
En slæmu fréttirnar fyrir Evrópubúa (og fleiri) eru hins vegar þær að einungis er hægt að panta hann í Bandaríkjunum og þar að auki símleiðis.
Vonandi sjáum við endurbætur í pro-geiranum hjá Apple, en Aperture hefur fengið svipuð viðbrögð í ljósmyndaheiminum.
Skrifað í flokkinn: Apple
Skrifa athugasemd
Allt bendir til þess að kynningin verði sýnd í beinni frá Apple.com en ekki enn staðfest.
Hér er allavega slóð sem verður notuð (virkar ekki sem stendur), hvort sem það verður sýnt beint eða síðar í kvöld.
www.apple.com/apple-events/march-2011/
Uppfært: Ekkert live, en hér er ein þægileg leið til að fylgjast með
http://www.macworld.com/article/158138/2011/03/ipad_event.html
Skrifað í flokkinn: Apple, Uppákomur
4 athugasemdir / Skrifa athugasemd

Skilaboðin sem flestir Apple notendur verða spenntir við að lesa, standa nú stórum stöfum á forsíðu Apple Store.
Það þýðir að í flestum tilvikum er um að ræða nýja vöru og í þetta sinn er varla erfitt að giska á hvað þar um ræðir m.v. boðskortið frá Apple á kynninguna í dag.
Kynning hefst innan við 2,5 klst. Þið getið fylgst með kynningunni á slóðunum í fyrri frétt eða einfaldlega beðið eftir að kynningin fari á vefsíðu Apple.com.
Skrifað í flokkinn: Apple
Skrifa athugasemd

Í dag, 2. mars 2011, mun Apple vera með sérstaka kynningu í San Francisco. Einnig verður hún í beinni útsendingu í London fyrir útvalda.
Talið er að iPad 2 verði kynntur ásamt einhverju öðru sem gæti tengst MobileMe eða iTunes Store.
Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu í texta- og myndformi á m.a. Engadget og MacRumors:
http://macrumorslive.com/
http://www.engadget.com/2011/03/02/live-from-apples-ipad-2-event/
Apple eru vanir að birta svo kynninguna á heimasíðu sinni á eftirfarandi slóð: http://www.apple.com/apple-events/
Fylgist með á fréttavef Maclantic til að fá nýjust fréttir um nýja gripinn, ásamt verði og fleira.
Uppfært. Hér er betri listi:
http://macdailynews.com/2011/03/02/macdailynews-presents-live-coverage-of-apples-march-2nd-special-event/
Skrifað í flokkinn: Apple, Uppákomur, iPad
1 athugasemd / Skrifa athugasemd
20. október 2010 | Bjöggi
| Senda á Facebook

Apple mun senda út kynninguna í beinni og hér er slóðin:
http://events.apple.com.edgesuite.net/1010qwoeiuryfg/event/index.html
Fyrir þá sem vilja taka þátt í „Live Chat“ Maclantic-notenda kíkið hingað:
http://ghz.is/chat/ajax/
Skrifað í flokkinn: Apple
Skrifa athugasemd
20. október 2010 | Bjöggi
| Senda á Facebook

Í dag kl. 17:00 mun Apple kynna nýjar vörur sem tengjast makkanum. (Því er óþarfi að halda að það tengist iOS stýrikerfinu).
Talið er að kynningin verði send beint út eins og var gert á síðustu kynningu, en það hefur ekki enn verið staðfest af Apple.
Mikið hefur verið talað um að Apple tilkynni nýja fartölvu sem verði örþunn með allt að 10 klst rafhlöðuendingu (ágiskun Maclantic: tölva úr liquid metal). Einnig er talið að iLife ‘11 verði kynnt til sögunnar og Mac OS X Lion (10.7).
Við munum senda inn frétt með slóð um leið og við vitum meira.
Fylgist með á Maclantic!
Skrifað í flokkinn: Apple, Mac OS X, Orðrómur, Steve Jobs, Uppákomur, iLife
2 athugasemdir / Skrifa athugasemd
13. október 2010 | Bjöggi
| Senda á Facebook

Þann 20. október mun Apple halda sérstaka kynningu sem mun fjalla um Mac og þ.a.l. Mac OS X stýrikerfið.
Talið er að um sé að ræða næstu útgáfu af stýrikerfinu, 10.7, og mun bera nafnið „Lion“.
Það verður spennandi að sjá hvað Apple hefur að sýna okkur, hvort um sé að ræða algjörlega endurhannað kerfi eða einfaldlega endurbætur og fleiri eiginleikar (eða fídusar eins og sumir kjósa að kalla það).
Kynningin verður á hinum klassíska tíma, kl. 10 að morgni í San Francisco, sem þýðir kl. 17:00 að íslenskum tíma.
Skrifað í flokkinn: Apple, Mac OS X, Uppákomur
5 athugasemdir / Skrifa athugasemd
27. september 2010 | Bjöggi
| Senda á Facebook

Sölu- og þróunarstjóri Apple í Evrópu mun halda sérstaka kynningu á morgun, 28. september, þar sem farið verður yfir helstu nýjungar frá Apple og það áhugaverðasta sem kom fram á IBC sýningunni í Hollandi um daginn.
Kynningin verður haldin á morgun, 28. september, í Háskólabíó í sal 2 kl. 15:20.
Skráning fer fram á apple.riff@epli.is
Aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar á þessu PDF-skjali:
http://www.epli.is/apple-RIFF-2010.pdf
Skrifað í flokkinn: Apple
1 athugasemd / Skrifa athugasemd

Apple hefur sent út boðskort til fjölmiðla um sérstaka kynningu þann 1. september kl. 10 í San Francisco.
Í september koma oftast nýjar línur af iPod og því má sérstaklega gera ráð fyrir að nýjar gerði verði kynntar.
Þar að auki er talað um nýtt Apple TV sem mun heita iTV og kosta aðeins $99.
Gert er ráð fyrir nýjungum þar á ferð (fyrir utan verðlækkunina), en talið er að græjan muni styðjast við iOS stýrikerfið sem er að finna í iPod touch, iPhone og iPad. Þar að auki að hægt verði að leigja þætti á 99¢ á iTunes Store (US).
Kemur í ljós eftir rúma viku!
Heimild
Skrifað í flokkinn: Apple, iPod, tv
10 athugasemdir / Skrifa athugasemd