Vafraðu um App Store á venjulegum vafra

Margir kannast við það að smella á tengil á vefsíðum sem beinir á forrit í App Store sem opnar iTunes forritið á tölvunni án þess að spyrja.

Þetta getur stundum verið pirrandi (sérstaklega fyrir þá sem eru ekki með iTunes uppsett á tölvunni sinni) og hefur Apple leyst það með því að bjóða upp á sérstaka útgáfu fyrir vafra þar sem hægt er að nálgast sömu upplýsingar og iTunes Store býður upp á í iTunes forritinu ásamt skjáskotum.

Sem dæmi má nefna slóð á Avatar leikinn fyrir iPhone/iPod touch: James Cameron’s Avatar

Púsluspil tónlistaráhugamannsins

audiopuzzle

Íslenska leikjafyrirtækið Dexoris hefur gefið út tónlistarleikinn Audio Puzzle fyrir iPhone og iPod Touch en leikurinn á engan sinn líkan í heiminum. Hann er sá fyrsti í netverslun Apple sem breytir tónlist leikmanna í púsluspil með því að nota lög sem efnivið í púsluspilið í stað mynda. Ólíkt öðrum tónlistarleikjum, þá sækir Audio Puzzle lögin úr tónlistarsafni leikmanna og því þarf ekki að kaupa tónlistina sérstaklega. Það má því segja að Audio Puzzle sé hið eina sanna púsluspil tónlistaráhugamannsins og bylting fyrir púsláhugamenn um allan heim.

“Það er skemmtilegt að velja uppáhaldslögin sín og láta leikinn breyta þeim í púsl en þó hef ég meira gaman að því að láta Audio Puzzle velja lögin fyrir mig.” segir Ólafur Viggósson framkvæmdastjóri Dexoris. “Þannig enduruppgötva ég gamla og góða slagara sem höfðu gleymst í tónlistarsafninu mínu.” Ennfremur finnst honum sem hann þjálfist í hlustun við spilun leiksins og leikurinn hafi því áhrif á það hvernig hann skynjar tónlist. “Mér finnst ég þekkja lögin betur og stundum lendi ég í því að heyra í nýjum hljóðfærum og laglínum.”

Gagnrýnendur eru sammála um það að Audio Puzzle sé skyldueign fyrir alla eigendur iPhone eða iPod touch enda einstakur og vandaður leikur. Dexoris hlaut styrk frá Átaki til atvinnusköpunar til áframhaldandi þróunar á leiknum svo búast má við meiri tónlistarupplifun frá þeim á vormánuðum.

Leikjafyrirtækið Dexoris hafði áður gefið út leikinn Peter und Vlad, æsispennandi ævintýraleik fyrir alla fjölskylduna sem fjallar um Sedov-bræðurna, smalann Pétur og uppfinningamanninn Valda, og baráttu þeirra við stjórnlausa uppfinningu. Leikurinn fékk góðar viðtökur en fleiri en 40 þúsund notendur hafa sótt leikinn frá upphafi og í október valdi Apple leikinn inn á listann What’s Hot í netverslun sinni.

Báðir leikirnir fást í Apple iTunes Store:

Audio Puzzle: http://www.audiopuzzle.com/buy-audiopuzzle/
Peter und Vlad: http://www.peter-und-vlad.com/buy-peterundvlad

Íslenska tölvuleikjabyltingin

iphone-puv

Íslenska leikjafyrirtækið Dexoris kynnir nú með stolti Peter und Vlad, sinn fyrsta leik fyrir iPhone og iPod touch. Leikurinn verður fáanlegur í Apple App Store föstudaginn 25. september og er spennandi ævintýraleikur fyrir alla fjölskylduna, sem fjallar um Sedov-bræðurna, Pétur og Valda, og baráttu þeirra við stjórnlausa veðurvél.

Valdi er uppfinningamaður sem sumir kalla brjálaðan en aðrir uppátækjasaman. Nýjasta framlag Valda til sveitastarfanna á Sedov býlinu er framúrstefnuleg veðurvél. Eftir áratugalangar rannsóknir áttaði hann sig á að veðurvélin gat gengið fyrir kindaull, en í öllum æsingnum gleymdi hann að útfæra rofa til þess að slökkva á vélinni! Að sjálfsögðu fer allt úr böndunum þegar vélin er sett í gang og leikmenn verða því að hjálpa Pétri við að smala kindum sínum inn í fjárhúsið áður en veðurvélin notar orkuna úr ullinni til þess að valda umhverfisslysi.

Fyrirtækið Dexoris er ungt að aldri en starfsmenn þess búa yfir mikilli reynslu á sviði hugbúnaðargerðar og hönnunar. Þeir hafa fjölbreytta og ólíka menntun en eru sameinaðir í að gera vandaða leiki fyrir alla aldurshópa. Við sáum mikla möguleika í iPhone, því síminn er þvílíkt undratól og með elju og útsjónarsemi teljum við að lítil leikjafyrirtæki geti keppt við stóru risana um athygli viðskiptavina í sívaxandi netverslun Apple.

Næstkomandi föstudag verða stofnuð samtök íslenskra leikjaframleiðenda (www.igi.is) sem er vitnisburður þess að framtíðin er björt á Íslandi fyrir þennan vaxandi iðnað. Við finnum engu að síður fyrir smæð Íslands þegar við reynum að vekja á okkur athygli í stórum leikjaheiminum. Því leitum við til Íslendinga, nær og fær, og vonum að við getum staðið saman í því að vekja athygli á ungum og upprennandi leikjafyrirtækjum. Nokkur góð orð á Twitter, Facebook eða öðrum samfélagsmiðlum geta gert gæfumuninn.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um Pétur og Valda á peter-und-vlad.com.
Auglýsingaefni: http://peter-und-vlad.com/pr/peter_und_vlad_press_kit.zip

Heimsækið dexoris.com og fylgist með Dexoris á Twitter og Facebook.