
Eins og svo margir vita þá verður Apple með kynningu í dag sem tengist iPad.
Orðrómurinn hefur verið gífurlegur síðastliðna daga og ýmsar upplýsingar um hið nýja tæki lekið á stærstu fréttasíðurnar. Þar hefur m.a. komið fram að iPad 3 (eða HD?) verði kynntur með Retina skjá (með fjórfalt fleiri pixla en á iPad 2), nýjum tveggja-kjarna örgjörva og öflugri grafík. Að auki má búast við nýju 1080p Apple TV og $39 vöru sem enginn veit hvað er. Þar má giska á aukahlut fyrir nýja iPad-inn eða hugsanlega fyrir nýja Apple TV?
Það kemur allt í ljós í kvöld kl. 18:00, en því miður verður kynningin ekki í beinni útsendingu á Apple.com
Notendur geta þó huggað sig yfir því að nokkrar fréttasíður verða með fréttaskrif í beinni á kynningunni og hefur m.a. The Verge auglýst að þeir verði á staðnum.
Hægt er að fylgjast með þeim á live.theverge.com
Skrifað í flokkinn: Orðrómur, Uppákomur, iPad, tv
Skrifa athugasemd

Samkvæmt fréttatilkynningu frá App Dynamic er núna hægt að setja AirPlay í eldri kynslóð af Apple TV.
Þökk sé Remote HD viðbótinni er auðveldlega hægt að streyma vídeó og ljósmyndum þráðlaust í Apple TV úr iOS 4 og iTunes 10.1.
AirPlay video and photo streaming hacked into the old AppleTV
January 4, 2010 – App Dynamic – We are proud to release a new Remote HD plugin for the old AppleTV that adds the missing AirPlay functionality.
AirPlay can now be added to any first generation AppleTV by installing the Remote HD plugin and activating it using Remote HD iOS application.
Once the plugin is activated, any AirPlay enabled application can be used to stream video and photos to the AppleTV.
All existing Remote HD customers get this functionality for free.
Remote HD’s AirPlay supports:
- Video streaming from YouTube iOS app
- Movies and Podcasts from iPod iOS app
- Photo streaming from Photos iOS app
- Video streaming from iTunes 10.1.
AirPlay audio streaming will be added soon.
http://www.remotehd.com/AppleTV/Overview
http://www.remotehd.com/AppleTV/Download
http://www.apple.com/fr/iphone/apps-for-everything/remote.html
http://itunes.apple.com/app/remote-hd/id310516183?mt=8
Skrifað í flokkinn: tv
2 athugasemdir / Skrifa athugasemd

Apple hefur sent út boðskort til fjölmiðla um sérstaka kynningu þann 1. september kl. 10 í San Francisco.
Í september koma oftast nýjar línur af iPod og því má sérstaklega gera ráð fyrir að nýjar gerði verði kynntar.
Þar að auki er talað um nýtt Apple TV sem mun heita iTV og kosta aðeins $99.
Gert er ráð fyrir nýjungum þar á ferð (fyrir utan verðlækkunina), en talið er að græjan muni styðjast við iOS stýrikerfið sem er að finna í iPod touch, iPhone og iPad. Þar að auki að hægt verði að leigja þætti á 99¢ á iTunes Store (US).
Kemur í ljós eftir rúma viku!
Heimild
Skrifað í flokkinn: Apple, iPod, tv
10 athugasemdir / Skrifa athugasemd
1. september 2009 | Bjöggi
| Senda á Facebook

Talið er að nýtt AppleTV verði kynnt með nýjum iPodum í næstu viku.
Vöntun á 40GB útgáfunni (sjá mynd) gefur til kynna að nýjar gerðir verði kynntar með meira rými og hugsanlega einhverjum útlitsbreytingum og/eða innihaldi.
Þar að auki hefur verið nefnt að einhvers konar sjónvarpssett verði kynnt, en það verður einfaldlega að koma í ljós á næstu dögum.
Hvað segið þið? Er ekki kominn tími á nýtt AppleTV? Hvernig myndi ykkur lítast á LCD sjónvarp frá Apple með innbyggðu AppleTV?
Skrifað í flokkinn: Orðrómur, Uppákomur, tv
5 athugasemdir / Skrifa athugasemd
Apple TV hefur verið uppfært í útgáfu 2.0.1 og er mælt með að allir eigendur tækisins uppfæri það með því að fara í Settings -> General -> Software Update.
Lítið er vitað um uppfærsluna en búast má við smávægilegum lagfæringum. Nýr valmöguleiki „Genres“ er nú kominn undir „Movies“ í aðalvalblaði Apple TV.
Skrifað í flokkinn: tv
3 athugasemdir / Skrifa athugasemd

Apple gaf í gær út iTunes 7.6.1. Þessi útgáfa á að laga ýmsa galla og bætir stuðning við Apple TV “Take 2″.
Auk þessa hefur Apple nú komið í gang tilboði á iTunes leigumyndum. Tilboðið hljómar þannig að það einhver sérstök mynd á aðeins $0.99 frá fimmtudegi til mánudags. Eins og á öllum hinum myndunum sem hægt er að leigja geturðu átt myndina í 30 daga og hefur 24 klst. til þess að horfa á hana
Þess má geta að myndin sem er á tilboði þessa vikuna er The Hours.
Skrifað í flokkinn: iTunes, tv
1 athugasemd / Skrifa athugasemd
12. febrúar 2008 | Arnór
| Senda á Facebook

Hugbúnaðaruppfærslan á Apple TV sem margir hafa beðið eftir með ofvæni er nú loksins komin út. Þessi uppfærsla gerir notendum kleift að leigja eða kaupa myndir í háskerpugæðum auk annars efnis án nokkurar tengingar við tölvu. Einnig hefur viðmótið fengið yfirhalningu.
Skrifað í flokkinn: Apple, tv
6 athugasemdir / Skrifa athugasemd

Apple tilkynnti dag að nýja hugbúnaðinum í Apple TV sem var kynntur á Macworld hafi verið frestað um 1-2 vikur. Þessi uppfærsla mun gera notendum kleyft að leigja eða kaupa myndir í háskerpu gæðum auk annars efnis án nokkurar tengingu við tölvu.
Uppfærslan sjálf mun verða sjálfvirk fyrir alla núverandi Apple TV eigendur og kemur að sjálfssögðu með nýjum Apple TV.
Skrifað í flokkinn: tv
5 athugasemdir / Skrifa athugasemd

Er Steve Jobs steig á sviðið í dag á Macworld í San Francisco kynnti hann ýmislegt áhugavert en Apple TV var þar á meðal uppfært til muna.
Uppfærslan felst í stýrikerfi græjunnar, en notandaviðmótið hefur verið bætt til muna og gert mun þægilegar í notkun hvað varðar stjórnun með Apple Remote. Hægt verður að uppfæra núverandi Apple TV í gegnum Software Update tækisins á næstu vikum til að fá fyrrnefndu eiginleika.
Apple TV er nú sjálfstæðari græja sem hægt er að nota til að leigja myndir í gegnum iTunes (einungis USA eins og stendur) í HD-gæðum, horfa og hlusta á Podcast, kaupa tónlist, skoða myndir á Flickr og .Mac Web Gallery ásamt því að horfa á YouTube.
Þar að auki var Apple TV lækkað niður í $229 (áður $299) fyrir 40GB útgáfuna og í $329 (áður $399) fyrir 160GB útgáfuna.
Skoðið myndband til að sjá Apple TV í notkun.
Skrifað í flokkinn: tv
Skrifa athugasemd

Apple hefur tilkynnt að iPhone muni hafa YouTube möguleika á aðalvalblaði símans.
Um er að ræða sérútgáfu af YouTube ætluð Apple, en öll myndskeið eru kóðuð í h.264 Quicktime sniði sem að iPhone einmitt spilar.
Þar að auki er YouTube fáanlegt fyrir Apple TV frá og með deginum í dag.
Skoða vídeó af YouTube á iPhone
www.apple.com/pr
Ath. að búið er að uppfæra öll myndskeiðin á iPhone síðunni þar sem sýndir eru ýmsir aðrir eiginleikar tækisins eins og í Safari og Mail
Skrifað í flokkinn: iPhone, tv
Skrifa athugasemd