Stacks skítamixað

Stacks

Fídusinn Stacks í Leopard hefur farið ekki alveg slegið í gegn sem skildi. Fólk hefur neyðst til þess að hafa t.d. Address Book sem merki fyrir Applications Stacks og, oftar en ekki, sama möppuíkonið fyrir flesta aðra.

Menn voru ekki lengi að redda þessu vandamáli með því að t.d. að hafa tóma möppu með völdu íkoni fremst í stafrófinu en vandamálið sem skapaðist af því, var að engin íkon voru hönnuð með Stacks í huga. Því var auðvelt að eyðileggja augnkonfektið sem Stacks býður upp á.

Nú er hefur sérstaklega snjall aðili hannað lausn sem Apple hefði átt að hafa séð og stungið inn í kerfið fyrir útgáfu. Þessi aðili hannaði íkon sem líta út fyrir að vera kassar. Kassarnir eru svo merktir eftir notkun (Applications, Documents, o.s.frv.) og eru hannaðir á hálfgagnsæjan hátt. Þá virðast kassarnir innihalda skjöl möppunnar og þannig er loks gefið Stacks sterkari tengingu við skipulagningu í hinum mennska heimi, sem og leyst vandamálið með að koma augu á rétta möppu.

Apple hlýtur að sjá kostina í svona nálgun og laga þetta fyrr en síðar – en þar til er hægt að skítamixa.

Leiðbeiningar:

  1. Sækjið kassaíkon hér
  2. Setja kassaíkon í viðeigandi möppu

Kassaíkonin eru skýrð með bili í byrjun nafns og með „date modified“ árið 2010. Því ætti engu að breyta hvort Stack sé stilltur eftir dagsetningu eða nafni.

Tuaw.com birti upprunalega leiðbeingar um þessa lausn og hafa nú einnig birt leiðbeiningar um hvernig skuli búa til sína eigin merkingu á þessa kassa. Þeir ævintýragjörnu geta smellt hér til að lesa um slíkt.

RecentsSmá bónustrikk til að fá Stack fyrir „Recents“ (Applications, Documents, o.s.frv.):

  1. Skrifa eftirfarandi (án gæsalappa) í Terminal: „defaults write com.apple.dock persistent-others -array-add ‘{ “tile-data” = { “list-type” = 1; }; “tile-type” = “recents-tile”; }’“
  2. Skrifa eftirfarandi (án gæsalappa) til að endurræsa Dock : „killall Dock“

Þá ætti að vera kominn glænýr Stack fyrir Recents.

Leopard uppfærður: 10.5.1

10.5.1Þeir eru margir sem hafa beðið spenntir eftir fyrstu uppfærslunni fyrir Leopard stýrikerfið, þá sérstaklega til að strauja út ýmsa smávægilega galla sem hafa verið ræddir fram og til baka, m.a. hér á spjalli Maclantic.

Biðin er nú á enda því Apple hefur gefið út 10.5.1 og er uppfærslan auðvitað fáanleg í gegnum Software Update.

Lagfæringar eru gerðar á Finder, Mail, Time Machine, iCal, o.fl. Einnig eru almennar öryggisuppfærslur og lagfæringar í netmálum. Samkvæmt notendum Macrumors.com er uppfærslan ýmist 39.8mb eða 109mb eftir gerð tölvu.

Fullan lista yfir lagfæringar og breytingar er að finna hér.

Einnig gaf Apple út 10.4.11; uppfærslu á Tiger, sem inniheldur m.a. Safari 3.

iPhone Firmware 1.1.1 komið

hackers111.jpg

Apple hefur nú gefið út Firmware 1.1.1 fyrir iPhone. Við minnum á að hakkaða iPhone skal alls ekki uppfæra fyrr en komin er reynsla á slíkt eða búið að uppfæra hakkforrit. Þó ætti það ekki að vera neitt vesen þar sem uppfærslan er ekkert sérstaklega gómsæt… Jú kannski smá.

Nýjungar eru:

  • iTunes Wi-Fi
  • Hærri hljóðstyrkur (hátalari og hringing)
  • Tvíklikk á „Home“ takka færir mann beint í músík (eða favorite)
  • Tvíklikk á „Spacebar“ gefur punkt og bil
  • Viðhengi í Mail virka í landscape
  • Endurröðun í Stocks og Weather
  • Batterísstaða Apple Bluetooth Headset í „Status Bar“
  • Stuðningur við „TV out“
  • Kveikja/Slökkva á EDGE/GPRS
  • Nýjar tímastillingar á lykilorðslæsingu
  • Stillanlegur hljóðstyrkur viðvörunartóna

Ýmsar óskauppfærslur eru ekki á listanum, t.d. að geta sent SMS á marga í einu, fleiri myndaviðhengi í e-mail, Copy-Paste, ný forrit og margt fleira.

Fría hakkið tilbúið!

hackers-1.jpg

Hakkarahetjurnar í iPhone Dev Team tóku ekki langan tíma í að svara iPhoneSimFree. Strax fyrstu mínútur eftir útgáfu hakksins fóru meðlimir iPhone Dev Team að tæta í sundur húgbúnað IPSF og sáu þeir fljótlega hvað þeim hafði yfirsést allan tímann. Þar sem þetta var ekki nema eitt lítið atriði tóku þeir eingöngu nokkra klukkutíma í að búa til sitt eigið hakk – ekki neinn „reverse-engineeraðan“ bastarð af IPSF hakkinu. Hakkið hefur verið prófað og staðfest af hlutlausum aðilum.

Þetta nýja freeware hakk verður svo gefið út á næstu mínútum eða klukkutímum og verða upplýsingar um slíkt setta hér inn hið fyrsta.

UPDATE (endurbætt)

Fjölmargar slóðir fyrir niðurhal og nokkur tutorials eru á sveimi þessa stundina. Hakkið hefur ekki hlotið grafískt viðmót og er því ansi flókið fyrir venjulegan tölvunotanda. Fyrir þá sem vilja samt reyna er besti byrjunarreitur fyrir heildarlausn (niðurhalstengla og tutorials) á eftirfarandi slóð:

http://forums.macrumors.com/showthread.php?t=353612

UPDATE (viðbót)

Grafískt viðmót á hakkinu virðist vera tilbúið. Þó þarf enn að framkvæma „jailbreak“ o.fl. en nú virkar hakkið sjálft meira líkt og IPSF hakkið – framkvæmt í símanum sjálfum. Sjá eftirfarandi slóð:

http://www.freeiphoneunlock.com/unlock/

iPhoneSimFree.com staðfest með myndbandi

iphonesimfree.jpg

Tækjabloggið Gizmodo hefur birt myndband sem sýnir óklippt hvernig gengið er í gegnum aflæsingarferlið með forritinu sem iPhoneSimFree.com hafa búið til. Ferlið er furðulega einfalt og þægilegt í notkun; vinnur sjálft á meðan beðið er í 2-3 mínútur.

Það þarf þó að vera búið að opna símann, þ.e. framkvæma „Jailbreak“, áður en krakkið er sett inn. Mörg temmilega einföld forrit eru í boði til að auðvelda þá aðgerð.

Það sem á eftir fylgir er, svona að mestu leyti, lauflétt. Við kaup á krakkinu er gefið upp IMEI númer símans sem er skráð í gagnagrunn iPhoneSimFree.com. Krakkiðforritið er næst sett inn á apparatið og ræst með því að smella á viðeigandi hnapp í valmynd þess. Þá athugar forritið hvort síminn sé með skráð IMEI númer í gagnagrunninum og ef svo er, þá er hann opnaður.

Skoðið myndbandið hjá Gizmodo.

Kynningin komin upp

ipods-special-event-050907.jpg
Apple hafa nú sett kynningu dagsins á vefinn. Straumurinn er ansi smár, eða 320×180 pixlar – en slíkt hefur verið vaninn rétt eftir kynningar. Þeir sem vilja sjá stærri straum ættu því að hinkra eitthvað lengur.

Kynninguna má sjá á eftirfarandi slóð:

http://www.apple.com/quicktime/qtv/keynote/

iPhoneSimFree.com er Bona Fide

IS_GSM-iPhone-B.jpg
Þeir voru margir sem efuðust þegar tækjabloggið Engadget sendi út yfirlýsingu þess efnis að Software hakk (þ.e. hakk til að aflæsa kerfislæsingu AT&T án þess að opna símann og eiga við vélbúnað) frá iPhoneSimFree.com væri raunverulegt. Á ýmsum spjallborðum netsins var haldið fram að Engadget væri einfaldlega að plata, etv. til að fá athyglina.

En nú hefur „alvöru“ fjölmiðill, nánar tiltekið CNN, tekið undir staðhæfinguna; hakkið frá iPhoneSimFree.com virkar!

Los Angeles software consultant Brett Schulte, who is not affiliated with the developers, demonstrated the software for CNN Friday evening.

An iPhone that had the new software appeared to work on the T-Mobile system just seconds after Schulte replaced the AT&T SIM card with a T-Mobile SIM card.

“It’s completely software hacked,” Schulte said. “There’s no case opening required. It’s not required to do any kind of disassembly.” It took Schulte about two minutes to unlock the iPhone.

Frétt á CNN.com

Þó er spurning hvort að hakkið frá þessum aðila muni ná að skila sér til almennings, en lagalega er það á afskaplega gráu svæði að selja, þ.e. hagnast, á hakkinu. Mun lagateymi Apple og AT&T ná til þeirra?

Frétt sem þessi er þó hvað helst góð því hún segir okkur að iPhone sé hakkanlegur og því bara tímaspursmál hvenær stærsti iPhone hakkhópurinn; iPhone Dev Team, ná að klára hakkið sitt – sem verður gefið út frítt og því „óstoppanlegt“.

Breytingar framundan?

Geimur01.jpg

Eins og flestir lesendur vita, er Apple líklegast það fyrirtæki í raftækjabransanum sem hefur ströngustu reglubókina þegar kemur að útliti. Skipperinn sjálfur, Steve Jobs, í samvinnu við hæft starfsteymi hefur náð færa okkur raftæki sem eru viðkunnalegri og þægilegri í notkun en flest önnur. Hvaða öðru fyrirtæki hefði t.d. dottið í hug að setja svefnljós á tölvur sem virkar sem ljúfur andardráttur sofandi manneskju?

Ef litið er á hönnun raftækja Apple má greinilega skipta síðari árum (1997-2007) í tvö tímabil. Það fyrra hefst með skipun Jonathan Ive sem yfirhönnuðs og til að byrja með var sótt innblástur í nammi sem birtist m.a. í gómsætri plasthúð – ýmist yfir björtum litum eða grátónum.

Árið 2001 var þó u-beygja tekin í hönnun og nýtt tímabil hefst. Þar er kynntur hvíti liturinn með iBook og 1. kynslóð af iPod. Síðar bættust við lampa-iMac, hvít mús, lyklaborð, o.fl. Álið kemur síðar sterkt inn sem hliðartónn hvíta litsins – meira ríkjandi í Pro búnaði en minna í Consumer búnaði.

Þá erum við komin til ársins 2007 og enn ríkir hvíti liturinn yfir meginhluta vöruúrvalsins. Þegar litið er til baka má sjá að nokkur einkenni eru sterkari en önnur – m.a. að Apple er minimalískt í litavali (meira segja í sinni litríkustu tíð var ekki notast við fleiri en tvo áberandi/ríkjandi liti í einni vöru).

Það má auðvitað ganga mun lengra í stúderingu á vöruúrvali Apple en í grófri yfirferð má þó vel sjá eitt ákveðið atriði; hófstilling í litum og áferðum. Ef við setjum það í samhengi við ýmislegt sem hefur verið að gerast er hægt að spá í framtíð Apple.

Það hafa allir tekið eftir útliti iPhone og flestir einnig séð nýja iMac en þó hafa fáir hugsað út í útlit þessara nýju vara í samhengi við vöruúrval Apple. Flestir sjá jú bara viðbót við „ál-lúkkið“ en í raun er margt sem bendir til að þessar vörur séu að leiða okkur inn í nýtt tímabil.
iPhone litir og áferðir
Í iPhone má finna eftirfarandi liti og áferðir:

  1. Króm
  2. Svartur háglans
  3. Ál
  4. Svartur matt
  5. Hvítur (letur og dock)

iMac litir og áferðir
Í iMac má finna:

  1. Svartur háglans
  2. Svartur matt
  3. Ál
  4. Hvítur (lyklaborð, mús, fjarstýring)

Það má sem sagt finna marga liti/áferðir í nýjustu vörum Apple sem verður að teljast u-beygja – og þegar Apple tekur slíka beygju telst það vera byrjun á nýju tímabili. Það sést augljóslega þegar horft er til baka en Apple gerir sjaldan eina eða tvær vörur sem „eru bara öðruvísi“.

Með þetta í huga eru góðar líkur á að komandi vörur frá Apple falli í sama útlit – sérstaklega consumer vörurnar (t.d. Mac Mini, Apple TV og MacBook) og er alls ekki ólíklegt að Pro vörur (t.d. Mac Pro og MacBook Pro) fái nýjan svip; álið sett til hliðar eða í minni pokann fyrir annarri (nýrri?) áferð. Eða hvað?

5. september verður kynning hjá Apple. Hvað mun gerast þá? Munu iPod Nano og/eða hinn nýji iPod (Touch?) fá til sín útlitseinkenni iPhone og iMac? Ef svo verður, þá hefur hið nýja tímabil verið nokkuð vel staðfest.

iPod Touch?

*Teiknuð mynd (iPod Touch?)




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!