Nýjar MacBook Pro með Intel Core i5 og i7

Eftir stanslausa orðróma undanfarnar vikur er MacBook Pro línan komin með nýju Core i5 (2.4GHz og2.53GHz) og i7 örgjörvana (2.66GHz) frá Intel auk nýrrar hraðari sjálfvirkrar skjástýringar. 13″ tölvurnar eru reyndar ennþá með Core 2 Duo(2.4GHz og 2.66GHz) en skarta nú NVIDIA GeForce 320M, sem er sögð allt að 80% hraðari en forverinn.  Bæði 15 og 17 tommu vélarnar eru komnar með nýju i5 og i7 örgjörvana og NVIDIA GeForce GT 330M, sem er sögð vera hraðasta skjástýringin á markaðnum. Hún búin nýrri tækni, sjálfvirki skiptingu sem ákveður hvor hluti skjástýringarinar er notaður en það er einkar hentugt þegar tölvan er í léttri vinnslu. i5 og i7 örgjörvarnir eru munu þurfa talsverða orku en kemur það þó ekki niður á batterílífi sem skýrist á betri nýtingu skjástýringarinnnar og mun batteríið endast í 8-9 klst. Vélarnar koma allar vélar með 4GB vinnsluminni (standard) og verðið er svipað og áður, frá $1199 upp í $2299.

Phil Schiller hafði orð á nýju vélunum:

“The new MacBook Pro is as advanced on the inside as it is stunning on the outside. With faster processors, amazing graphics and up to three more hours of battery life, the new MacBook Pro delivers both performance and efficiency.”

Endurhönnuð MacBook kynnt

Screen shot 2009-10-20 at 9.28.34 PM

Auk nýs iMac kynnti Apple í dag endurhannaða MacBook. Tölvan er hvít eins og áður með nýrri polyarbonate unibody hönnun, LED baklýstum skjá, 7 tíma batterílífi og gler trackpad eins og á MacBook Pro. Plastið í tölvunni á að hrinda frá sér óhreinindum en einnig er nýtt undirlag á henni sem á að koma í veg fyrir að hún renni til.

Screen shot 2009-10-20 at 9.28.55 PM

Í vélinni er 2.26 GHz Core 2 Duo örgjörvi, 2GB í vinnsluminni (hægt að auka í 4GB), NVIDIA 9400M skjástýring, 250GB harður diskur og SuperDrive. Mun hún fást fyrir $999.

Nýr iMac kynntur

Screen shot 2009-10-20 at 6.49.50 PM

Í dag kynnti Apple tvær nýjar 21.5″ og 27″ iMac tölvur. Lengi hefur verið búist við þessari uppfærslu og leit hún loksins dagsins ljós. Nýju tölvurnar eru með svipaðri hönnun og fyrri gerð en með 16:9 widescreen skjá og úr áli í gegn. Skjáirnir eru nú með LED-baklýsingu og því bjartari en áður auk þess sem þeir bjóða uppá víðara sjónarhorn og hærri upplausn. Sömu tengimöguleikar eru fyrir hendi auk nýrrar SD-korta raufar og video-in möguleika á 27″ gerðinni. Nú koma tölvurnar með þráðlausu lyklaborði og nýrri mús – Magic Mouse.

Ég vil benda fólki á video á síðu Apple þar sem spjallað er við Johnathan Ive og fleiri góða um tölvurnar.

Tölvurnar eru seldar í 4 “standard” gerðum:

21.5″ 3.06  Ghz- $1,199:
• 21.5-inch 1920 x 1080 LED-backlit display;
• 3.06 GHz Intel Core 2 Duo processor with 3MB shared L2 cache;
• 4GB 1066 MHz DDR3 SDRAM expandable to 16GB;
• NVIDIA GeForce 9400M integrated graphics;
• 500GB Serial ATA hard drive running at 7200 rpm.

21.5″ 3.06 GHz – $1,499:
• 21.5-inch 1920 x 1080 LED-backlit display;
• 3.06 GHz Intel Core 2 Duo processor with 3MB shared L2 cache;
• 4GB 1066 MHz DDR3 SDRAM expandable to 16GB;
• ATI Radeon HD 4670 discrete graphics; with 256MB GDDR3;
• 1TB Serial ATA hard drive running at 7200 rpm.

27″ 3.06 GHz – $1,699:
• 27-inch 2560 x 1440 LED-backlit display;
• 3.06 GHz Intel Core 2 Duo processor with 3MB shared L2 cache;
• 4GB 1066 MHz DDR3 SDRAM expandable to 16GB;
• ATI Radeon HD 4670 discrete graphics; with 256MB GDDR3;
• 1TB Serial ATA hard drive running at 7200 rpm.

27″ 2.66 GHz Core i5 – $1,999:
• 27-inch 2560 x 1440 LED-backlit display;
• 2.66 GHz Intel Core i5 quad-core processor with 8MB shared L3 cache;
• 4GB 1066 MHz DDR3 SDRAM expandable to 16GB;
• ATI Radeon HD 4850 discrete graphics; with 512MB GDDR3;
• 1TB Serial ATA hard drive running at 7200 rpm.

Auk þess er eftirfarandi í öllum týpum:

• slot-load 8x SuperDrive with double-layer support (DVD±R DL/DVD±RW/CD-RW);
• Mini DisplayPort for video input (and output- aðeins í 27″ )
• built-in AirPort Extreme 802.11n wireless networking and Bluetooth 2.1+EDR;
• built-in iSight video camera;
• Gigabit Ethernet port;
• four USB 2.0 ports;
• one FireWire 800 port;
• SD card slot;
• built-in stereo speakers and microphone; and
• Wireless Apple Keyboard, Magic Mouse.

-Hægt er að sérpanta tölvur með allt að 2Tb geymsluplássi og 16Gb vinnsluminni.

Mac OS X Snow Leopard kemur út þann 28. ágúst

promo_lead_snow_announce_20090824

Í dag kynnti Apple opinberlega að nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, Mac OS 10.6 Snow Leopard, sé væntanlegt þann 28. ágúst fyrir aðeins $29, sé uppfært úr Leopard. Eins og flestir vita er uppfærslan aðallega hugsuð til þess að auka afköst, bæta hraða og gera ýmsar endurbætur en ekki er mikið af nýjungum í kerfinu sjálfu.

Uppfærsla:

Verðið á Snow Leopard hjá IceMac verður 5490 kr. m. vsk. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær kerfið lendir hérlendis.

Apple að koma með snertitölvu á markað 2010?

123914-ai_tablet_500

Apple mun koma með snertitölvu á markað, mjög líklega á fyrsta ársfjórðungi næsta árs, a.m.k. samkvæmt áreiðanlegum heimildum AppleInsider.

Síðan skýrir frá því að Apple séu að leggja lokahönd á þessa nýju tölvu, sem hefur verið mjög lengi í burðarliðnum. Miklar tafir á vélinni hafa stafað vegna mikillar hönnunnar og þróunarvinnu sem þurfti til að tækið gæti fullnægt öllum gæðakröfum Apple. Í greininni segir að helstu tafir á tækinu hafi verið vegna ákvarðana sem hafi þurft að taka í sambandi við örgjörvann. Í fyrstu hafi átt að notast við Intel Atom en seinna svo ákveðið að nota við ARM-örgjörva frá P.A. Semi, fyrirtæki sem Apple tók yfir fyrir nokkru. Nú lítur svo út fyrir að Steve Jobs sé loks sáttur við vöruna en samkvæmt heimildum hefur hann meira að segja fylgst með þróun hennar úr sjúkrarúmminu.

Tölvan mun að öllum líkindum líkjast iPhone í hönnun en talið er að hún muni hafa 10” snertiskjá og 3G netkort, sem Verizon Wireless myndi hugsanlega veita þjónustu í stað AT&T.

-Myndin sem fylgir er aðeins teikning af hugsanlegu útliti tölvunnar en engum myndum hefur verið lekið ..ennþá.

Apple skýrir frá hagnaði þriðja ársfjórðungs 2009

picture-2

Í gær kynnti Apple fjármálaniðurstöður síðasta ársfjórðungs og allar sölutölur. Fyrirtækið mun þá hafa skilað $8.34 milljörðum í tekjum með $1.23 milljörðum í hagnað sem er tæplega 15% aukning miðað við sama tíma í fyrra, þess má geta að alþjóðlegar sölur námu 44% af heildartekjum. Séu miðað við aðra ársfjórðunga sem ná ekki yfir jólamánuðina er þessi sá besti í sögu fyrirtækisins.

Apple seldi 2.6 milljón Macintosh tölvur á fjórðungnum, sem er 4% aukning frá sama tíma í fyrra (ath. að árið 2008 var 41% aukning í sölum). 10.2 milljónir iPod spilara voru seldir, sem er 7% minnkun miðað við árið á undan. Síðast en ekki síst voru 5.2 milljón iPhone símar seldir sem er hvorki meira né minna heldur en 626% aukning frá sama ársfjórðungi síðasta árs (þá voru seldir 717.000).

Hægt er að hlusta á fundarsímtal þar sem niðurstöður eru ræddar hér.

Næstu kynslóðar iPod Touch með hljóðnema og myndavél?

overview-hero-20090514Tæknibloggsíðan Wired.com heldur því fram að verksmiðjur í Kína séu þegar farnar að framleiða næstu kynslóðar iPod Touch með hljóðnema og myndavél. Tækið, sem mun líklega koma út í september eða október, mun þá gera notendum kleift að nota það sem voice over IP “síma” þar sem Wi-Fi tenging er til staðar. Auk þessa myndi tækið geta notað Voice command, videoupptökur og enn fleiri forrit úr AppStore en það gerir nú.

iPhone Software 3.0 komið út

iphone30-090414

Apple hefur í dag, 17. júní, gefið út nýjustu uppærslu iPhone stýrikerfisins – iPhone Software 3.0. Uppfærslan er fyrir alla iPhone síma(frítt) og iPod Touch (á $9.95 gegnum iTS). Í heild eru um 100 nýjungar í stýrikerfinu en þær helstu eru:

  • Cut, Copy & Paste
  • Landscape Keyboard
  • Spotlight Search
  • Voice Memos
  • Improved Calendar
  • Buy Movies, TV Shows, and Audiobooks
  • Safari Improvements
  • Internet Tethering
  • Stereo Bluetooth
  • Sync Notes
  • YouTube Login
  • Shake to Shuffle
  • New Languages
  • MobileMe Find My iPhone and Remote Wipe

Athugið að það þarf iTunes 8.2 til að uppfæra og fara skal varlega í að uppfæra hakkaða síma.

Snow Leopard kemur út í september á $29

picture-1

Apple kynnti formlega í dag nýjustu útgáfu Mac OS X stýrikerfisins, 10.6 Snow Leopard. Stýrikerfið mun aðallega bæta stöguleika, afköst og vinnslu í stað þess að hlaða inn nýjungum. Snow Leopard mun koma út í september á aðeins $29 fyrir Leopard notendur.

Meðal fjölda nýjunga ber helst að nefna:

  • -Endurskrifaður Finder sem skilar sér í betri virkni og hraða.
  • - Microsoft Exchange stuðningur
  • - Quick Time X, ný og betri útgáfa Quicktime spilarans.
  • - 64 bita stuðningur við öll kjarna forrit, s.s. Mail, Safari, Quicktime ofl.
  • - Snow Leopard mun taka helmingi minna pláss á harða diskinum miðað við Leopard.
  • - Safari 4
  • - Nýtt iChat
  • - Crand Central Dipatch, tækni sem mun nýta fjölkjarna örgjörva mun betur en áður.
  • - Open Cl

Hægt er að lesa ítarlegri lista á Apple.com

Apple kynnir iPhone 3G S

iphone3gs-090608-2

Í dag á WWDC kynningunni kynnti Apple næstu kynslóð iPhone símans, iPhone 3G S. Síminn ber nafn með réttu (S-ið stendur fyrir hraða) en hann er um tvöfalt hraðari heldur en fyrri gerð og hefur einnig betra batterí. Ný 3.0 megapixla myndavél er á iPhone 3G S og hefur býður hún m.a. uppá  myndbandsupptöku og autofocus. Vert er að nefna að nú er loksins komin MMS stuðningur þannig að hægt er að senda myndir og myndskeið með skilaboðum. Apple hefur einnig bætt við nokkrum minniháttar möguleikum eins og Voice Control, stafrænum áttavita, Voice over og Nike+ stuðning ásamt fleiru, hægt er að lesa meira um það á síðu Apple. Síminn er nánast alveg eins í útliti og forveri hans en Apple hefur sett nýja húð á símann og lofa þeir að hún muni stuðla að minni fingraförum og færri rispum

Síminn mun koma með iPhone OS 3.0 beint úr kassanum, en sú uppfærsla býður uppá fjölda nýjunga s.s. Cut, paste, MMS og Spotlight leit.

Síminn kemur út  19 júní í 16GB og 32GB útgáfum á $199 og $299, en fyrri gerð símans, iPhone 3G verður seld í 8GB útgáfu á aðeins $99. Á næstu vikum mun síminn svo koma út í 80 löndum.




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!