
Nokkrum sinnum á ári gefur forritasíðan MacUpdate út forritapakka á lágu verði. Í þetta skiptið inniheldur pakkinn nokkur einstaklega vel valin og sniðug tól sem ættu að gagnast félitlum aðilum í „kreppunni“. Forritin eru 11 talsins og kostar pakkinn 49.99 dollara og ætti það að teljast ágætur afsláttur þar sem raunvirði pakkans er 521.71 dollari.
Meðal forritanna er hið geysivinsæla Parallels Desktop 4, en það gerir manni kleyft að keyra Windows stýrikerfið samhliða Mac OS X. Þá eru nokkur DVD tól í pakkanum, ýmist til að afrita DVD diska inn á harða diskinn í tölvunni, halda utan um DVD safnið sitt eða til að afrita þá á iPodvænt snið. Fyrstu 25.000 kaupendurnir fá einnig tvö aukaforrit.
Hægt er að sjá nánar um allt sem pakkinn inniheldur á vefsíðu MacUpdate.
MacRumors.
Skrifað í flokkinn: Annað
5 athugasemdir / Skrifa athugasemd
Samkvæmt vef MacRumors gæti verið að næsta kynslóð af iPhone 3G verði með mattri bakhlið til að minnka rispur. Einnig er nefnt að síminn komi út í þremur útgáfum, eftir því hvað dreifikerfi hvers staðar býður upp á; 3G, bætt 3G og svo kínversk útgáfa. Talið er líklegt að símanum með bætta 3G kerfinu verði dreift í Bandaríkjunum til að unnt sé að nota nýja dreifikerfið þar, sem gerir niðurhal á allt að 7.2 megabitum á sekúndu kleyft.
Á vef iLounge kemur einnig fram að mögulegt gæti verið að iPod nano verði með áfastri myndavél, svipað og iPhone. Hann muni þó enn státa af hinu „geysivinsæla“ smelli-hjóli, sem margir furða sig á að skuli enn vera á iPod enda er sú uppfinning orðin fimm ára gömul.
MacRumors
iLounge
Skrifað í flokkinn: Orðrómur, iPhone, iPod
6 athugasemdir / Skrifa athugasemd