
Adobe hefur gefið út takmarkaðar beta-útgáfur af þremur forritum í fjórðu útgáfu Creative Suite forritapakkans. Þetta eru forritin Dreamweaver, Fireworks og Soundbooth.
Helstu nýjungar eru eftirfarandi:
Dreamweaver CS4 (sjá vef)
Nýr “Related Files” tólastika og nýr kóðavafri, ásamt nýjum “Live View” möguleika sem gerir notandanum kleift að sjá útlit og viðmót síðunnar breytast í rauntíma án þess að þurfa að skipta yfir í vafra.
Fireworks CS4 (sjá vef)
Notendaviðmótið hefur verið aðlagað að öðrum forritum CS pakkans. Einnig er nú meðal annars hægt að keyra út úr forritinu svokölluð design comps sem gagnvirkar pdf skrár.
Soundbooth CS4 (sjá vef)
Meðal annars hefur fjölrásastuðningur loksins bæst við forritið, hægt er að forhlusta á mp3 þjöppun áður en hún er keyrð út, og ný talkennslatækni gerir notendum kleift að búa til handrit á einfaldan hátt af skrám sem innihalda tal og leita að orðum í tímalínunni.
Betaútgáfurnar getur hver sem er náð í, en aðeins skráðir eigendur CS3 pakkans geta notað þær lengur en í 48 tíma frá því að þær eru fyrst opnaðar, allt þar til endanleg útgáfa CS4 kemur út.

Þetta er gert með nýju forritunarmáli, Cocoa touch, sem byggir á Cocoa fyrir OS X. Ýmsir spennandi notkunarmöguleikar voru kynntir, enda leyfir Cocoa touch forriturum að nýta m.a. þrívíddarvél, myndavélina, innbyggða hallamælinn og margt fleira. Hægt verður meðal annars að prufukeyra hugbúnaðinn með sérstöku forriti, iPhone Simulator, sem líkir eftir útliti og hegðun iPhone.
Einungis verður hægt að nota nýtt iPhone forrit sem kallast App Store til þess að koma nýjum hugbúnaði í iPhone, í gegnum WiFi eða farsímanet.

Apple hefur uppfært iTunes og QuickTime.

Hollywoodleikstjórinn Martin Scorsese hlaut Óskarinn nýverið í fyrsta skipti, og var það fyrir leikstjórn hans á myndinni The Departed. Það sem fáir vita er að Scorsese nýtti sér möguleika iChat við gerð myndarinnar.




(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.