Nýi iPad fær magnaða dóma

Miðað við hvað nýjasta kynslóðin af iPad býður uppá þarf maður varla að vera hissa á jákvæðum viðbrögðum frá helstu fjölmiðlunum.

Það merkilegasta við nýja iPad-inn er  að sjálfsögðu skjárinn því hann hefur að geyma fjórfalt fleiri pixla á sömu skjástærð og iPad 2. Þar að auki með fjórfalda grafíkgetu fyrri kynslóðar, sem verður að teljast nokkuð magnað.

Hér eru nokkrar útvaldar tilvitnanir frá ýmsum erlendum fjölmiðlum:

- “The third-generation iPad had a frame rate 1.6 times that of the iPad 2″
- 3rd Gen iPad almost identical physically to iPad 2
- Video quality of 1080p video recorded was “very good” even in low light
- “Remember how startling it was to go from one of those giant standard definition projector TVs to an HDTV? That’s what this is like.”
- Screen is a huge difference from iPad 2.
- Movies and photos are crystal clear
- “Once you see and use the new iPad, there will be no going back.”
- “I’m not being hyperbolic or exaggerative when I say it is easily the most beautiful computer display I have ever looked at.”
- Was able to use smaller font sizes to read books and email on 3rd Gen iPad vs iPad 2

Heimildir:
The VergeMacworld.com | AllThingsDTechCrunch Loop Insight | NYTimes.com

Ætlarðu að fá þér nýja iPad? Taktu þátt í könnuninni okkar hér til hliðar ->

Nýi iPad – Vídeó, myndir og hraði

Það virðist sem nokkrir í Asíu hafa fengið nýja iPad í hendurnar fyrir útgáfudag sem er á morgunn í útvöldum löndum. Því hafa myndir verið birtar á netinu af bæði tækinu sjálfu og svo myndir og vídeóupptökur sem hafa verið teknar á nýju græjunni. Þar að auki hraðaprófanir.

Hér má m.a. sjá samanburð – ein tekin á iPad (3. kynslóð) og hin á iPad 2.

Hér má sjá fyrsta myndbandið þar sem þriðja kynslóð iPad er tekin úr umbúðunum.

Það er athyglisvert að skoða skjáskot tekið á iPad með Retina skjá, því upplausnin er það há að myndin kemst ekki fyrir í fullri stærð á flestum tölvuskjám. Hér má sjá: skjáskot | ljósmynd (tekna á 5MP myndavélinni á iPad).

Annar notandi hefur gefið út myndband af iPad 2 og nýjustu gerðinni af iPad – hlið við hlið:

Að auki hefur Apple gefið út myndir og vídeó sem hefur verið tekið á nýja iPad. Þar eru hæstu mögulegu gæðin sýnd í litríkum myndum og einnig sýnt hvað hristingsvörnin skiptir miklu máli í nýju iSight myndavélinni.

Hér sjáið þið dæmi: www.apple.com/ipad/gallery

En nóg um það. Margir vilja einnig vita hver hraðamunurinn er á nýja iPad og fyrri kynslóð. Sjálfur örgjörvinn hefur ekki breyst en hins vegar hefur vinnsluminnið og grafíkkortið verið endurbætt til muna. Vinnsluminnið er tvöfalt stærra, 1GB í stað 512MB, og grafíkkortið fjögurra-kjarna. Þetta skilar sér 50-70% aukinn hraða í nýjustu GLBenchmark grafíkprófunum.

Svo er bara að bíða spennt/ur eftir 23. mars – því þá fáum við öll (sem búum á Íslandi) tækifæri til að handleika og prófa tækið hjá Epli.is!

Hið nýja móðurskip Apple

Apple hefur hafið framkvæmdir á nýjum höfuðstöðvum þar sem núverandi aðstaða er löngu orðin fullnýtt.

Það kemur ekki á óvart að nýju höfuðstöðvarnar verða stórglæsilegar og mjög dýrar í framkvæmd. Byggingin verður hringlaga með bognu gleri sem þarf að sérsmíða.

Byggingin mun hafa m.a. 246.193 fm. húsnæði fyrir skrifstofur, rannsóknir og þróunarstarfsemi, þúsund sæta kynningarsal, líkamsræktarsal og margt margt fleira. Hægt er að taka sérstakan strætó sem sækir starfsmenn að heiman í vinnuna og tilbaka. Bílastæðahús verður undir byggingunni.

Hér sjáið þið teiknaðar myndir af glæsihýsinu.

Nýi iPad kemur til Íslands 23. mars!


Að öllum líkindum eru margir að huga að kaupum á nýja iPad og spenntir að ná eintaki sem fyrst.

Góðar fréttir – því nýi iPad verður fáanlegur á Íslandi föstudaginn 23. mars!

Verð á nýja iPad verður það sama og var á iPad 2 og hefur lítill fugl hvíslað að eyra einhvers hér á Maclantic að forpantanir eru hafðar hjá umboðsaðila Apple á Íslandi, Epli.is, og endursöluaðilum!

Því er um að gera og leggja inn pöntun sem fyrst til að ná í eintak úr fyrstu sendingu (já eða bara mæta áður en verslanir opna 23. mars!).

Hvað er svona merkilegt við Retina skjá?

Apple kynnti í gær nýjan iPad með Retina skjá og vakti það mikla lukku um heim allan. Eigendur iPhone 4 og 4S vita án efa hvað um er að ræða, en við skulum aðeins skoða hvað þetta í raun og veru þýðir.

Apple byrjaði að nota orðið Retina þegar það kynnti iPhone 4 og núna nýja iPad, skilgreiningin hjá Apple er að skjárinn er það skýr að nánast ómögulegt er að greina pixla á skjánum með berum augum – sem þýðir einfaldlega bestu mögulegu gæði fyrir hið mennska auga.

Augu okkar eru að sjálfsögðu mismunandi og Apple segir að miðað sé við að horft sé á tækið úr eðlilegri fjarlægð (þ.e. í fjarlægð sem okkur finnst í raun þægilegast að nota græjuna).

Til að fá betri skilning á útkomuna getum við borið þetta saman við t.d. MacBook Pro fartölvuna. Minnsta MacBook Pro hefur að geyma 1280 x 800 pixla á 13,3-tommu fleti. Það gerir 1.024.000 pixla.

Nýi iPad hefur hins vegar að geyma 2048 x 1536 pixla á 9,7-tommu fleti. Það gerir samtals 3.145.728 pixla, eða rúmlega þrefalt fleiri pixla en á MacBook Pro vélinni! (Til gamans má geta hefur 27″ iMac upplausnina 2560 x 1440, sem gerir 3.686.400 pixla en hún er líka 17,3-tommum stærri en iPad í skjástærð).

Þá er bara að ímynda sér hvernig öllum þessum pixlum er svo þjappað saman á minni flöt (9,7-tommur)!

Texti, ljósmyndir og vídeó í HD njóta sín virkilega vel á skjá sem þessum – skýrari mynd hefurðu að öllum líkindum aldrei séð með berum augum!

Tilhlökkunin er því mikil hjá notendum og þá sérstaklega leikjaunnendum sem bíða óþreyjufullir eftir nýjum leikjum sem nýta sér afl og getu A5X örgjörvans og grafíkkortsins, og Retina upplausnina sem nýi iPad hefur uppá að bjóða. Ekki skaðar að geta notað Apple TV með 1080p og spila þráðlaust í sjónvarpið í mögnuðum gæðum!

Til fróðleiks er hér nærmynd af iPad 2 og nýja iPad (frá The Verge) – smelltu á myndina til að stækka

Horfðu á kynninguna – Slóð að vídeó

http://events.apple.com.edgesuite.net/123pibhargjknawdconwecown/event/index.html

Apple kynning í dag kl. 18 – Nýr iPad og Apple TV?

Eins og svo margir vita þá verður Apple með kynningu í dag sem tengist iPad.

Orðrómurinn hefur verið gífurlegur síðastliðna daga og ýmsar upplýsingar um hið nýja tæki lekið á stærstu fréttasíðurnar. Þar hefur m.a. komið fram að iPad 3 (eða HD?) verði kynntur með Retina skjá (með fjórfalt fleiri pixla en á iPad 2), nýjum tveggja-kjarna örgjörva og öflugri grafík. Að auki má búast við nýju 1080p Apple TV og $39 vöru sem enginn veit hvað er. Þar má giska á aukahlut fyrir nýja iPad-inn eða hugsanlega fyrir nýja Apple TV?

Það kemur allt í ljós í kvöld kl. 18:00, en því miður verður kynningin ekki í beinni útsendingu á Apple.com

Notendur geta þó huggað sig yfir því að nokkrar fréttasíður verða með fréttaskrif í beinni á kynningunni og hefur m.a. The Verge auglýst að þeir verði á staðnum.

Hægt er að fylgjast með þeim á live.theverge.com

Nýr fréttaritari

Það er mér sönn ánægja að kynna nýjan fréttaritara sem mun hjálpa mér við að endurlífga fréttavefinn sem hefur verið í ágætum dvala síðastliðna mánuði.

Nýi fréttaritarinn okkar er hann Eiður Árnason, sem hefur brennandi áhuga á Apple og öllu því tengdu.

Við bjóðum hann velkominn í hópinn og hlökkum til að sjá vaxandi líf og fréttir á Maclantic.

Björgvin
Stofnandi Maclantic

Adobe gefur út Photoshop Lightroom 4 á $149

Í gær, 6. mars, hóf Adobe sölu á nýjustu útgáfunni af Photoshop Lightroom.

Nýja útgáfan hefur að geyma nýjungar á borð við stuðning við DSLR vídeó skjöl, endurbætta tækni fyrir skugga og birtu, möguleika til að hanna  og búa til ljósmyndabækur og senda tölvupóst í forritinu.

Það sem vekur athygli er að verðmiðinn á fullri útgáfu hefur lækkað um heil 50% og kostar nú aðeins $149 í Bandaríkjunum. Uppfærslupakki (1.0, 2.0 eða 3.0) er á $79.

Ekki hefur verið gefið út hvort Lightroom 4 verði fáanlegt á App Store.

Nánari upplýsingar: www.adobe.com/products/photoshop-lightroom.html

iPod nano (1. kynslóð) – INNKÖLLUN!

Tilkynning frá Epli.is

Í tilefni af villandi tilkynningum í íslenskum fjölmiðlum vegna útskipta á iPod nano fyrstu kynslóð vill epli.is koma á framfæri eftirfarandi:

Apple hefur ákvarðað að í einhverjum tilfellum geti rafhlöður í iPod nano fyrstu kynslóð ofhitnað og orsakað hættu. Á það við um iPod nano spilara sem voru framleiddir og seldir á tímabilinu september 2005 til desember 2006. Þetta á ekki við alla spilara af þessari gerð eins og kom fram í einum fjölmiðli.

Framleiðandinn ráðleggur öllum að hætta notkun á iPod nano fyrstu kynslóð og að viðkomandi setji sig í samband við þjónustuaðila Epli.is á Íslandi til að fá úr því skorið hvort spilarinn falli undir ofangreint.
Tækið mun vera sent til Apple sem að lokinni athugun sendir annað tæki í staðinn. Allt að 6 vikur geta liðið þar til tækið berst frá Apple.

Tilkynning frá Apple: http://www.apple.com/support/ipodnano_replacement/

Nánar hér:
http://www.epli.is/innkollun




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!