iPod nano (1. kynslóð) – INNKÖLLUN!

Tilkynning frá Epli.is

Í tilefni af villandi tilkynningum í íslenskum fjölmiðlum vegna útskipta á iPod nano fyrstu kynslóð vill epli.is koma á framfæri eftirfarandi:

Apple hefur ákvarðað að í einhverjum tilfellum geti rafhlöður í iPod nano fyrstu kynslóð ofhitnað og orsakað hættu. Á það við um iPod nano spilara sem voru framleiddir og seldir á tímabilinu september 2005 til desember 2006. Þetta á ekki við alla spilara af þessari gerð eins og kom fram í einum fjölmiðli.

Framleiðandinn ráðleggur öllum að hætta notkun á iPod nano fyrstu kynslóð og að viðkomandi setji sig í samband við þjónustuaðila Epli.is á Íslandi til að fá úr því skorið hvort spilarinn falli undir ofangreint.
Tækið mun vera sent til Apple sem að lokinni athugun sendir annað tæki í staðinn. Allt að 6 vikur geta liðið þar til tækið berst frá Apple.

Tilkynning frá Apple: http://www.apple.com/support/ipodnano_replacement/

Nánar hér:
http://www.epli.is/innkollun

3 svör við “iPod nano (1. kynslóð) – INNKÖLLUN!”


  1. Gravatar Icon 1 Þorleifur Gunnar Gíslason Laugardagur 19. nóvember 2011 kl. 11:24

    Virðast vera misvísandi upplýsingar í gangi um hvers konar iPod Nano maður fær í staðinn.. Fær maður nýjann Nano eða 1st gen Nano í skiptum?

  2. Gravatar Icon 2 Ómar Þriðjudagur 22. nóvember 2011 kl. 01:21
  3. Gravatar Icon 3 Ómar Fimmtudagur 22. desember 2011 kl. 01:22

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!