Það er mér mjög erfitt að skrifa þessa færslu og ég vonaðist svo innilega til þess að þessi tími myndi ekki koma svo snemma. Á iPhone kynningunni í gær tók ég eftir auðu sæti sem á stóð „Reserved“ og ég hugsaði það versta, sem því miður reyndist vera rétt.
Steve Jobs lést í gær aðeins 56 ára að aldri en hann hefur þurft að glíma við mjög erfið veikindi síðastliðin ár. Steve vann fram á síðustu stundir hjá Apple og það var ekkert sem stöðvaði hann í að ryðjast áfram á ótroðnar brautir til að skapa ein merkilegustu tæki í heiminum.
Þetta er mikill sorgardagur í sögu Apple.
Hvíl í friði Steve Jobs. Við munum sárlega sakna þín.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Þetta eru sorglegar fréttir og mikill maður fallinn frá.
Hvíl í friði Steve Jobs og takk fyrir allt.
Þetta var svo sannarlega mikill maður hér á ferð!
Hvíl í Friði Steve Jobs og þökk fyrir allt sem þú færðir okkur Apple notendum
Mikill snillingur genginn á braut. Da Vinci okkar tíma. Hvíl í friði og takk fyrir mig.
Með orðum látins Apple notanda:
So long and thanks for all the fish!
Douglas Adams
Hann er samt ennþá maðurinn sem laug að besta vini sínum(Wozniak) og stal frá honum pening í upphafi Apple. Hann er ennþá maðurinn sem eignaðist dóttir en neitaði að eiga hana og sagði henni og barnsmóður sinni að hypja sig.
Burt með þetta tröll. Farðu aftur undir brúnna þar sem þú átt heima.
RIP Steve Jobs. Apple wont be the same.
TT. Hann er líka maðurinn sem bað Wozniak afsökunar á því og bætti fyrri ráð sitt gagnvart dóttur sinni. Steve Jobs var breiskur maður og það er stór hluti af ástæðu þess hversu mikils metinn hannn er.