USB 3.0 væntanlegt í Mac?

Margir hafa beðið örvæntingarfullir eftir að Apple skelli USB 3.0 tenginu í vélarnar sínar, en eftir að ThunderBolt-tengið var kynnt í nýjustu línunum telja margir að enn minni líkur séu á því að fyrrnefnda tengi fái að njóta makkans.

Nýjasti orðrómur segir hins vegar að Apple sé að leita leiða til að nota USB 3.0 staðalinn í tölvunum sínum, en Intel hafa verið seigir við að styðja kubbasettið. (Til upplýsinga var það Intel sem þróaði ThunderBolt tæknina.)

Hvenær það er væntanlegt eða hvort orðrómurinn sé réttur er erfitt að segja til um, en líklegt þykir að við fáum að sjá bæði ThunderBolt og USB 3.0 í Apple-tölvum á næstunni (rétt eins og USB 2.0 og FireWire 800 fengu að lifa saman).

Heimild

5 svör við “USB 3.0 væntanlegt í Mac?”


  1. Gravatar Icon 1 emmi Þriðjudagur 6. september 2011 kl. 21:34

    Hvar í fjandanum eru Thunderbolt jaðartækin?

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Þriðjudagur 6. september 2011 kl. 22:00

    Haha. Góður punktur.

  3. Gravatar Icon 3 Ívar Sunnudagur 11. september 2011 kl. 21:00

    Er kominn einhver hugmynd að dagsetningu hvenær má búast við því að Apple tölvur með usb 3.0 komi í sölu á Íslandi?

  4. Gravatar Icon 4 emmi Sunnudagur 11. september 2011 kl. 22:37

    Ef það kemur þá kemur það örugglega ekki fyrr en í næstu uppfærslu frá Apple sem yrði þá á næsta ári.

  5. Gravatar Icon 5 Sindri Sunnudagur 25. september 2011 kl. 18:29

    Eg var ad lesa ad usb3 vaeri innbyggt a ivy brigde kubbasettunum sem er naesta kubbasett fra intel. En nuverandi kubbasett apple er sandy bridge. Einnig er ordromur um ad ivy bridge mun stydja 4k upplausn, en hun er 4x full hd upplausn

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!