Apple hefur sent út boðskort til fjölmiðla um sérstaka kynningu þann 1. september kl. 10 í San Francisco.
Í september koma oftast nýjar línur af iPod og því má sérstaklega gera ráð fyrir að nýjar gerði verði kynntar.
Þar að auki er talað um nýtt Apple TV sem mun heita iTV og kosta aðeins $99.
Gert er ráð fyrir nýjungum þar á ferð (fyrir utan verðlækkunina), en talið er að græjan muni styðjast við iOS stýrikerfið sem er að finna í iPod touch, iPhone og iPad. Þar að auki að hægt verði að leigja þætti á 99¢ á iTunes Store (US).
Kemur í ljós eftir rúma viku!





The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Er ekki líklegt að 720p og jafnvel 1080p stuðningur verði í iTV. Eða er A4 kubburinn sem verður í tækinu, ekki að ráða við það?
Snilld. En stóra spurningin er samt – hvar er hægt að fá svona gítar?
Gítarinn hlýtur að vera táknrænn. GarageBand fyrir iOS?
@Auðunn: Öruggt að 720p stuðningur verði. Örugglega ekki 1080p.
Gítarinn = Bítlasamningur
iPod touch með WiFi/3G, þá er SIP netsímar klárlega inni alltaf með IOS 4
iTV bara bónus.
…gleymdi að bæta við að með SIP væri hægt að hætta við næstu kaup á iPhone4G og nota iPoud touch með IOS4 og miklu ódýrari heimasímanúmeri með netsímanúmeri á taxta heimasímans í stað þessarar fjárplógsstarfsemi símafélaganna á gemsataxtanum! Vert að prófa?!
… og þá væri maður einnig á samta innanlands heimasímataxtanum, hvort heldur maður væri innanlands eða erlendis! Hmmm…. spennandi ef….
Ég spái iTunes X.
A4 ræður ekki við 1080p afspilun en ef það er GPU í tækinu líka að þá væri hægt að offloada vinnslunni þangað og þannig yrði blússandi FullHD afspilun.
Vona innilega að tækið geti það, þá er þetta must buy hérna megin.
Hva eruði bara farnir í frí eða ? Ekkert að updatea ?