Apple hættir framleiðslu á 24″ og 30″ Cinema Display

Eins og margir hafa tekið eftir, þá kynnti Apple 27″ LED Cinema Display í gær en að sama skapi hefur fyrirtækið hætt að framleiða 24″ LED Cinema Display og 30″ Cinema Display. Ákveðið hefur verið að selja skjáina á meðan birgðir endast.

Nýi 27″ skjárinn má segja að komi í staðinn fyrir eldri 30″ Cinema Display þar sem hann ber nánast sömu upplausn (2560 x 1440 á móti 2560 x 1600), en ekki virðist vera að Apple muni koma með staðgengil fyrir 24″.

Vert er þó að nefna að 27″ LED Cinema Display mun til með að kosta $999, á meðan 24″ er á $799 og 30″ kostar $1799.

27″ LED Cinema Display er væntanlegur í september í BNA.

10 svör við “Apple hættir framleiðslu á 24″ og 30″ Cinema Display”


  1. Gravatar Icon 1 emmi Miðvikudagur 28. júlí 2010 kl. 10:22

    Við erum þá væntanlega að tala um 160-180k hérna heima?

    mosta >kosta :p

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Miðvikudagur 28. júlí 2010 kl. 10:35

    Hahaha mosta… snilld.

    Er búinn að laga þetta :) Takk fyrir ábendinguna.

  3. Gravatar Icon 3 Rúnar Miðvikudagur 28. júlí 2010 kl. 14:26

    Mér finnst gömlu skjáirnir talsvert flottari en þeir nýju.

    Skil ekki þetta glossy bull í Apple.

  4. Gravatar Icon 4 Siggi Opes Miðvikudagur 28. júlí 2010 kl. 20:01

    Mér finnst það að þeir droppi 30 tommunni skiljanlegt, en 24? Why?

  5. Gravatar Icon 5 Bjöggi Miðvikudagur 28. júlí 2010 kl. 20:04

    @Siggi

    Sammála.

    En ég geri sterklega ráð fyrir því að það komi 21,5″ á næstunni. Það væri skynsamlegt af þeim að mínu mati…

  6. Gravatar Icon 6 Spuncken Fimmtudagur 29. júlí 2010 kl. 13:12

    ótrúlegt að Apple skuli ekki bjóða matte sem option. Ég skil vel að Glossy seljist betur þar sem þeir lúkka mun betur í búðinni en þeir eru ónothæfir í grafíska vinnslu og í raun nánast ónothæfir ef þú vinnur í björtu rými við glugga t.d.

    Hvaða skjáir eru alternative við Apple? Þá er ég að meina hágæðaskjái sem hægt er að fá matte.

  7. Gravatar Icon 7 Rúnar Fimmtudagur 29. júlí 2010 kl. 17:32

    Dell skjáirnir eru víst að koma vel út… er mér sagt.

  8. Gravatar Icon 8 neytandinn Fimmtudagur 29. júlí 2010 kl. 23:47

    DELL skjáirnir koma jafn vel út og Apple matte skjáirnir.

    Vandamálið er EJS, en þar kostuðu þeir á sjöunda hundrað þúsund, áður en þeir hurfu úr vörulistanum fyrir ekki svo mörgum dögum.

  9. Gravatar Icon 9 Bjöggi Mánudagur 2. ágúst 2010 kl. 19:35

    @neytandinn

    Ekki allir Dell skjáir, nei.

    “Top of the line” Dell skjáir eru mjög góðir hef ég heyrt, jafnvel sambærilegir og aðrir Apple skjáir. Sama með toppinn hjá Benq.

  10. Gravatar Icon 10 Arnar Sunnudagur 15. ágúst 2010 kl. 18:27

    Er ekki 24″ droppað bara afþví það er svo lítill munur í verði á 27″ og 24″ gamla.

    Svo er örugglega miklu ódýrara fyrir þá að framleiða bara þessa stærð þar sem þetta er væntanlega sami skjár og í iMac.

    Ef framleiðslan gerir ráð fyrir 21,5″ 24″ og 27″ þá þarf að endurskipuleggja framleiðslupláss og/eða fleiri verksmiðjur sem skilar í hærri framleiðslukostnaði og hærra verði.

    Er þetta ekki bara gott skref fyrir okkur öll ?

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!