Apple kynnir 12-kjarna Mac Pro

Eftir ýmsar skemmtilegar nýjungar í dag (m.a. Magic Trackpad, nýjan iMac og 27″ LED Cinema Display) hefur Apple þar að auki kynnt nýja Mac Pro.

Nýja gerðin af Mac Pro er fáanleg með 4, 6, 8 eða 12 kjörnum. Þar að auki fylgir mun öflugra skjákort með vélunum: ATI Radeon HD 5770 með 1GB GDDR5. Hægt er að uppfæra það í ATI Radeon HD 5870.

Allar gerðir hafa tvö Mini DisplayPort skjátengi og eitt dual-link DVI tengi. Önnur tengi hafa að öðru leyti ekki breyst.

Einnig er hægt að panta Mac Pro vélarnar með allt að fjórum 512GB SSD-diskum, en gera má ráð fyrir að slík uppfærsla sé mjög kostnaðarsöm.

Dæmi um verð á nýju Mac Pro:

$2499: einn 4-kjarna 2,8GHz / 3GB vinnsluminni / 1TB HD
$3499: tveir 4-kjarna 2,4GHz / 6GB vinnsluminni / 1TB HD
$4999: 12-kjarna / 6GB vinnsluminni / 1TB HD

Nýja Mac Pro verður fáanleg í ágúst í Bandaríkjunum

5 svör við “Apple kynnir 12-kjarna Mac Pro”


  1. Gravatar Icon 1 Spuncken Þriðjudagur 27. júlí 2010 kl. 17:01

    Tók það 500 daga að koma með smá speedbump og betra skjákort!?

    Verðin eru samt vel UPPfærð. Skil ekki af hverju þeir eru hækka 8core vélina.

    Er búinn að vera að bíða eftir þessum vélum og hreinlega veit ekki hvað skal gera. iMac bara? Hvað kostar stærsti iMac ef mar spekkar hann í drasl?

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Þriðjudagur 27. júlí 2010 kl. 17:08

    @spuncken

    Þetta er nú ekkert smávægilegt speed-bump.

    http://www.apple.com/macpro/features/processor.html

  3. Gravatar Icon 3 Spuncken Miðvikudagur 28. júlí 2010 kl. 13:54

    Það er verið að bera saman gömlu 8 core og nýju 12 core. Gamla 8 core er hvað að verða 2ja ára gömul?

    Af hverju sýna þeir ekki samanburð á gömlu 8 core og nýju 8 core. Er kannski engin munur á þeim?

  4. Gravatar Icon 4 Björn Fimmtudagur 29. júlí 2010 kl. 00:41

    Ekkert USB 3 í henni !!!

  5. Gravatar Icon 5 Jón Þriðjudagur 24. ágúst 2010 kl. 00:28

    overkill…

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!