Vefþátturinn Helginn (http://helginn.is) og vefverslunin Buy.is (http://buy.is) hafa sett af stað skemmtilegan leik á Facebook. Verðlaunin eru ekki af verri endanum. Fyrstu verðlaun eru hvorki meira né minna en iPhone 4 32GB í boði Buy.is. Leikurinn gengur út á notkun samfélagsmiðlanna Facebook og YouTube. Mikið af myndbrotum sem sýnd eru í Helganum koma einmitt af YouTube, en nú er komið að áhorfendum til að búa til efnið.
Til að taka þátt þarf að „Like-a“ Helgann og Buy.is á Facebook og svo þarf þátttakandi að segja af hverju sá á skilið að fá iPhone 4. Taka þarf skilaboðin upp á video, setja þau á YouTube og senda þeim slóðina á http://helginn.net/iphone4. Þeir fara yfir innsent efni og velja 10 myndbönd í úrslit. Úrslita myndböndin verða sett á Facebook og sá sem fær flest „Like“ vinnur.
Þessi leikur byggir á hugmyndaflugi og samfélagsáhrifum þátttakenda með hjálp þeirra netmiðla sem eru í boði í dag. Þátttakendur geta sent inn hvað sem er, en hver Facebook notandi getur aðeins tekið þátt einu sinni.
Tekið er á móti efni frá til 6. ágúst og úrslitin eru svo vikuna 8. – 14. ágúst. Sigurvegarinn verður kynntur í Helganum í vikunni þar á eftir. Kynningu leiksins má finna á http://www.helginn.is/2010/07/19/special-iphone-4-leikur/ og á http://www.youtube.com/watch?v=b_aY56g_8B4
Nánar um Helgann
Helginn er vefþáttur þar sem Helgi Hrafn og Helgi Steinar ræða um fréttir og efni af netinu. Þeir fá til sín gesti, prufa nýjustu tækni og ræða um það sem gengur og gerist að hverju sinni. Þátturinn varð 1. árs 1. júlí 2010 og náðu strákarnir að gefa út að meðaltali 3 þætti í mánuði. Helgi Hrafn er verkefnastjóri hjá hugbúnaðarhúsinu Stefnu og Helgi Steinar er verslunarstjóri NOVA á Akureyri.
Vefslóð: http://helginn.is
Twitter: http://twitter.com/helginn
Facebook: http://facebook.com/helginnTV
Youtube: http://youtube.com/helginnTV





(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
Veit einhver hvaðan buy.is kaupir iPhone 4?
Ég sendi þeim email fyrir meira en viku og spurði að þessu, en fæ engin svör.
hæ