Er iPhone 4 í raun og veru með gallað loftnet? Maclantic prófar iPhone 4 og iPhone 3G

Formáli

Apple hélt blaðamannafund í gær þar sem rætt var um loftnetsvandamál á iPhone 4 og öðrum símum.

Í stuttu máli var sagt að allir GSM símar í dag væru með svipað vandamál (líka eldri gerðir af iPhone), að þeim þætti mjög vænt um viðskiptavini sína, að þeir myndu gefa ókeypis hulstur fyrir þá sem vilja þegar iPhone 4 er keyptur eða 100% endurgreiðslu.

Einnig var þessi síða stofnuð: http://apple.com/antenna/

Mæli með að hafa skoðað fyrrnefndu síðu og einnig að hafa lesið þessa frétt áður en grein mín er lesin: MacRumors: Apple to Offer Free Cases for iPhone 4 Customers.

Staðsetning


Ég er staddur í S-Þýskalandi, við Alpafjöllin, þar sem mikið er um hóla og hæðir í þessu undurfagra strjálbýla svæði. GSM sambandið hér er bæði mjög lélegt og sums staðar mjög gott, en það fer alveg eftir því hvort maður er uppi á hóli, milli hóla og fjalla eða einfaldlega í stórum og dimmum skógi.

Því fannst mér kjörið að nota tækifærið og aðstæðurnar og prófa nýja iPhone 4 símann minn ásamt iPhone 3G (sem er því miður farinn að líta út eins og gamall Nokia sími við hliðina á iPhone 4).

Ég ákvað að taka mér dágóðan göngutúr þar sem gengið var upp á fjöll, niður í drungalega og dimma skóga, og opin svæði þar sem kýrnar bauluðu og flugurnar æstar í að fá sér sopa af fersku íslensku blóði með ívafi af þýskum bjór.

Aðferðir

Prófanir mínar voru framkvæmar á eftirfarandi máta:

  1. Haldið á símunum með hinu hefðbundna taki
  2. Lét þá liggja í lófanum án þess að snerta hliðar þeirra
  3. Lét þá liggja á klút á t.d. bekk eða stein
  4. Hafði þá í sitt hvorum vasanum

Báðir símar voru án hulsturs og varnar, og með nýja iOS 4.0.1.

Áður en lengra er haldið þá skal taka fram að liður 2) og 3) gáfu alltaf sömu niðurstöðu og því mun ég einfaldlega kalla þá „án snertingar“ í framhaldinu.

Ég framkvæmdi þessar prófanir bæði á ferð (gekk á milli svæða) og þegar ég einfaldlega tók mér smá pásu og settist niður og því kyrr á viðkomandi svæði.

Alpasetrið

En áður en ég sný mér að prófunum mínum á göngutúr mínum ætla ég að tala örlítið um sambandið innanhúss.

Í fyrstu ákvað ég að prófa símann innanhúss þar sem ég er, en sambandið hér inni er hræðilegt. Mest næst eitt strik á tveimur stöðum: rétt við útidyrahurðina og við matarborðið.

Það sem ég tók fyrst eftir var að iPhone 4 náði alltaf sambandi þegar ég gekk á milli þessara tveggja svæða (eldhúsborð og hurð). Það tók iPhone 3G mun lengri tíma að ná sambandi og var í raun mjög oft erfitt að ná yfirhöfuð sambandi á honum á meðan iPhone 4 fór auðveldlega með það.

Innanhúss án snertingar: iPhone 4 sigurvegari.

Þegar ég ákvað að grípa utan um símana við útidyrahurðina á hefðbundinn máta þá missti iPhone 4 samband en iPhone 3G náði að halda einu striki. Þegar ég sat við eldhúsborðið þar sem iPhone 3G nær stundum sambandi þá misstu báðir símar samband þegar ég hélt á þeim.

Innanhúss með snertingu: Jafntefli

En snúum okkur nú að náttúrunni.

Göngutúrinn

Ég gekk rólega af stað frá húsinu á leið minni upp stóran hól og fagurt útsýni yfir svæðið. Á leið minni upp jókst sambandið hægt og rólega og nánast strax eftir að hafa yfirgefið húsið náði iPhone 4 tveimur strikum á meðan iPhone 3G hélt einu striki.

iPhone 4 var fljótur að ná svo fjórum strikum, en iPhone 3G einungis með tvö strik. Ég staldraði við og athugaði hvort iPhone 3G myndi ekki ná sama árangri og iPhone 4. Ekkert gerðist í 2 mínútur og því ákvað ég að grípa í þá og sjá hvaða áhrif það myndi hafa.

Mér til undrunar missti iPhone 3G strax eitt strik á meðan iPhone 4 trappaði sig niður hægt og rólega niður í eitt strik. Hví kom þetta mér á óvart? Ég hafði einfaldlega aldrei gert svipaða prófun áður á iPhone 3G.

Þetta átti sér stað mjög oft í mínum prófunum, þ.e. að iPhone 4 náði mun betra sambandi en iPhone 3G þar sem sambandið var 2-4 strik.

Á öðrum svæðum þar sem sambandið var svipað, þ.e. báðir símar með að meðaltali 3 strik þá gerðist nákvæmlega það sama; báðir símar fóru niður í eitt strik og stundum misstu þeir einfaldlega samband. iPhone 4 missti þó samband sirka 30% oftar en iPhone 3G.

Áhugaverðast var að þegar þeir misstu alfarið samband þá tók innan við 10 sekúndur að ná aftur sambandi á iPhone 4, en á iPhone 3G tók það a.m.k. 50-60 sekúndur.

Þetta átti einnig við þegar ég hélt fast á símunum og þegar ég þeir lágu án snertingar á klút. Semsagt viðbragðstíminn hjá iPhone 4 var merkilega snöggur m.v. iPhone 3G hvað varðar að ná aftur GSM-sambandi.

Þegar ég náði örlítið betra sambandi, sirka 3-4 strikum, þá missti ég nánast aldrei samband þegar haldið var á þeim.

Á nokkrum svæðum (og hólum) fékk ég stöðug 4 strik á báðum símum, en þeir misstu 2-3 strik þegar ég hélt á þeim. Hvorugur missti alfarið GSM samband.

Þegar nánast fullt samband náðist, eða í kringum 4-5 strik þá misstu báðir símarnir 1-2 strik þegar haldið var á þeim. Mér tókst aldrei að missa samband þar sem sambandið var gott.

Á tali

Þegar talað var í símana var enginn munur á símunum, þ.e. þeir hegðuðu sér nánast alveg eins á svæðum þar sem sambandið var lélegt. Þar sem sambandið var gott þá héldu þeir góðu sambandi á meðan haldið var á þeim við eyrað.

Það er þó mikilvægt að taka fram að það er mjög mismunandi hvernig fólk heldur á símum bæði þegar talað er í þá eða einfaldlega haldið á þeim til að vafra á netinu t.d.

Sjálfur held ég ofarlega utan um símann með þremur fingrum utan um umgjörðina og leyfi vísifingri að snerta bakhliðina (nánast alveg á svæðinu þar sem Apple lógóið er) þegar ég tala við í hann. Kærastan mín, hins vegar, heldur fast utan um alla umgjörðina og í mínum prófunum missti hún aldrei samband þegar eitt strik náðist mest á báðum símum með fyrrnefndu gripi.

Niðurstaða

Niðurstaða mín eftir þessar tilraunir og prófanir er sú að iPhone 4 er með mun betra samband en iPhone 3G á svæðum þar sem GSM samband er slæmt. Báðir símar missa samband þegar haldið er á þeim á svæðum þar sem skilyrðin eru slæm og sæmileg.

Þeir missa aldrei samband á svæðum þar sem GSM sambandið er gott.

Sigurvegarinn er…

Það er mjög erfitt að segja hver sigurvegarinn er í þessum prófunum, en ég held að hver og einn verði að dæma fyrir sig.

Er betra að eiga síma sem nær nánast alltaf [góðu] sambandi þar sem GSM samband er lélegt en missir það oftar þegar haldið er á honum, eða síma sem nær ekki alltaf sambandi og missir það af og til þegar haldið er á honum?

Einnig, símarnir komu jafn illa út í prófunum þar sem GSM sambandið var nánast fullkomið.

Annað atriði sem hefur áhrif á niðurstöðuna er sú hvort þetta sé í raun nýtt vandamál sem við erum að kljást við í GSM símum? Erum við ekki í raun að einblína á vandamálið núna vegna þess að um er að ræða einn vinsælasta snjallsíma á markaðinum í dag? Eins og Steve Jobs og co. sýndu fram á í gær (og á heimasíðu sinni) þá eru nánast allir GSM-símar með loftnetsvandamál þegar haldið er á þeim. Sem dæmi hafði ég ekki hugmynd um að þetta ætti sér stað á iPhone 3G fyrr en ég fór að prófa hann á sama hátt og iPhone 4.

Annað sem Steve Jobs tók fram á blaðamannafund sínum í gær, er að veikasti punktur á loftneti iPhone 4 er í raun sérstaklega merktur á símanum, á meðan aðrir símar hafa sama vandamál og notandinn hreinlega sér það ekki eða veitir því ekki eftirtekt.

Lokaorð

Mitt persónulega mat er að þetta er uppblásið fyrirbæri og þetta truflar mína notkun ekki neitt á iPhone 4 (alveg eins og loftnetið á iPhone 3G truflaði mig heldur aldrei).

Það gæti vel verið að þetta tiltekna fyrirbæri trufli einhverja notendur, en Apple býður þeim mjög réttláta lausn: frír „bumper“ (hulstur) með öllum iPhone 4 (sem gerir loftnetið í raun enn betra), hægt er að skila símanum innan 30 daga frá kaupdegi eða fyrir þá sem vilja ekki símann að einfaldlega kaupa sér annan eða vera sáttir iPhone 2G/3G/3GS notendur.

Það er óraunhæft að ætlast til þess að einhver vara geti uppfyllt kröfur allra notenda og að allir séu 100% sáttir við ákveðna vöru. Það er hægt að tala endalaust um hvað er betra og hvað er verra, svona álíka og deila um hvort Pepsi eða Coca Cola sé betra (hugsanlega léleg samlíking en þið skiljið hvað ég meina). Það hefur sýnt sig á upplýsingum sem Apple gaf út í gær að þegar á heildina er litið þá eru mun færri sem hafa skilað iPhone 4 heldur en iPhone 3GS þegar hann kom út. Einnig hafa einungis 0,55% kvartað undan loftnetinu við Apple.

Enn og aftur, mæli með að lesa þessa síðu: www.apple.com/antenna

Lokaniðurstaða mín er sú að í raunverulegri og venjulegri notkun stendur iPhone 4 sig mun betur en iPhone 3G hvað varðar GSM samband. iPhone 4 nær nánast alltaf sambandi þar sem aðrir símar (og iPhone 3G) ná litlu eða engu sambandi. Báðir símar missa samband þegar haldið er á þeim með í mörgum tilfellum við ýmsar aðstæður.

Stór plús við iPhone 4 er líka sá að það tekur hann oftast innan við 10 sekúndur (í mínum prófunum) að ná aftur GSM-sambandi eftir að hann hefur misst samband, endurræstur eða sett á og tekið af Airplane mode. Fyrri iPhone símar eru mun lengur að framkvæma slíkt, eða allt að 600% lengur.

Mín meðmæli: iPhone 4.

iPhone 4 með „bumper“: enn betri.

11 svör við “Er iPhone 4 í raun og veru með gallað loftnet? Maclantic prófar iPhone 4 og iPhone 3G”


  1. Gravatar Icon 1 Einar Laugardagur 17. júlí 2010 kl. 16:19

    Ég fór einmitt að fikta með iphone 4 um leið og ég fékk hann útaf þessu. júju ef ég þrýsti þarna á þá dettur út sambandið en ekki ef ég rekst í þetta eða þannig

    samt skemmtilegur lestur og gamann að þér að gear svona góða grein.

    en ég er ekki að fara skipta um síma útaf smá svona galla.

  2. Gravatar Icon 2 Pixx Laugardagur 17. júlí 2010 kl. 16:31

    Sæll Bjöggi,

    Flott grein hjá þér! Gaman að sjá hvað þú hefur lagt mikið í þessar prófanir þínar fyrir okkur hérna á Maclantic!!! :)

    Ég þarf greinilega að komast í nánari snertingu við iPhone 4 og fá að prófa að halda á honum sjálfur með mínu gripi og sjá hvernig það fer.

    Takk fyrir mig ! :grin:

  3. Gravatar Icon 3 Sindri Laugardagur 17. júlí 2010 kl. 16:56

    Ég er búinn að eiga Iphone 2G og 3GS og svo loks núna Iphone 4 og aldrei verið ósáttur við neinn þeirra. Iphone 4 er svo flottur og skemmtilegur að ég get ekki lýst því mæli sterklega með gripnum.. Flott grein Bjöggi..!
    Bý í reykjavík og sambandið er alltaf topp lagi.!

  4. Gravatar Icon 4 Siggi Opes Laugardagur 17. júlí 2010 kl. 17:12

    Frábær grein hjá þér, skemmtilegur lestur. Takk fyrir mig. Fæ minn snemma í ágúst, verður gaman að skoða þetta þá :) .

  5. Gravatar Icon 5 Chemical Laugardagur 17. júlí 2010 kl. 19:11

    Góður ;-)

  6. Gravatar Icon 6 Baddi Laugardagur 17. júlí 2010 kl. 20:41

    Flott grein hjá þér. Var samt að pæla hvort þetta er eins með alla iPhone síma. Eru ekki sumir símar verri en aðrir? Hef prófað einn og hann virkar fullkomlega, næ að láta hann missa tvö strik með því að halda á honum mjög fast og kjánalega en aldreim meira.

  7. Gravatar Icon 7 Halldór Eldjárn Mánudagur 19. júlí 2010 kl. 00:00

    Best finnst mér svarið frá Steve: „Then avoid holding it that way“.

    Maður þarf ekkert að halda nákvæmlega svona á þessum síma :D

  8. Gravatar Icon 8 jón Fimmtudagur 22. júlí 2010 kl. 00:52

    En hvernig var það. keyptiru hann í usa ókrakkaðann og lést krakka hann hérna heima?
    hef nefnilega heyrt að það sé eitthvað vesen. Og að maður þurfi líka að vera samningsbundinn við at&t úti?

    p.s mjög flott grein.

  9. Gravatar Icon 9 Bjöggi Fimmtudagur 22. júlí 2010 kl. 06:05

    @jón

    Sæll,
    takk fyrir það.

    Ég keypti hann í Apple Store UK, þar er hann seldur ólæstur. Ég mæli alls ekki með því að kaupa læstan síma. Það kallar bara á vesen í framtíðinni. T.d. muntu aldrei geta fylgt uppfærslum og nýjungum frá Apple og þarft að treysta á einhverja hakkara útí bæ að sjá um þau mál, þ.e. aflæsingu og crack.

    Eins og stendur þá er ekki hægt að aflæsa iPhone 4, svo er maður ekki heldur að græða neitt á því að kaupa hann læstan í USA. Hann kostar $599 + tax sem gerir um $650 í t.d. New York.

    Það er um 80 þúsund krónur.

    Hann kostar 95 þúsund krónur í UK ólæstur.

  10. Gravatar Icon 10 jón Föstudagur 23. júlí 2010 kl. 02:13

    ok frábært. Takk kærlega fyrir upplýsingarnar. Er einmitt að fara til ny og ætla að kaupa minn þar

  11. Gravatar Icon 11 d Föstudagur 23. júlí 2010 kl. 12:04

    Það er greinilegt að sumir hafa ekkert að gera í fríinu. ;-)

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!