Í dag kynnti Apple nýja Mac mini á vefsíðu sinni, en um er að ræða algjöra endurhönnun á tölvunni og breytingu á innihaldi eins og sést hér á myndunum að neðan.
Mac mini er nú orðin s.k. „unibody“ tölva eins og á núverandi fartölvulínu Apple, og hefur eftirfarandi eiginleika:
- 2,4GHz eða 2,6GHz Intel Core 2 Duo
- 3.6 cm þykk með innbyggðum spennubreyti
- NVIDIA 320M (sama og í nýju fartölvunum)
- HDMI-tengi
- Einfalt aðgengi að vinnsluminni
Nánari upplýsingar og myndir eru að finna á Apple.com/macmini
Einnig má nefna merkilegar breytingar á orkunotkun, því Mac mini notar einungis 10W og hefur loksins HDMI-tengi sem margir eiga eftir að fagna. Þar að auki er harði diskurinn orðinn stærri, eða frá 320GB.
Þó er eitt neikvætt við þessar breytingar, en það er verðmiðinn. Verðið hefur hækkað um $100.
Hvað finnst ykkur um nýju Mac mini?







(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
Vá, lýtur mjög vel út!
Fallegt Stöff! Þetta er eiginlega bara alveg beautiful.
Snilld, en hefðu mátt bjóða uppá optical tengi líka.
emmi: það er optical-tengi á Mac mini
“Audio line out/headphone minijack (digital/analog)”
Bara sameinað í eitt tengi mini-jack eins og á flestum Mac-tölvum í dag.
Það þarf þá bara mini-jack breytistykki í toslink.
Flott græja!!
alltof dýr fyrir hvað þetta er.
og mér skilst að hún sé búin að hækka ennþá meira í evrópu.
Ódýrasti makkin er ekki lengur ódýr.
Ah auðvitað. Hvar fær maður svona stykki?
emmi:
Hefur eiginlega oftast verið til niðurfrá í Applebúðinni. Það er til Airport Express Connection Kit sem er með ýmsum snúrum frá MonsterCable. Þar er m.a. mini-jack -> Toslink kapall.
Kostar minnir mig í kringum tæplega 5 þúsund kr.
Vantar bara Blu-Ray drif
Ætli það sé ekki hægt að fá hana ódýrari í evrópu núna útaf lækkun evru?
Af hurru er þetta ekki sagt á mannamáli, er þessi tölva kannski bara fyrir sérfræðinga? Hvaða breytingar hafa verið gerðar á tölvunni aðrar en dularfullar skammstafanir með hástöfum og útlensk orð? Spyr sá sem ekki veit. G
Er að velta fyrir mér snow leopard server útgáfunni til að fá 2×500gb og losna við súperdrifið en er eitthvað issue að nota þá vél bara sem heimavél án þess að vera með hana í server hlutverki?
Hef líka verið að leita að benchmarks fyrir þessa vél í grafíkvinnu uppá að geta notað hana í FCP7 og Photoshop workflows … er það of mikil bjartsýni?
Var að fá kvikindið til landsins.. það fylgir hdmi to DVI adapter ef maður setur í tölvuskjá en ekki LCD-skjá. Hún er stærri en ég hélt en þynnri en gamla og er HRYKALEGA flott. Keypti aukaminni og skrúfaði bara botninn og smellti þessu í eins auðvelt og simkort í síma…
Elli: ef þú ætlar ekki að nota serverinn taktu frekar þessa og stækkaðu diskana… þú ert þá allavega með diskraufina. kv Ingó
Elli: Þú vilt kannski athuga að iLife fylgir ekki með SNL-Server útgáfunni og ég hef reyndar heyrt líka að það sé ekki hægt að installa því ef maður kaupir það aukalega. Hef reyndar ekki reynt það sjálfur.
Af hverju ekki Blue Ray???
Drullusexy græja.