Steam kemur út í dag!

12. maí er merkisdagur í sögu Makkans því stærsti dreifingar- og söluaðili tölvuleikja á netinu hefur ákveðið að gefa út hugbúnaðinn Steam fyrir okkur makkanotendur.

Steam má líkja við iTunes, því Steam býður upp á Steam Store og gagnagrunn fyrir alla þína leiki. Þar að auki er hægt að spjalla við vini sína á Steam og bjóða þeim að spila með í viðkomandi netleik.

Fyrir þá sem þekkja þá mun Source-vélin einnig vera til fyrir Mac, og því verður hægt að spila leiki á borð við Left 4 Dead 2, Half-Life og Day of Defeat:Source á Makkanum.

Þeir sem nota nú þegar Steam á Windows geta glatt sig yfir því að hafi þeir nú þegar t.d. keypt sér Left 4 Dead leikinn á Steam, þá þurfa þeir ekki að kaupa tvö eintök eins og þekkist í dag, heldur verður hægt að ná í leikinn án endurgjalds á Steam fyrir Mac.

Til að byrja með verður leikjaúrvalið mjög takmarkað, en samkvæmt fréttatilkynningu verður leikurinn Portal og Torchlight fáanlegir strax í dag. Bráðlega ættu fleiri stærri titlar frá Valve að koma út. Svo er bara tímaspursmál hvenær aðrir leikjaframleiðendur fara að selja sína leiki á Steam.

Ekki er vitað nákvæmlega hvenær í dag Steam kemur út fyrir Mac, en hægt er að fylgjast með því á Steampowered.com.

Nánari upplýsingar um Steam er að finna hér.

Heimild: Fréttatilkynning frá Steam

0 svör við “Steam kemur út í dag!”


  1. Engin svör

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!