Önnur frumgerð af iPhone týnd?

Samkvæmt Víetnömskum umræðuvef (er niðri sem stendur) hefur ónefndur aðili undir höndunum 4. kynslóð af iPhone.

Eins og margir kannast við, keypti Gizmodo slíkt tæki af aðila sem segist hafa fundið það á þýskum bar í San Francisco.

Það sem hins vegar er öðruvísi við þessa gerð er að hún skilgreinir geymslupláss, 16GB í þessu tilfelli, en frumgerðin sem Gizmodo keypti stóð á „XXGB“. Þar að auki eru engar skrúfur undir símanum eins og var á símanum sem Gizmodo var með.

Það verður að segjast býsna merkilegt ef Apple hefur tekist að týna tveimur frumgerðum af næstu kynslóð af iPhone, því fyrirtækið er þekkt fyrir að vera með mjög strangar öryggisreglur til að koma í veg fyrir að slíkir hlutir gerast. Eitthvað hefur hins vegar farið úrskeiðis í ár.

Talið er að iPhone 4G eða „iPhone HD“ eins og hann er sagður heita (vegna betri upplausnar á skjá), verði kynntur í júní á þessu ári þegar WWDC á sér stað í San Francisco í Kalíforníu-ríki.

Heimild og fleiri myndir: MacRumors

10 svör við “Önnur frumgerð af iPhone týnd?”


  1. Gravatar Icon 1 Orri Miðvikudagur 12. maí 2010 kl. 11:28

    er þetta ekki bara gert viljandi?
    þeir fá allavega hellings umfjöllun út á þetta.

  2. Gravatar Icon 2 Halldór Eldjárn Miðvikudagur 12. maí 2010 kl. 11:47

    Verandi Apple, þá þurfa þeir ekki að nota svona stönt til að fá mikla athygli :P Nóg fyrir þá bara að vefverslunin liggi niðri og þá fara sögurnar í gang ;)

  3. Gravatar Icon 3 Baddi Miðvikudagur 12. maí 2010 kl. 13:24

    Er ég einn um það að finnast þessi nýja gerð frekar ljótari en 3gs?

  4. Gravatar Icon 4 Valur Miðvikudagur 12. maí 2010 kl. 13:27

    Sammála, mér finnst þetta ekki vera stílhrein hönnun eins og Apple eru þekktir fyrir.

  5. Gravatar Icon 5 Bjöggi Miðvikudagur 12. maí 2010 kl. 13:58

    Hönnun gengur ekki bara út á fegurð :)

    En það tók mig smá tíma að melta þetta… kemur í ljós hvort þetta sé endanleg útgáfa.

    Svo breytist þetta líka oftast þegar maður fær að sjá græjuna með eigin augum og snerta hana og prófa.

  6. Gravatar Icon 6 Siggi Miðvikudagur 12. maí 2010 kl. 17:02
  7. Gravatar Icon 7 Bjöggi Miðvikudagur 12. maí 2010 kl. 17:44

    Gamlar en nýjar… allavega staðfest núna (var ekki staðfest áður).

  8. Gravatar Icon 8 Siggi Miðvikudagur 12. maí 2010 kl. 19:31

    Já, og líka betri myndir og myndband núna :) .

  9. Gravatar Icon 9 Gissur1 Fimmtudagur 13. maí 2010 kl. 14:26

    Ég vona að þetta hafi verið planað og alvöru græjan sé allt öðruvísi :mrgreen:

  10. Gravatar Icon 10 Kristján Föstudagur 14. maí 2010 kl. 23:05

    Alltaf þegar ég er á leiðini að fá mér iphone þá er alltaf ný gerð á leiðinni út og ég fresta því alltaf.. þetta er orðinn vítahringur.. samt nett

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!