Nova fyrstir með Micro-SIM fyrir iPad

Fréttatilkynning frá Nova:

Ný sérgerð micro-símkort fyrir 3G iPad fást nú hjá Nova. Fáar ef nokkrar tölvur hafa vakið jafn mikla athygli og nýja iPad tölvan frá Apple. Þessi tölva er án efa heitasta varan á markaðinum í dag. Á nýjustu iPad tölvunni sem kom á markað í síðustu viku er símkortarauf fyrir 3G micro-símkort. Um er að ræða sérgerð símkort sem sett eru í tölvuna og því þarf ekki utanáliggjandi 3G pung. Með iPad er hægt að tengjast netinu í gegnum WiFi og 3G netsamband. Nokkur eftirspurn hefur verið eftir iPad símkortum hjá Nova þrátt fyrir að iPad tölvan sé enn ekki fáanleg hér á landi. Hún fæst hins vegar í verslunum Apple í Bandaríkjunum og þó nokkrir hafa þegar orðið sér úti um eintak.
Nova býður 3G internetþjónustu í áskrift og frelsi fyrir 3G iPad. 3G internet áskrift hjá Nova kostar frá 1.990 kr. á mánuði fyrir 5 GB netnotkun en í frelsi er hægt að fylla á netnotkunina eftir þörfum: 2 GB á 1.490 kr. eða 5 GB á 2.490 kr. 3G internet er hefðbundin nettenging sem hentar vel fyrir alla almenna netnotkun – tölvupóst og til að vafra um netið. Hægt er að nota 3G internet í stað ADSL sambands en hraðinn er allt að 5 Mb/s, algengasti hraði tengingar er á bilinu 2-3 Mb/s.
3G internet er ódýrt og gott netsamband sem heimatenging, í sumarbústaðinn og/eða til að taka með sér hvert sem farið er innanlands.

Góðar fréttir fyrir eigendur iPad 3G + WiFi!

2 svör við “Nova fyrstir með Micro-SIM fyrir iPad”


  1. Gravatar Icon 1 Siggi Fimmtudagur 6. maí 2010 kl. 17:39

    Flottar fréttir!

  2. Gravatar Icon 2 Jón Ingi Föstudagur 7. maí 2010 kl. 00:46

    Þetta er flott. Vonandi fylgja allir hinir fljótlega með, þá verður þetta heldur ekki vandamál þegar nýji iPhone-inn kemur í sumar.

    Annars er ekkert stórmál að búa til micro sim úr venjulegu korti, þar sem þetta er sami hluturinn en bara með meira/minna plasti í kring.

    Sjá hér;
    http://www.johnbenson.net/How_to_Convert_a_SIM_to_a_MicroSIM_with_a_Meat_Cleaver/How_to_Convert_a_SIM_to_a_MicroSIM_with_a_Meat_Cleaver.html

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!