Það verður að teljast nokkuð merkileg tíðindi, en Steve Jobs svaraði tölvupósti sem ég sendi honum í gær er varðar iPad og iPhone tethering.
Í bréfi mínu til Steve Jobs tók ég fram hversu leitt það væri að horfa upp á að sjá þessi tvö tæki ekki virka saman, þ.e. að iPhone hafi möguleikann til þess að deila neti sínu (kallað „tethering“) með Bluetooth á iPad en iPad leyfi það ekki. Bréf mitt í heild sinni hljóðaði svo:
iPhone tethering and the iPad:It’s very disturbing to think of these two devices that have the technology and ability to be able to connect to each other without a problem (I would think) and share each others Internet connection… But they can’t, because of your (or Apple’s) restrictions.I understand you want to sell the 3G iPad, but doing this to your current iPhone customers isn’t the right thing to do. Sometimes it’s better to get more respect rather than making more money… Or perhaps less money in the long run?Please reconsider this decision you’ve possibly made about restricting the iPad to connect to the iPhone via Bluetooth with Internet tethering enabled.Best regards,Bjorgvin BjorgvinssonSent from my iPad
Svar Steve Jobs:
It is the carrier’s policy that restricts this, not Apple.
Sent from my iPhone
Það er nokkuð augljóst að AT&T hafi neitað að leyfa iPhone tethering fyrir iPad, en af minni bestu vitund er ekki hægt að nota iPhone tethering yfirhöfuð í Bandaríkjunum vegna reglugerða AT&T (það virkar þó í „hökkuðum“ iPhone símum þarlendis).
Hins vegar gildir þessi takmörkun ekki á Íslandi t.d. eða mörgum öðrum Evrópulöndum. Því gæti þetta breyst þegar iPad verður markaðssettur í Evrópu, hver veit?
En spurningin er þá sú, mun næsta iPad-hugbúnaðaruppfærsla frá Apple leyfa iPhone tethering á iPad þegar hann verður fáanlegur í Evrópu? Ef Steve Jobs er að segja sannleikann þá mætti gera ráð fyrir því, þar sem iPad er í raun bara markaðssettur í USA sem stendur og því hafa þeir líklegast ekki haft fyrir því að bæta við þessum möguleika í iPad stýrikerfinu.
Hins vegar þykir mér skrítið að ef takmörkunin er nú þegar til staðar hjá AT&T – til hvers þá að loka alfarið á það á iPad ef fólk getur hvort eð er ekki notað tethering á iPhone símanum sínum? Kemur í ljós í sumar geri ég ráð fyrir…




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Ekki amalegt að fá email frá sjálfum Steve.
Hefðir átt að troða spurningu um afhverju ísland sé ekki á radarnum hjá Apple.
Vel gert! +1 Bjöggi!
bmson: Hef gert það mjög oft að minna hann á iPhone og App Store.
Hef sent nokkur email til hans varðandi App Store á Íslandi, en hann hafði greinilega engan áhuga á því að svara þeirri spurningu.
Hins vegar tók hann eftir þessari
http://www.geekculture.com/joyoftech/joyarchives/1384.html
Haha, gamanaðessu! Ég sendi einu sinni Al Lowe email sem hann svaraði. Það er eitthvað svo undarleg tilfinning að fá póst frá svona legends.
Ekki helduru að Steve sjálfur sé í því að svara tölvupósti sem er sendur á sjobs@apple.com?
Hvað helduru að þetta netfang fái mörg þúsund pósta á dag, og hvað helduru að það sé mikið af fólki sem er að svara því sem því þykir svaravert eða því sem þeir “geta” svara?
En ætli tethering stillingin sé ekki frekar á iPhone uppfærslu en iPad, ef þetta er eitthvað sem carrierinn vill takmarka…
Bjarki: í raun ekki, þar sem tethering virkar vel hjá mér við fartölvur á iPhone, en iPad-inn sér ekki einu sinni iPhone með bluetooth.
Veit einhver afhverju ég sé ekki intenet tethering á iPhone-inum mínum. Ég á IPhone 3gs. Getur verið að Nova styðji ekki tethering?
Þetta er svona eins og að skrifa óskabréf til jólasveinsins. Eitthvert jólasveinacompany í Finnlandi sem svara þér.
Vildi láta ykkur vita að þetta “Steve Jobs” netfang er ekki alvöru. Það eru fólk að vinna við að svara svona spurningum.
Ég veit þetta þar sem ég var að reyna að hafa samband við hann fyrir nokkru og ætlaði mér að tala við hann um að lögleyfa iPhone hér á landi.